kvikmyndir

Góður landi
Á annan veg

4

Árið er 1980 og eitthvað. Alfreð og Finnbogi eru lengst uppi á heiði að mála gular línur á þjóðveginn og reka stikur í vegkanta. Þeir félagar eiga fátt sameiginlegt. Alfreð er 24 ára gosi sem hugsar um fátt annað en kynlíf og næsta djamm en Finnbogi er 33 ára alvörugefinn pælari sem hyggur á háskólanám í þýsku.

Það eina sem tengir þá saman er að Finnbogi er í sambandi með systur Alfreðs og hefur gengið dóttur hennar í föðurstað.

Á annan veg er einföld mynd þar sem hrjóstrugt landslagið á heiðinni er eina sviðsmyndin og leikararnir Hilmar Guðjónsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson eru nánast einir í mynd allan tímann og bera myndina uppi með samtölum sínum og samleik. Það er auðvitað meira en að segja það að halda athygli og áhuga áhorfenda við þessar einföldu aðstæður en Alfreð og Finnbogi eru fljótir að ná tökum á áhorfandanum og persónurnar verða áhugaverðari eftir því sem á líður.

Þannig að ekki er hægt að segja annað en að Hilmar og Sveinn skili sínu af stakri prýði. Og ég minnist þess ekki að hafa séð íslenskt landslag þjóna tilgangi sínum jafn vel í bíómynd og svo skemmtilega vill til að það er einmitt þegar það er ljótt og óspennandi.

Eins og óskrifuð lög um svona „böddí-myndir“ nálgast ólíkar persónurnar hvor aðra hægt og bítandi og áður en yfir lýkur myndast ósköp fallegt samaband á milli þeirra. Sagan er ekkert sérstaklega frumleg og oft auðvelt að geta sér til um framhaldið en hún er engu að síður áhugaverð og skemmtileg.

Þorsteinn Bachmann dúkkar upp í litlu aukahlutverki og brýtur upp daufan hversdaginn hjá þeim félögum. Þorsteinn er að verða einhver allra skemmtilegasti aukaleikarinn í íslensku bíói og hefur leikið sér að því að stela senunni undanfarið og klikkar ekki hérna frekar en áður. Hann leikur sveitalúða sem færir strákunum rosalega góðan landa. Besta landann í sveitinni, enda síaður þrisvar. En eins og allir góðir bruggarar vita þá dugir ekkert minna.

Í raun má segja að Á annan veg sé svolítið eins og landinn hans Steina. Hún er einföld, vel síuð og án allra aukefna. Bara þrjár persónur í miðri auðn. Hún er vel heppnað byrjandaverk Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, sem sýnir hér og sannar að það þarf ekki íburð og djúpa vasa til þess að vekja hughrif og skilja eitthvað eftir sig.

Meðal róna og geimdóna í Arizóna
Mannkynið er frekar heimskt og leiðinlegt og hefur stundað það frá örófi alda að berast á banaspjót innbyrðis á alls konar bjánalegum forsendum eins og litarhætti, trú og landafræði. Ef eitthvað er að marka bíómyndir getur ekkert sameinað okkur annað en utanaðkomandi ógn. Eitthvað ómennskt og ekki af þessum heimi sem ógnar rétti okkar (Independence Day) til þess að kúga og drepa hvert annað í friði.

Cowboys&Aliens býður upp á þessa krúttlegu mannúðarstemningu í villta vestrinu þegar kábbojar, indíánar, stigamenn, góðborgarar, guðsmaður og meira að segja kona neyðast til að snúa bökum saman þegar gráðugar og ógeðslegar geimverur herja á Arizona árið 1875.

Daniel Craig, sá mikli töffari sem hefur gefið James Bond nýtt líf, fer fremstur í flokki. Grjótharður að vanda. Harrison Ford berst við hlið Craig og eins og sá annars ágæti maður er orðinn leiðinlegur með árunum þá kemur hann skemmtilega sterkur inn sem gamall, bitur og óvæginn uppgjafahermaður sem finnur mannlega taug innra með sér í öllum hasarnum. Læknakrúttið Olivia Wilde, sem House kallar jafnan 13 í sjónvarpsþáttunum, gefur karlpungunum svo ekkert eftir.

Allt hljómar þetta ósköp vel en því miður lofar Cowboys&Aliens meiru en hún getur staðið við og leikstjórinn Jon Favreau hefur ekkert taumhald á skepnunni sem hann á að stýra. Með annan eins mannskap og hann hefur hér yfir að ráða hefði verið minnsta mál í heimi að gera hörkufína hasarmynd en því miður rennur þetta út í alltof langa loðmullu þar sem of miklum tíma er eytt í bull og kjaftæði í stað þess að gefa allt í botn og slátra þessum leiðinda geimverum af einurð og festu.

Leikararnir, sem eru í góðu stuði, draga leikstjórann að landi, og blessunarlega hrekkur myndin í gang í hressilegum lokakafla, en miðað við það að þetta er myndin sem maður batt vonir við að myndi lyfta annars daufu bíósumari þá veldur hún talsverðum vonbrigðum.

Cowboys&Aliens **

Úti er magnað ævintýri
Ævintýrið um galdrastrákinn Harry Potter hefur staðið yfir í fjórtán ár. Ballið byrjaði árið 1997 þegar fyrsta bók J.K. Rowling, Harry Potter og viskusteininn, sló hressilega í gegn. Strax í upphafi lá fyrir að bækurnar um baráttu Harrys við hinn illa Voldemort yrðu sjö og næstu ár biðu fjölmargir aðdáendur Harrys reglulega í andnauð eftir framhaldi á ævintýrinu.

Síðasta bókin kom út sumarið 2007 og var slíkur doðrantur að ákveðið var að kljúfa hana í tvær bíómyndir og nú er loksins komið að leiðarlokum sem eru ansi hreint mögnuð í síðustu myndinni.

