»  kvikmyndir  »  september 2011
efnisflokkar

nýlegir dómar
september 2011

a long time ago...
Góđur landi
Föstudagur, 02. september 2011

Á annan veg
4

Áriđ er 1980 og eitthvađ. Alfređ og Finnbogi eru lengst uppi á heiđi ađ mála gular línur á ţjóđveginn og reka stikur í vegkanta. Ţeir félagar eiga fátt sameiginlegt. Alfređ er 24 ára gosi sem hugsar um fátt annađ en kynlíf og nćsta djamm en Finnbogi er 33 ára alvörugefinn pćlari sem hyggur á háskólanám í ţýsku.

Ţađ eina sem tengir ţá saman er ađ Finnbogi er í sambandi međ systur Alfređs og hefur gengiđ dóttur hennar í föđurstađ.

Á annan veg er einföld mynd ţar sem hrjóstrugt landslagiđ á heiđinni er eina sviđsmyndin og leikararnir Hilmar Guđjónsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson eru nánast einir í mynd allan tímann og bera myndina uppi međ samtölum sínum og samleik. Ţađ er auđvitađ meira en ađ segja ţađ ađ halda athygli og áhuga áhorfenda viđ ţessar einföldu ađstćđur en Alfređ og Finnbogi eru fljótir ađ ná tökum á áhorfandanum og persónurnar verđa áhugaverđari eftir ţví sem á líđur.

Ţannig ađ ekki er hćgt ađ segja annađ en ađ Hilmar og Sveinn skili sínu af stakri prýđi. Og ég minnist ţess ekki ađ hafa séđ íslenskt landslag ţjóna tilgangi sínum jafn vel í bíómynd og svo skemmtilega vill til ađ ţađ er einmitt ţegar ţađ er ljótt og óspennandi.

Eins og óskrifuđ lög um svona „böddí-myndir“ nálgast ólíkar persónurnar hvor ađra hćgt og bítandi og áđur en yfir lýkur myndast ósköp fallegt samaband á milli ţeirra. Sagan er ekkert sérstaklega frumleg og oft auđvelt ađ geta sér til um framhaldiđ en hún er engu ađ síđur áhugaverđ og skemmtileg.

Ţorsteinn Bachmann dúkkar upp í litlu aukahlutverki og brýtur upp daufan hversdaginn hjá ţeim félögum. Ţorsteinn er ađ verđa einhver allra skemmtilegasti aukaleikarinn í íslensku bíói og hefur leikiđ sér ađ ţví ađ stela senunni undanfariđ og klikkar ekki hérna frekar en áđur. Hann leikur sveitalúđa sem fćrir strákunum rosalega góđan landa. Besta landann í sveitinni, enda síađur ţrisvar. En eins og allir góđir bruggarar vita ţá dugir ekkert minna.

Í raun má segja ađ Á annan veg sé svolítiđ eins og landinn hans Steina. Hún er einföld, vel síuđ og án allra aukefna. Bara ţrjár persónur í miđri auđn. Hún er vel heppnađ byrjandaverk Hafsteins Gunnars Sigurđssonar, sem sýnir hér og sannar ađ ţađ ţarf ekki íburđ og djúpa vasa til ţess ađ vekja hughrif og skilja eitthvađ eftir sig.


| 12:14 | föst tilvísun |
date
First Aid

Mjölfiđlar

Bloggar

shit and stuff