« I don´t care wheather you´re busy, but I´m bored!!! | Main | New year, new stress and a new engagement »

Back in the games!!!

Hey, fyrst ég er að blogga svona mikið langar mig að deila með ykkur mjög góðum tölvuleik fyrir PlayStation 2. Hann heitir: Batman Begins. Hann er bannaður innan 16 ára, en ég læt engan viðvörunarmiða stoppa mig!!!The game´s to good for that!

Hinsvegar er það merkileg saga á bak við það hvernig hann komst í mínar hendur...Jafnvel þrátt fyrir að ég hafi áhugann og reynsluna til að vilja spila bannaðan tölvuleik hef ég ekki beint fjölskylduna sem vill eyða peningum til að redda mér slíku, en...

...hann faðir minn fékk hann frá Skífunni held ég, sem kynningareintak svo að hann gæti skrifað um hann. Pabbi hefur ekki allt of gaman af nýjum tölvuleikjum, og bað mig að prófa hann. Ég gerði það strax, og komst að því að þessi tölvuleikur er mjög nákvæmur. Það tók mig allan þann tíma til að "mastera" allar tæknirnar sem ég tók mér í að vinna fyrstu þrjú borðin. Síðan hélt ég bara áfram að spila, og var farið að finnast hann bara ágætur...síðan kom þetta djöfulsins bílaborð, og þó að tölvuleikjaspilun sé mér í blóð borin er ég hræðilegur driver, og við skulum þakka fyrir að þessi niðurstaða mín sé komin af áhrifum tölvuleikja, en ekki "real life-driving"!!!!!!!Ég reyndi að vinna það örugglega 500x en ekkert gekk, það var allt mjög tricky, og ég var ekki að ná þessu akkúrat núna. After a week of trying endaði það þannig að þessi tölvuleikur fékk sömu meðferð og allir aðrir tölvuleikir sem ég festist í fá; Hann fór í hulstrið, inní skáp og kom ekki aftur út....fyrr en 20.des ('05).

Það er nefnilega þannig með mig og tölvuleiki: Ég festist í þeim, tek pásu á þeim í smá tíma, (ca 2 vikur) gleymi þeim vegna annríkis, (í ca 2-4 mánuði) og svo byrja ég á þeim eftir allan þennan tíma...þá virkar allt strax, ég kemst miklu lengra og jafnvel vinn þá eftir smá tíma.

Það var einmitt það sem gerðist 20.des 2005, ég kom heim í innilega góðu skapi með vetrarvitnisburðinn minn, opnaði hann, og geislaði af ánægju yfir einkunnum mínum, og þegar ég hafði ekkert að gera gekk ég að sjónvarpinu, og þegar ég rak augun í dvd magnarasnúrurnar, hætti ég allt í einu ósjálfrátt við að setja "Multimedia playerinn" í samband setti ég í staðinn PlayStation 2 í samband. Það var bara einn leikur sem stóð til um að fara í, leikur sem ég stoppaði í útaf fáránlegu bílaborði fyrir fjórum mánuðum; Batman Begins.

Til að gera mjög langa sögu nokkrum orðum styttri þá vann ég bílaborðið "erfiða" í annari tilraun og hélt auðvitað áfram. Ég komst alltaf lengra og lengra, og mér fannst leikurinn alltaf skemmtilegri og skemmtilegri. Ég hætti aldrei að spila nema til þess að borða og kannski sækja bróður minn í skólann, svo skemmtilegur var hann orðinn, og ég varð mjög spennt fyrir því að hafa kannski einhvern tölvuleik til að hanga í allt aðfangadagskvöld...en auðvitað rættist mín versta martröð, og ég kláraði hann 22. des, því miður hafði ég aldrei getað hætt að spila og...*sigh*