Bækurnar um Harry eru allar viðburðaríkar og þykkar og því óhjákvæmilegt að flysja þær rækilega til þess að geta rakið þær innan þeirra tímamarka sem kvikmyndir leyfa. Miklu hefur því verið sleppt og margar skemmtilegar persónur á síðum bókanna fengu ekki að láta ljós sitt skína í bíó. Þrátt fyrir það verður ekki annað sagt en að þessi tröllvaxni myndabálkur sé ansi vel heppnaður og þótt myndirnar séu vissulega misgóðar eru þær allar vel yfir meðallagi.

Fjórir ólíkir leikstjórar hafa komið að málum. Chris Columbus hóf leikinn með fyrstu tveimur myndunum, sem var alls ekki vitlaust þar sem hann er hálfgerður krakki og því á heimavelli í ævintýrum Harrys þegar hann er 11 og 12 ára. Eftir því sem Voldmort vex ásmegin færist meiri drungi yfir söguna og því var eðlilegt að Alfonso Cuarón væri skipt inn á í Fanganum í Azkaban. Mike Newell tók við keflinu í fjórðu myndinni og David Yates kláraði svo dæmið með næstu fjórum myndum.

Fyrri hluti Dauðadjásnanna leið fyrir að hún var unnin upp úr fremri hluta hnausþykkrar lokabókarinnar þar sem Harry, Hermione og Ron eru á vergangi og rölta í átt að mögnuðu lokauppgjörinu. Þannig að þrátt fyrir reglulegar flugeldasýningar náði myndin ekki að halda fullum dampi alla leið. Allt annað er uppi á teningnum í síðari hlutanum þar sem allt er gefið í botn. Þetta er stysta myndin í bálknum en engu að síður sú þéttasta og spennuhlaðnasta. Eðlilega þar sem nú mætast þeir loksins erkifjendurnir, Voldemort og Harry, og berjast þar til aðeins einn stendur eftir.

Þrátt fyrir hasarinn passar Yates vel upp á tilfinningasemina og inn á milli fáum við voðalega krúttleg atriði þar sem ástin, sorgin, söknuðurinn og dauðinn hreyfa við taugum áhorfenda.

Orrustan um Hogwarts-skólann er hörkufínt sjónarspil og í raun er hvergi dauðan punkt að finna í myndinni.

Krakkarnir sem leika þríeykið frækna hafa elst og þroskast með persónum sínum og skila sínu með sóma sem fyrr, en helsta fagnaðarefnið að þessu sinni er þó að nú fær hinn mergjaði leikari, Alan Rickman, loksins að njóta sín í túlkun sinni á Snape, sem er óumdeilanlega ein skemmtilegasta persóna bókanna.

Aðrar fastapersónur klikka ekki fremur en endranær en fá ekki mikið að gera enda snýst þetta allt saman um Harry og Voldemort sem kveðja nú með miklum stæl eftir fjórtán ár af göldrum, dramatík, spennu og svakalega mörgum milljörðum í vasa þeirra sem að þeim standa.

Harry Potter and the Deathly Hallows: Part 2  ****

Allir eru í Kúng Fú-fætingi
Teiknimyndin um pönduna og lánlausa núðlukokkinn Po, sem komst loks í snertingu við sinn innri slagsmálahund og varð mikil hetja, var bráðskemmtileg. Ekta ævintýri sem skemmti börnum jafnt sem fullorðnum og ekki svíkur framhaldsmyndin sem er í raun betri í alla staði.

Po er nú orðinn fullgildur meðlimur í hinu frækna Kúng Fú-gengi þeirra Tigress, Monkeys, Mantis, Vipers og Cranes. En það er lítill tími til að slaka á þar sem nýr og snaróður andstæðingur, Shen, skýtur upp kollinum og ætlar sér að leggja gervalt Kína undir sig.

Inn í söguna er svo fléttað forsögu Pos enda er það aldrei tilviljun þegar óttalegir aular finna hjá sér innri styrk til að láta hetjudrauma sína rætast. Fyrir því eru alla jafna góðar og gildar ástæður þótt þær hafi ekki farið hátt. Spyrjið bara Loga Geimgengil.

Öllum ómissandi þráðum er vafið smekklega saman þannig að nóg er af gríni, spennu, hasar og tilfinningum í réttum hlutföllum. Þá spillir ekki fyrir að myndin er afskaplega áferðarfögur og á köflum tilkomumikil.

Síðan kemur það vitaskuld í hlut frábærra leikara að negla myndina saman í þá góðu skemmtun sem hún er. Hér er valin manneskja í hverju rúmi. Jack Black endurtekur leikinn sem Po og Dustin Hoffman talar áfram fyrir núðlukokkinn, fóstra Pos. Angelina Jolie, Jackie Chan, Seth Rogen, Lucy Liu og David Cross fylla svo flokk verndara Friðardalsins.

Vænn slatti af nýjum persónum mætir til leiks en þar fer mest fyrir illfyglinu Shen sem Gary Oldman túlkar af sinni stöku snilld en fáir standa þeim leikara jafnfætis þegar kemur að skuggalegum skúrkum.

Kung Fu Panda 2 er því skotheld skemmtun. Mátulega spennandi og krúttleg og þeir sem hafa þeirri skyldu að gegna að fylgja smáfólkinu í bíó þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af því að þessi bíóferð sé sóun á dýrmætum tíma fullorðna fólksins.

Bíódómur Kung Fu Panda 2 ****

Úrvalsdeild ofurhetja
Sá dásamlegi og alltof sjaldséði leikari Kevin Bacon skýtur hér upp kollinum í útrýmingarbúðum nasista. Hann leikur Sebastian Shaw, einhvers konar yfirnáttúrulega útgáfu af Jósef Mengele, sem kemst heldur betur í feitt þegar á fjörur hans rekur gyðinginn unga, Erik Lensherr.

