New year, new stress and a new engagement
HALLÓ HALLÓ, HAPPY NEW YEAR!!!!!!!!!!!!!!
Ég biðst velvirðingar á því að ég hef verið svona ódugleg við að blogga á þessu gamla ári, but that´s about to change. Þetta voru virkilega spes áramót hjá mér by the way!!!Fyrir það fyrsta var ég ekki hjá honum föður mínum eins og ég hefði átt að vera, but I take comfort in að á næsta ári verðum við með föðurfjöskyldunni, og verður þá skotið mikið upp og horft á!!!Sem er einmitt það næsta skrýtna við þessi áramót hjá mér. Það er nefnilega svo að þegar ég var lítil kenndi pabbi mér hvað flugeldar væru dýrir, og hvað sumt fólk væri svo brjálað í að sprengja þá að það eyddi þúsundum, jafnvel milljónum króna í hina glæsilegustu flugelda til að sprengja. En því stærri flugeldarnir eru, því meiri skaði hlýst af þeim, og mjög erfitt er að njóta þess að horfa á þá sjálfur. Allt upprá því höfum ég og faðir minn verið sammála því að það er miklu betra að standa bara á þessum einstaklega góðu svölum okkar þar sem að við höfum view yfir ALLA flugeldana sem skotið er upp í Vesturbænum, og á Álftanesi af þriðju hæð, og horfa á alla hina skjóta upp, og sprengja sýna peninga. (Það er auðvitað svolítið öðruvísi hjá okkur, það eru ekki allir sem hafa vel staðsettar svalir á efstu hæð í stórri blokk með fullkomið view yfir allan Vesturbæinn á gamlárskvöld!en það skýrir af hverju ég er ekki vön miklum flugelda "uppsendingum", hinsvegar er ég háð flugelda "uppsendingaáhorfi") Ég veit ekki hvort að þið considerið það "evil" af mér að segja þann sannleika að hjá mér er ekki til fallegri sjón en milljón flugeldar í Vesturbæjarloftinu. : )
Þriðja, og síðasta atriðið var nokkuð sem kom öllum á óvart.
Nýlega frétti ég að frænka mín hún Júlía var að hitta mann sem heitir Gunnlaugur (alltaf kallaður Gulli). Hann hef ég líka hitt nú nokkrum sinnum áður, og hann er fínn náungi. Og seinna þessi áramót, komst ég að því að á meðan að ég hafði flúið frá flugeldasprengingunum frammi á plani með litla bróður minn aftur inn til að sjá nýja árið koma í sjónvarpinu, (en það er hefð í minni fjölskyldu að gera það, og ég var ekki tilbúin til þess að ignora það) leiddi Gulli Júlíu afleiðis og gaf henni fínan demantshring og bað hennar, on the strook of midnight. : O!!!
Seinna þegar allir voru komnir inn og voru að skála fyrir nýju ári kom tilkynning frá Júlíu:,,Já, svo vil ég bara bjóða öllum hérna í brúðkaupið okkar næsta sumar...´´
I am shocked, SHOCKED!!!!!!well....maybe I´m really not that shocked...en samt!!!!!!!!Svo fóru auðvitað allir að klappa og bjóða þeim til hamingju (og þar á meðal í stórum hlut ég!) Vá, en frábærlega skrýtið....alla mína ævi hefur Júlía verið ein lítil skemmtileg stelpa...öh, anyway!!!Ég fékk hnút í magann...hvaða sparifötum á ég að vera í!!??(ÉG GET EKKI VERIÐ Í KJÓL!!!!!!!)Ah...*sigh* ætli ég neyðist ekki til að hafa áhyggjur af því seinna, nú er að byrja nýtt, áhrifaríkt ár hjá mér og fullt af nýjum hlutum til að hafa áhyggjur af; Ný önn að byrja í Hagaskóla, einn tími eftir í myndlist til að klára myndbandið, ný önn að byrja í karate, nýtt spennandi verkefni með vinkonum mínum er í vinnslu, mamma vill að ég búi til eitt æðislega fiendish plan to receive world domination, ég þarf að upplifa það að vera með þeim fáu sem fermast ekki (ekki að það sé eitthvað slæmt!!!!!!!!!!!), og svo að lokum þarf ég að finna með einhverjum spariföt fyrir brúðkaupið, sem verður örugglega mjöög challenging, þar sem að ég og móðir mín erum critically ósammála um klæðaburð minn.
Eeen það verður ágætt að komast í brúðkaup aftur enn eina ferðina. Það hef ég bara gert tvisvar áður, en í bæði skiptin var ég of ung til að þekkja hvernig upplifun það er eiginlega...plus....it´s a whole new wedding!!!!!!!!!!!!!!!!!!!: D : D : D : D ; ) ; ) ; )
Jæja, allavega gleðilegt 2006 everyone!!!! ; )