En, let´s be optimistic, ég náði að spila alla leið til enda alveg æðislegan tölvuleik, þar sem persónurnar eru svo vel teiknaðar að þær eru flottari en í bíómyndinni, þar sem verkefnin og þrautirnar voru æðislega spennandi og faldar allsstaðar í umhverfinu. Það hljómar auðvitað eins og það sé alveg ómögulegt að finna þær eins og í svo mörgum öðrum leikjum, en í þessum leik er alltaf beitt sérstökum myndmálsbrögðum (sem ég kannast að nokkru leiti við vegna þess að ég er að læra kvikmyndun) til að highlight-a öll atriðin og þú sérð þau strax hálf ósjálfrátt. Þannig eiga tölvuleikir að vera!!!Og svo eru líka allir hlutirnir sem á að gera svo skemmtilegir, svona hlutir sem er alveg hægt að gera í alvörunni en þú færð bara aldrei tækifæri til þess, eins og klifra utan á húsum, á pípum og svölum, og það sem er sérstaklega mikil snilld er þessi hugsun í leiknum: ,,Enemies with guns are the most dangerous. Always attack them first. If you run you will be discovered easily. Stealth is you´re greatest allie''. Einfaldlega er það sem þú átt að gera að forðast að óvinir þínir viti af návist þinni þar til þeir óttast þig sem sjálfan dauðann. Óvinir með byssur eru auðvitað mjög hættulegir og þá verður að taka út með því að læðast aftan að þeim og rota þá hljóðlaust. Hinsvegar, ef margir byssu-kallar eru saman í hóp gengur þetta ekki, which brings me to the second important thing: ,,Use you´re environment to scare you´re enemies. By doing so, they will drop their guns.´´ Og það er þá sem þú getur leyft þeim að sjá þig, farið til þeirra og byrjað ótrúlega skemmtilegan og ofbeldisfullan bardaga!!!(I really like that!!!The fighting techniques are so cool!!!!!).

Svo er það líka svolítið sérstakt með mig hvað ég lifi mig mikið inn í leikina (ef þeir eru góðir!). Þegar ég spila þennan leik verð ég Batman og mér líður eins og Batman. Ég veit líka að ég er svolítið evil, en í þessum leik áttu líka að nýta hræðslu mjög mikið. Þá, eins og ég sagði áðan, ef að vondu kallarnir með byssurnar eru í stórum hópum þarftu að hræða þá svo að þeir missa byssurnar og síðan geturðu slegið þá niður með skemmtilegum fantabrögðum í spennandi slagsmálabardögum.

Fyrst er ekkert "big deal" hvernig þú átt að hræða þá, bara eins og að láta pípur fara að blása út...um...(what´s it called in Icelandic again?!)gufu, og að gera einhvern hávaða, en seinna færðu virkilega að hræða þá!!!Í eitt skipti þegar þú áttir að sprengja stafla af eldfimum tunnum til að hræða þá varð sprengingin svo öflug að hálf ótraustir pallarnir sem mennirnir stóðu á hrundu niður í stöflum með ótrúlegum látum og má nærri geta að þeir næstum trylltust af hræðslu. Það gerðist svo seinna mjög oft að þú áttir að hræða þá svona hressilega, og alltaf þegar það gerðist varð ég svo ótrúlega ánægð, og mér fannst svo gaman að svífa niður að þeim og berja þá alla í klessu meðan þeir voru svona gasalega hræddir við mig. (I recommend trying that. Það er bara svo fullnægjandi!!!)Á þeim tímum þegar ég var að spila mátti heyra upphrópanir frá mér eins og: ,,AHAHAHAHAAA, SJÁIÐ HVAÐ ÞEIR ERU HRÆDDIR VIÐ MIG!!!!!'' , ,,HEH HEH HEH....I´M SO SCARY!!!!´´ og ,,NICE...´´

Ummm...jæja að lokum vil ég bara segja að ég skemmti mér mjög mikið við spilun þessarar leikjar og ég ráðlegg hverjum þeim sem á pening og vantar nýjan tölvuleik en veit ekki hvern hann á að kaupa, að ná sér í eintak af þessum einstaka kraftaverkaleik: Batman Begins!!!

P.S.

Ég veit að ég hljóma mjög brjáluð og ill í þessari færslu, en please...don´t get the wrong idea. I haven´t done anything illegal!!!...at least not anything that´s evil...

Post a comment

(If you haven't left a comment here before, you may need to be approved by the site owner before your comment will appear. Until then, it won't appear on the entry. Thanks for waiting.)