Sá hefur þann magnaða hæfileika að geta sveigt og beygt málma eins og honum sýnist. Á meðan Erik litli missir foreldra sína og þjáist í klónum á Shaw elst hinn ungi Charles Xavier upp í vellystingum en vanrækslu á óðali ættar sinnar.

Síðan víkur sögunni til ársins 1963. Erik er orðinn fullorðinn og rekur slóð Shaws um víða veröld, harðákveðinn í að drepa hann. Xavier er hins vegar að ljúka námi í erfðafræðum enda heltekinn af viðfangsefninu. Eðlilega kannski þar sem sjálfur er hann stökkbreyttur og getur lesið hugsanir.

Shaw er sturluð stökkbreyta sem ætlar sér að etja Bandaríkjamönnum og Sovétmönnum út í heimsstyrjöld með því að véla Rússa til að koma fyrir kjarnorkuflaugum á Kúbu.

Á meðan Shaw bruggar sín launráð kynnast þeir Xavier og Erik og með hjálp CIA smala þeir saman slatta af stökkbreytum og áður en yfir lýkur þarf þessi ósamstæði hópur að taka á honum stóra sínum til þess að stoppa Shaw og bjarga heiminum.

X-Men: First Class er ofurhetjumynd í hæsta gæðaflokki og hér er teflt fram úrvalsliði stökkbreytna. Bacon er frábær skúrkur, James McAvoy er fágunin og gæskan uppmáluð í hlutverki Xaviers en mest gustar af Michael Fassbender. Töffið sem lekur af honum er svo ískalt og flott að hann hefur ekkert fyrir því að vera aðalgæinn í þessu stökkbreytudrama og maður getur ekki annað en haldið með Magneto og öfgahugmyndum hans. Allt smellur þetta saman, skemmtileg saga, spenna og áhugaverðar persónur, í grjótharða heild sem er krydduð fínum nördahúmor.

Bíódómur X-Men: First Class ****

Skemmtilega sjúklega sjúkt
Klovn The Movie

4

Þeir sem hafa kynnst dönsku bjánunum Frank og Casper í sjónvarpsþáttunum Klovn vita nákvæmlega að hverju þeir ganga í bíómyndinni um þá félaga. Þetta er bara stærri skammtur, grófari og þar af leiðandi á köflum fyndnari. Myndin er þó nokkuð veikari en bestu Klovn-þættirnir en inn á milli taka þeir félagar algerlega óborganlega spretti þar sem maður tárast bókstaflega af hlátri.

Frank og Jesper eru eitthvað svo dásamlega ósmekklegir, fallega sjúkir og svo skemmtilega á skjön við borgaralega rétthugsun og í myndinni leggja þeir í krossferð á kanó niður Guden-ána á Austur-Jótlandi gegn öllu því sem getur talist gott og heilbrigt. Casper ætlar sér að gera þetta að allsherjar kynsvallsferð með viðkomu á besta hóruhúsi í heimi, auk þess sem til stendur að reykja feita jónu og fleira skemmtilegt. Frank setur hins vegar stórt og leiðinlegt strik í reikninginn þegar hann hálfpartinn rænir 13 ára frænda Miu og kippir honum með í þeim tilgangi að sýna og sanna að hann sé verðugur faðir ófædds barns þeirra.

Uppákomurnar sem fylgja í kjölfarið eru hver annarri vandræðalegri og þeir sem þjást yfir heimsku og klaufaskap Franks í mannlegum samskiptum í einum Klovn-þætti þurfa heldur betur að bíta á jaxlinn til þess að komast í gegnum myndina án þess að fá í magann, standa upp og reyta hár sitt. Þessi mynd er bootcamp-æfing í meðvirkni með öllum þeim hrolli og angist sem slíku fylgir.

En hún er líka óbærilega fyndin þegar best lætur og líklega þarf að leita allt aftur til Borat til að finna viðlíka hláturgrátköst og Frank og Casper framkalla þegar þeir ganga lengst.

Þeir félagar nýta sér það út í ystu æsar að vera lausir undan þeim hömlum sem sjónvarpið setur þeim óhjákvæmilega og leyfa sér að vera svo sjúkir að þegar maður gengur út úr bíóinu er manni enn hlátur í huga þótt manni finnist maður líka vera svolítið óhreinn fyrir að hafa hlegið að vitleysunni.

Sigling þjakaðra sála
Brim

[4]

Vesturportshópurinn telur óvenju marga  urrandi talenta og í þessari kvikmyndaaðlögun verðlaunaleikritsins Brim sýnir leikhópurinn allur sínar bestu hliðar undir styrkri leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar.

Hér tekst áhöfn á litlum ryðdalli á við lífið um borð eftir að einn úr hópnum styttir sér aldur í síðasta túr á undan. Þetta eru sveittir karlpungar, ólíkir innbyrðis, en allir eitthvað dældaðir á sálinni. Og ekki skánar mórallinn um borð þegar stúlka tekur pláss hins látna. Yfir þessum fiskitúr svífur einhver annarleiki og feigð þannig að ósköp venjulegur túr breytist smám saman í siglingu glataðra sálna.

Handritið er til fyrirmyndar, fallegt, fyndið og harmrænt rétt eins og myndin sjálf sem er blaut, köld, brimsölt og undurfögur í grámanum.

Magnað maður, magnað
The Expendables

[4]

Vissulega má segja margt misjafnt um Sylvester Stallone sem leikara og leikstjóra. Til dæmis er sú skoðun frekar útbreidd að hann sé vonlaus leikari, málhaltur, klisjukenndur með eindæmum og fullkomlega staðnaður. Það verður þó aldrei tekið af honum að hann kann að senda vonda kalla til heljar á færibandi með miklum tilþrifum.

