»  kvikmyndir  »  Rokk og rugl
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Rokk og rugl
Miðvikudagur, 09. júní 2010

Get Him to the Greek
[2]

Aldous Snow er svakalega vinsćl poppstjarna. Eiginkona hans er jafnvel enn vinsćlli söngkona og saman tróna ţau á toppi tilverunnar, glysgjörn og svona mátulega vitgrönn eins og gengur og gerist međ frćgt tónlistarfólk. Aldous fer ţó fyrir rest flatt á ofmetnađnum ţegar hann gefur út skelfilega lélega plötu sem snarlćkkar gengisvísitölu hans.

Glyshjónin gefast í kjölfariđ upp á sjö ára edrúmennsku, skilja og henda sér á kaf í dóp og brennivín, hvort í sínu lagi. Eiginkonan fyrrverandi gerist auk ţess vergjarnari og tíđari gestur á forsíđum slúđurblađa fyrir val sitt á rekkjunautum en Paris Hilton á međan Aldous hangir heima á Bretlandi og drekkur og djammar í skjóli fornrar frćgđar.

Líđa nú ein tíu ár og Aldous er enn viđ sama heygarđshorniđ. Ţá fćr gamall ađdáandi Aldousar, meinleysisgrey og minnipokamađur, ţá frábćru hugmynd ađ setja upp afmćlis og endurkomutónleika Aldousar í Los Angeles. Ţetta geti skilađ útgáfufyrirtćkinu fúlgum fjár í endurútgáfum og öđru tilheyrandi.

Fyllibyttan í London fellst á ađ halda tónleikana og rćfillinn sem fékk hugmyndina ađ endurreisninni er sendur til Englands ađ sćkja fallna gođiđ og koma ţví á tónleikana í tćka tíđ.
Ţetta er auđvitađ ekki heiglum hent enda er alkunna ađ dópistar og fyllibyttur í neyslu eru upp til hópa óţolandi fólk sem ekki nokkur leiđ era đ eiga viđ. Blessađur lúđinn sogast ţví á methrađa inn í rokklíferni Aldousar og er farinn ađ dópa og standa í kynlífi međ sexbombum á almenningssalernum alveg á einu augabragđi.

Hver uppákoman rekur svo ađra á ferđ vitleysinganna tveggja frá London til Los Angeles og myndin öll er ein samhengislítil runa misfyndinna brandara. Sem vćri svosem í góđu lagi ef brandararnir vćru góđir en ţví er nú ekki fyrir ađ fara. Ţetta er mynd sem mađur fer í gegnum hálfglottandi og getur međ góđum vilja og jákvćđu hugarfari hlegiđ upphátt svona tvisvar til ţrisvar sinnum.

Ađalleikararnir Jonah Hill og Russell Brand eru hins vegar ákaflega sjarmerandi og skemmtilegir og fleyta myndinni ansi langt međ sameiginlegu átaki. Hill er sannfćrandi og brjóstumkennanlegur lúđi og Brand er helvíti hress os skemmtilegur í hlutverki rokkaraklisjunnar frá helvíti. Ţó hallar ađeins undan fćti ţegar fábjáninn Aldous tekur óvćntan andlegan ţroskakipp undir lokin. Ósköp kunnuglegur og útjaskađur endahnútur á ţroskasögum aumingja og frekar átakanlegur ađ ţessu sinni enda Brand miklu sleipari í léttu flippi heldur en dramatískum uppgjörum.

Einhverra hluta vegna hefur samt sá misskilningur fengiđ vćngi ađ Get Him to the Greek sé fyndnasta mynd sumarsins ef ekki ársins hingađ til. Ţetta stenst enga skođun ţótt ţetta sé svo sem allt í lagi og enginn muni drepast úr leiđindum yfir brölti ţeirra félaga.


| 10:46 |

First Aid

Mjölfiđlar

Bloggar

shit and stuff