Þá er fólki líka hollt að hafa í huga að vinsældir hans í gegnum áratugina byggja ekki á tilviljun og að myndir á borð við til dæmis Rocky (1976) og First Blood (1982) eru frábærar og fyrir löngu orðnar sígildar.

The Expendables er besta hugmynd sem Stallone hefur hrint í framkvæmd á síðustu árum en með því að hóa saman nokkrum vinum sínum, kunningjum og þekktum harðhausum hefur Stallone sett saman einhvern þann þéttasta og magnaðasta hóp sem hefur komið saman í bíó. Við þurfum að leita allt aftur til The Magnificent Seven, Dirty Dozen og The Great Escape til þess að finna hópa sem jafnast á við þann mannskap sem Stallone hefur yfir að ráða í The Expendables.

Stallone, Bruce Willis, Mickey Rourke, Arnold Schwarzenegger, Dolph Lundgren, Jason Statham og Jet Li í einni og sömu myndinni er auðvitað eiginlega of gott til þess að vera satt. Og myndin er líka algert dúndur þar sem allir fá að gera sitt. Stallone drepur illmenni hægri vinstri í harðri samkeppni við Statham, sem er að verða fremstur meðal jafningja í nýrri kynslóð hasarmyndatöffara, Dolph Lundgren fer mikinn í hlutverki skandinavísks brjálæðings, Jet Li fær að taka kung-fu snúning og Mickey Rourke þurfti bara að mæta og vera svalur, auk þess sem hann á lengstu einræðu myndarinnar, eðlilega þar sem hann er einn fárra innanborðs sem geta talist til alvöru leikara.

Eric Roberts fer svo á kostum sem aðalskúrkurinn og ekki annað að sjá en að hann hafi notið hverrar mínútu í þessum hressa hópi. Willis og Schwarzenegger mæta í smá stund svona rétt til þess að fullkomna þetta dæmi og Stallone og Arnold deila tjaldinu í nokkur stórkostleg augnablik í atriði sem er bæði stórskemmtilegt og hyldjúpt í ljósi forsögu þeirra og núnings á níunda áratugnum þegar þeir börðust um hásætið í hasarmyndabransanum. Þetta er "priceless" eins og segir í auglýsingunni.

Fyrir utan geggjaðan testósteróntrylltan mannskapinn er svo sem ekkert nýtt að frétta. Stallone elskar ekkert jafn mikið og að láta persónur sínar frelsa saklaust og einfalt fólk úr klóm hræðilegra skúrka og hér fer hann fyrir hópi málaliða sem taka að sér að bjarga íbúum eyju nokkurrar undan harðstjórn kókaínbaróns sem pínir mannskapinn áfram á eiturakrinum.

Þetta er að sjálfsögðu gert með frábærum tilþrifum þar sem er sparkað, stungið, skotið, sprengt, kýlt og bílum rústað. Heilalaust vissulega en frábær skemmtun engu að síður. Þeir sem halda að Stallone detti til hugar að þykjast vera eitthvað annað en hann er og fari að gera einhverja margræða snilld er varla viðbjargandi úr þessu og ættu að halda sig fjarri. Fyrir hina er þetta æði og fölskvalaust afturhvarf til níunda áratugarins fyrir utan það auðvitað að maður hefði gengið af göflunum í þá daga ef manni hefði verið boðið í svona stórveislu.

Niðurstaða: Þrátt fyrir úreldingu merkimiða verður þessari mynd ekki lýst betur en sem "strákamynd" og slíkar myndir verða tæpast mikið betri en The Expendables. Hún býður upp á allt fyrir okkur sem fílum svona en ekkert fyrir hina.

Brimsölt hasargella
Salt

[4]

Þráhyggjukennd dýrkun mín á Angelinu Jolie er ekkert feimnismál og ég fer aldrei ofan af því að þegar kemur að fegurð og kynþokka þá er Angelina náttúruafl enda er hún bæði í lífi og starfi tálkonan holdi klædd.

Hún er seiðandi, með tælandi augnaráð, munúðarlegustu varir veraldarsögunnar og við skulum ekkert hætta okkur í að ræða fleiri líkamshluta í þessu siðprúða blaði en það er ágætt að lesa þessa rýni með Angelinu-komplexinn minn í huga.

Angelina er bara þannig leikkona að maður gæti setið sem límdur og horft á hana í tvær klukkustundir að gera nákvæmlega ekki neitt. Þetta er þó ekki tilfellið í Salt og hún situr sko aldeilis ekki auðum höndum í þessum þétta spennupakka.

Angelina er kynnt til leiks sem hin ljóshærða Evelyn Salt sem er toppnjósnari og sérfræðingur í Rússlandsdeild CIA. Einn góðan veðurdag hrynur tilvera hennar, sem einhvers konar James Bond með stór brjóst og kyssulegar varir, á nokkrum augnablikum þegar rússneskur uppljóstrari valsar inn á skrifstofu CIA. Þegar Salt yfirheyrir hann heldur skúrkurinn því fram að Salt sé í raun rússneskur gagnnjósnari sem hafi það verkefni að kála forseta Sovétríkjanna þennan sama dag á meðan sá er staddur í New York.

Vinnufélagar Salt vilja enga sjénsa taka og hyggjast loka hana inni þar til sannleikurinn kemur í ljós. Okkar kona er nú síður en svo til í að hanga í varðhaldi og leggur á æsilegan flótta. Hún er síðan hundelt af kollegum sínum og enginn veit hvað henni gengur til en flest bendir þó til þess að hún hafi hrokkið í rússagírinn og ætli að ganga frá Sovétforsetanum.

Salt fer huldu höfði og smýgur í gegnum öll net leyniþjónustunnar og þegar henni tekst loksins að lita hárið á sér svart byrjar ballið fyrir alvöru. Þá er Angelina eins og við viljum hafa hana mætt í öllu sínu veldi. Hún er baneitruð hasareglla sem gerir allt það sem strákarnir, Bruce Willis, Daniel Craig, Matt Damon og allir þessir gaurar, hafa verið að gera nema kannski bara með töluvert meiri stíl og þokka.

Salt er í raun svolítið fyrirsjáanleg og gamaldags spennumynd í nútímabúningi þar sem ekkert er gefið eftir í sprengingum, bílaeltingarleikjum ,skotbardögum og slagsmálum. Og þótt sagan sé þvæla þá býr hún yfir meiri sjarma og er um margt rökréttari en gengur og gerist í myndum af þessu sauðahúsi. Leikararnir eru flestir fínir og Liev Schreiber er háréttur maður til að leika yfirmann Salt.

Noyce er brokkgengur leikstjóri sem á að baki slatta af hasarmyndum og veit hér alveg upp á sína tíu fingur hvað hann er að gera. Helstu persónur eru kynntar til leiks hratt og örugglega og svo er allt gefið í botn og aldrei slegið af þannig að Salt er blautur draumur hasarmyndafíkla. Hér eru meira að segja krúttlegar vísanir í From Russia With Love og First Blood og Angelina gefur kempum þeirra mynda sko ekki þumlung eftir.

Niðurstaða: Hörkufín hasarmynd sem er það þeim góða kosti gædd að miðaldra fólk getur haldið þræðinum þótt ekki skorti hamaganginn. Frekar fyrirsjáanleg en það kemur ekki að sök þar sem þetta er bara stuð. Og já, svo er Angelina í henni!

Frábær draumur
Inception

[5]

Christopher Nolan er einn allra flinkasti og leikstjórinn í bransanum þessi árin. Hann hefur varla misstigið frá því hann vakti athygli með Memento árið 2000 þótt vissulega séu myndir hans ekki allar jafn góðar. Ekki þarf að fjölyrða um það stórvirki hans að hefja Leðurblökumanninn til vegs og virðingar á ný með hinni líflegu Batman Begins og meistarastykkinu The Dark Knight.

Inception er engu að síður besta mynd leikstjórans til þessa og þá er heilmikið sagt.

Myndin hefur allt til að bera, hún er spennandi, skemmtileg, frábærlega vel leikin og mun flóknari og áhugaverðari en almennt gengur og gerist með spennumyndir.

Á forsíðu nýjasta tölublaðs kvikmyndatímaritsins Empire er sagt að í Inception mætist Matrix og James Bond, á sterum. Eins og svona líkingar geta verið hallærislegar þá er þessi vægast sagt viðeigandi og vart er hægt að lýsa Inception betur í stuttu máli.

Leonardo DiCaprio leikur Cobb. Útlægan flóttamann frá Bandaríkjunum með morðákæru yfir höfði sér. Hann sérhæfir sig í því að brjótast inn í huga fólks á meðan það sefur, ryðja sér leið inn í drauma þess, á meðan varnirnar eru veikastar og ræna þaðan leyndarmálum. Innbrot af þessu tagi, sem eiga sér að mestu stað í draumum viðfangsefnisins, eru síst af öllu einfaldari en innbrot í raunheimum þannig að Cobb hefur sankað að sér sérfræðingum á helstu sviðum draumafræða til þess að ná sem bestum árangri í faginu.

Starfið tekur á, ekki síst andlega, og sá böggull fylgir skammrifi að með langvarandi draumaferðum verða skilin milli draums og veruleika stöðugt óljósari í huga draumaþjófanna. Eftir að andlegar flækjur Cobbs rústa bókstaflega draumi mikilvægs fórnarlambs er hann í vondum málum þar til sá sem hann hugðist ræna fær Cobb til liðs við sig. Nema nú á ekki að stela leyndarmáli, heldur fara inn í draumaheim erfingja orkurisa og læða inn hjá honum hugmynd sem mun hafa stórkostleg áhrif á viðskiptaumhverfi orkubraskara.

Þetta á að heita ómögulegt en Cobb tekur verkið að sér enda eru launin ekki af verri endanum, full sakaruppgjöf og tækifæri til þess að snú aftur heim og hitta börnin sem hann saknar heitt og innilega. Hann fær því þungavigtarfólk til liðs við sig og ræðs til inngöngu í drauma ungs auðmanns sem Chillian Murphy leikur með sínum sjarmerandi töktum. Þarna byrjar ballið fyrir alvöru þar sem hugmyndinni verður að planta djúpt í undirmeðvitund viðfangsins og því þarf að kafa djúpt. Fara úr einum draumi ofan í annan og svo aftur en dýpra. Semsagt þrefalt lag af draumum og það sem verra er að drepist maður í draumnum er maður steindauður í alvörunni.

Í draumunum steypir Nolan okkur ofan í geggjaða sjónræna veislu fyrir augað. Við vitum auðvitað öll að í draumum er allt hægt og Nolan fangar þetta draumaraunsæi af mikilli leikni. Ekki spillir svo fyrir að auðmanninum unga virðist tamt að dreyma í spennumyndastíl og því er okkur kastað úr einu spennumyndarumhverfi í annað og alltaf magnast hasarinn eftir því sem dýpra er kafað.

DiCaprio er frábær að vanda, Joseph Gordon-Levitt, Ellen Page, Ken Watanabe klikka ekki heldur. Michael Caine er sjálfum sér líkur, semsagt góður. Sama má segja um Marion Cotillard og svo skýtur þarna gamla brýni Tom Berenger upp kollinum í ansi góðu stuði. Senuþjófur myndarinnar, ef hægt era ð tala um slíkan í þessum frábæra hópi, er  Tom Hardy sem er ferlega fyndinn, töf f og skemmtilegur.

Bíómyndir verða ekki mikið betri en þessi.

Meinlaus lágspenna
Knight and Day

[2]

Roy Miller er ofboðslega klár og flinkur leyniþjónustumaður og er svo snjall í meðferð skotvopna, hnífa sem og slagsmálum með berum höndum að jafnoki hans finnst vart hérna megin grafar. Svikurum í hans röðum tekst að klína upp á Roy röngum sökum um að hann leiki tveim skjöldum þannig að hann er útlægur ger úr klúbbi njósnara.

Ástæðan er sú að Roy hafði komist á snoðir um áform vinnufélaga síns um að ræna nýuppfundinni eilífðarrafhlöðu og selja vondum vopnaframleiðanda. Áður en Roy lagði á flótta undan fyrrum félögum sínum tókst honum að stela rafhlöðunni og séníinu sem fann hana upp þannig að nú leggja bæði leyniþjónustan og vondi vopnaframleiðandinn ofurkapp á að hafa hendur í hári hans.

Á flugvelli rekst Roy, bókstaflega, á bifvélavirkjan þokkafulla June Havens og áður en stúlkan sú veit af er hún komin á kaf í háskalegan darraðardans við her af illmennum þannig að henni er sá illskásti kostur vænstur að hanga með Roy til þess að eiga einhverja möguleika á að halda lífi.

Söguþráður myndarinnar skiptir í sjálfu sér engu máli og er vægast sagt gysinn þar sem hann gengur út á það eitt að Tom Cruise og Cameron Diaz geti hlaupið, flogið eða keyrt á milli skotbardaga og ýktra hasaratriða sem eru öll þau leiðinlega marki brennd, þrátt fyrir íburðinn, að persónurnar eru aldrei í raunverulegri hættu. Sennilega vegna þess að Roy er klárari en allir hinir og sallar óvinina niður skælbrosandi og reytandi af sér brandara. Í þessu er enginn háski, sáralítil spenna og það versta er að þetta er ekkert sérstaklega fyndið heldur.

Aðstandendur Knight and Day hafa líklega ekkert verið að stressa sig of mikið yfir smáatriðum á borð við styrk handrits, rökrétta söguframvindu og annað slíkt þar sem vinsældir Cruise og Diaz þykja án efa næg trygging fyrir viðunandi aðsókn.

Fylgispekt fólks við þessar Hollywood-stjörnur hefur öllu meira með fríðar snoppur þeirra og meintan kynþokka heldur en leikhæfileika að gera. Maður á svosem auðveldara með að skilja þetta í tilfelli Diaz þar sem hún er ákaflega eðlileg og hugguleg dúlla þannig að erfitt er að þykja ekki pínu vænt um hana. En svo ég haldi nú áfram að vera ófagmannlegur gagnrýnandi og segi bara það sem mér finnst hreint út þá þykir mér með mestu ólíkindum hvernig fólk nennir að púkka upp á Tom Cruise, jafn staðlaður, litlaus og leiðinlegur sem hann er. Hann hefur vissulega átt sínar stundir og sýnt tilþrif en vinsældir hans og launakröfur eru samt sem áður ekki í neinu samræmi við hæfileika hans og getu.

Þar sem eitthvert réttlæti fyrirfinnst nú samt í heimi hér hefur gengisvísitala Cruise farið heldur niður á við á undanförnum árum og ef til vill liggur þar skýringin á því að hann kjósi að leika á jafn dauðhreinsaðri, auðmeltri og aðgegnilegri ekki-spennumynd og Knight and Day er.

Aðdáendur Cruise og Diaz verða samt varla fyrir vonbrigðum enda vita þeir upp á hár hvað þeirra fólk kann og getur. Aðrir þurfa ekkert að hafa fyrir því að halda sér vakndi en þeir verða heldur ekki fyrir neinum hjartsláttartruflunum af völdum spennu eða hláturs.

Hroðberi
Boðberi

[1]

Ísland er í tómu tjóni. Drungi djúprar kreppu svífur yfir vötnum og af samhengi myndarinnar og því hvernig hún kallast á við samtíma sinn má ætla að ástandið megi skrifa á sóðalegan reikning siðspilltra auðmanna, spilltra stjórnmálamanna og seðlabankastjóra sem sleit barnsskónum í helvíti við fótskör sjálfs Kölska.

Í svona ástandi hlýtur eitthvað að bresta og því látum við okkur nú ekkert bregða við það að grímuklæddur gaur taki sig til og fari að freta á peningamógúla og spillingargemsa úr haglabyssu. Og þar sem kvikmyndin Boðberi er öll svo ofsalega djúp og útpæld þá eru þessar árásir vægast sagt táknrænar þannig að refsivöndurinn sjálfskipaði hefur fjarlægt höglin úr skotunum sem hann notar og dælir frekar blöndu glerbrota og mannaskíts í fórnarlömb sín. Þeir sem verða fyrir þessum voðaskotum geispa því ekki golunni á staðnum heldur hanga milli heims og helju af völdum blóðeitrunar á sjúkrahúsi.

Á meðan grímumaðurinn gengur óhreint til verks fáum við að kynnast pípulagningarmanninum Páli Baldvini sem dreymir um að verða listmálari. Daglegt líf hans fer aðeins úr skorðum þegar borgaralega klæddir guðs englar í líki Móeiðar Júníusdóttur og Péturs Einarssonar taka að birtast honum í tíma og ótíma og troða ofan í hann með teskeiðum einhverjum þeim súrasta bræðingi nýaldarbulls og biblíukjaftæðis sem maður hefur nokkru sinni þurft að bragða á. Í kreditlista myndarinnar í lokin kemst maður svo að því að þessi klisjusúpa sem myndin byggist á er sótt í heimspekivaðal Gunnars Dal og þá prísar maður sig svo sem sælan fyrir að þetta teygði sig þó ekki yfir nema tvo tíma (sem virtust að vísu vera fjórir meðan á því stóð).

Boðberi er greinilega gerður af nokkrum vanefnum sem sést best á því að tæknilega fer hún með mann svona um það bil 20 ár aftur í tímann í íslenskri kvikmyndagerð og án þess að á nokkra íslenska mynd sé hallað þá er þessi án efa sú verst leikna hingað til. Þetta þarf þó alls ekki að skrifast alfarið á nóboddí-ana sem eru í forgrunni þar sem handritið minnir helst á eitthvað sem gæti hafa verið talað tungum á samkomu hjá Krossinum að því gefnu að allir væru á sýru.

Samtölin eru svo hryllilega skrifuð að maður tekur á köflum út líkamlegar þjáningar í hreinni meðvirkni. Og þetta er svo slæmt að þungavigtarmaður og alvöru leikari eins og Gunnar Eyjólfsson er eins og illa gerður hlutur þegar hann þarf að koma þvælunni frá sér. Í raun er minn góði kunningi Þráinn Bertelsson eini maðurinn sem heldur hér haus í örsmáu hlutverki ráðherra í ríkisstjórn. Leikur hans ber svo af að maður á þá ósk heitasta að hann vippi sér bak við myndavélina og reddi þessu.

Þá hefði Boðberi kannski getað orðið gamanmyndin Nýaldarlíf en maður er einhvern veginn alltaf að bíða eftir því að það komi á daginn að menn séu hér að grínast með þessa skelfilegu trúboðsþvælu sem gengur út á að hér gangi djöflar lausir, rétt eins og Móa og Pétur, og þeir hafi eitrað sálir okkar allra með flatskjáafíkninni sem setti Björgólf Guðmundsson og heila þjóð á hausinn. Því miður virðist fólki hér vera fúlasta alvara og fyrir utan tvo til þrjá meðvitaða brandara virðist myndin aðallega vera fyndin alveg óvart.

Allt er gott sem endar vel
Toy Story 3

[5]

Líf kvikmyndagagnrýnenda og bíógesta almennt yrði miklum mun skemmilegra ef jafn mikill metnaður væri alla jafna lagður í handrit og söguþráð leikinna kvikmynda og snillingarnir hjá Pixar gera í tölvuteiknimyndum sínum.

Að ólöstuðum öllum þeim ágætis myndum sem Pixar hefur gert þá eru Toy Story-myndirnar það allra besta sem komið hefur úr þeirri smiðju og þessi nýjasta hefur allt til að bera sem góð bíómynd þarf. Hún er spennandi, fyndin, pínu sorgleg en fyrst og fremst alveg ógeðslega sætur óður til æskunnar og mikilvægi þess að kunna að leika sér. Og svo má auðvitað ekki gleyma því að boðskapur þríleiksins alls er að sá sem á góðan vin er aldrei einn og að þegar vinir standa saman eru þeim allir vegir færir.

Þegar hér er komið við sögu hafa þeir Viddi og Bósi ljósár legið ónotaðir í kistli ásamt öllum hinum leikföngunum hans Andys. Drengurinn er orðinn 17 ára og hefur um annað að hugsa en gamla dótið sitt þótt hann hafi enn ekki getað fengið sig til þess að skilja alveg við gömlu leikföngin. Þegar hann fer í heimavistarskóla er ætlunin að geyma leikföngin uppi á háalofti en fyrir röð mistaka enda þau á yngstu deildinni á leikskóla og eins og gefur að skilja bíður þeirra þar vítisvist innan um snarofvirk ungabörn.

Þeir sem þekkja dótið hans Andys geta auðvitað sagt sér það sjálfir að Viddi og félagar láta ekki bjóða sér svona vitleysu og þau eru fljót að skipuleggja mikinn flótta. Illu heilli ræður bitur og illgjarn bangsi ríkjum á leikskólanum og hann og kónar hans vilja fyrir alla muni halda vinum okkar í prísundinni. Þessir gaurar eru alveg hreint fyrirmyndarskúrkar og bjóða upp á heilmikið fjör með nettu hryllingsívafi þegar leikfangafylkingunum lýstur saman.

Sem fyrr eru það Viddi og Bósi sem leiða myndina og hersinguna áfram og geimgæinn nær að skyggja á kúrekann þegar hann missir vitið tímabundið og verður aftur bjáninn sem hann var í byrjun fyrstu myndarinnar.

Annars eru senuþjófar þessarar myndar þau Ken og Barbie sem fella saman hugi eftir að þau átta sig á að þau voru “gerð fyrir hvort annað”. Michael Keaton fer á kostum þegar hann talar fyrir Ken og þetta rómaða par á alla bestu brandarana í myndinni.

Leikararnir sem ljá persónum raddir sínar eru hver öðrum betri. Tom Hanks og Tim Allen eru traustir í aðalhltverkunum og meistararnir Don Rickles (Herra Kartöfluhaus), Wallace Shawn (risaeðlan Rex) og John Ratzenberger (sparigrísinn) eru svo dásamlegir að maður gæti hlustað á þá sólarhringum saman.

Í draumi sérhvers barns...
A Nightmare on Elm Street

[2]

Kyndarinn Freddy Krueger er eitt best heppnaða óféti sem stokkið hefur úr kolli hryllingsgúrúsins Wes Craven. Allir sem komnir eru til vits og ára eiga að vita að Freddy er afmyndaður af brunasárum, afturganga sem á ferlega flottan hanska með hnífum í stað fingra sem hann notar til þess að sálga ungmennum í draumum þeirra. Aðal bömmerinn er svo sá að ef Freddy drepur mann í draumi vaknar maður ekki aftur.

Freddy byrjaði að hrella táningana á Álmstræti árið 1984 og hefur á löngum ferli sallað sofandi umgmenni niður í ótal framhaldsmyndum. Hann hefur meira að segja tekist á við Jason Voorhees úr Friday the 13th-bálknum í sérstakri mynd og á tíu ára afmæli Álmstrætis martraðamyndanna árið 1994 gerðist Freddy í meira lagi póst-módernískur, fann sér leið inn í raunveruleikan og fór að hrella fólkið sem gerði fyrstu Elm Street myndina, meðal annars þau Heather Langenkamp og sjálfan Wes Craven.

Það má því segja að í raun sé búið að reyna flest til þess að halda Freddy gangandi og græða á þessu harðhenta illfygli. Ef minnið svíkur mig ekki voru fyrsta og fjórða myndin áberandi bestar en restin meira og minna hefðbundið unglingahryllingsrusl. Maður nennti samt alltaf að sitja undir þessu, aðallega vegna þess að Robert Englund var alltaf hress í hlutverki Freddys.

Þessi nýja mynd er eiginlega frekar endurvinnsla en endurgerð á fyrstu Freddy-myndinni.

Nokkur kunnugleg atriði koma nánast óbreytt fyrir en miklu meira púðri er eytt í sköpunarsögu Freddys en í báðum þesum myndum drepur hann í svefni krakka foreldra sem brenndu hann lifandi nokkrum árum áður. Í hugum foreldranna, sem tóku lögin í eigin hendur, var Freddy fyrst og fremst barnamorðingi fyrir 26 árum. Nú er ofuráhersla lögð á Freddy sem barnaníðing sem á skilið að brenna. Því má segja að valið á leikaranum í hlutverk Freddys að þessu sinni sé nokkuð sjálfsgat. Jackie Earle Haley lék barnaníðing af óhugnanlegu næmi í Little Children fyrir fjórum árum og þar fyrir utan var hann hörkufínn sem Rorschach í Watchmen en þar var hann meira og minna hulinn grímu eins og í þessu tilfelli.

Þrátt fyrir öll sín fyrri störf tekst Haley ekki að blása sama lífi og óhugnaði í Freddy og Englund áður. Haley er vitaskuld miklu, miklu betri leikari en Englund en vantar allan húmor og galsa sem Englund hafði. Haley er vitaskuld fínn í þeim atriðum þar sem Freddy tælir börn áður en hann verður að martraðarskrímsli en missir tökin þegar hann fer í röndóttu peysuna.

Leikstjórinn klúðrar svo því sem eftir er, myndin nær hvorki upp óhugnaði né spennu og draumadrápin eru allt of snyrtileg miðað við hryllingskröfur vorra tíma.

Þeir sem vilja kynnast Freddy af einhverju viti ættu að leita Freddy uppi á betri myndbandaleigum þar sem hér er ekki dregin upp rétt mynd af þessu hryllingsíkoni.

Fyrsta flokks lið fellur um deild
The A-Team

[3]

Sjónvarpsþættirnir um úrvalsmálaliðana í The A-Team nutu talsverðra vinsælda á níunda áratug síðustu aldar en á Íslandi tengja sjálfsagt flestir þættina við vöðvatröllið Mr. T sem fór mikinn í þáttunum með hanakamb og skrítið skegg. Hann er annars frægastur fyrir að hafa lamið Stallone í kássu í Rocky III.

Þessir fornfrægu sjónvarpsþættir hafa nú öðlast framhaldslíf í bíó í þessarri þvottekta sumarmynd þar sem ekkert vantar upp á fjör, sprengingar og hasar en því miður eru herlegheitin hálf sálarlaus og myndina vantar alveg neistann sem skilur frábærar hasarmyndir frá miðjumoði og meðalmennsku.

Sá góði maður og fíni leikari Liam Neeson fer fyrir A-liðinu í hlutverki hins eitilharða Hannibals. Þessi margrómaða fjögurra manna herdeild lendir, eftir um það bil áttatíu vel heppnaða leiðangra, í bölvuðu rugli þegar vondir CIA-menn og gráðugir einkahermenn svíkja strákana okkar og klína á þá upplognum sökum. Þeim er þá vísað úr hernum með skít og skömm og stungið í steininn. Ekkert fangelsi er þó nógu ramgert til þess að halda honum Hannibal sem er kominn á stjá fljótlega og smalar sínum mönnum saman í frækilegan hefndarleiðangur.

Svo óheppilega vill til að rauði þráðurinn hér er nánast nákvæmlega sá sami og í The Losers sem gengur einnig í kvikmyndahúsum þessa dagana. Þetta er hálf vandræðalegt og í raun skilur fátt annað þessar myndir að nema að leikararnir eru almennt betri í The A-Team og sjálfsagt hefur eitthvað fleiri milljónum dollara verið eytt í þær flugeldasýningar sem hér eru í boði.

Liam Neeson skilar sínu með prýði eins og við var að búast og ljær myndinni um leið ákveðinn virðuleika. Bara vegna þess að hann er svo flottur. Restin af genginu er alveg nógu svöl og sjarmerandi til þess að maður nenni að fylgja þessum gaurum alla leið til enda þessarar innantómu og fyrirsjáanlegu baráttu A-liðsins við að hreinsa nafn sitt og öðlast fyrri virðingarsess innan hersins.

Myndin er löng en ekki langdregin en samt ekki nógu öflug til þess að maður hrífist með og gleymi stund og stað. Þá vantar alveg alvöru hápunkta með tilheyrandi gæsahúð og endirinn er grútmáttlaus og í lausu lofti og felur í sér að nái þessi mynd að græða nóg verði komið framhald innan skamms.