Föstudagur, 02. september 2011
Danski glæpasagnahöfundurinn Sara Blædel nýtur mikilla vinsælda í heimalandinu. Hún var vinsælasti höfundur landsins, að mati danskra lesenda, árið 2009 og það sama ár varð hún efst í vali lesenda á rithöfundi ársins hjá Søndagsavisen – með yfirburðum.
De Niro og Statham ekki leiddir eins og sauðfé í réttir
Föstudagur, 26. ágúst 2011
Sigurjón Sighvatsson keypti fyrir sjö árum kvikmyndaréttinn að bókinni The Feather Men eftir ævintýramanninn Sir Ranulph Fiennes sem hefur meðal annars þjónað í sérsveit breska hersins, SAS. Sigurjón lauk nýlega tökum á spennumyndinni The Killer Elite sem byggð er á bókinni og skartar ekki ómerkari mönnum en Jason Statham, Robert De Niro og Clive Owen í aðalhlutverkum.
» meira
|
|
 |
 |
Fimm skemmtilegustu þættirnir á ÍNN
Föstudagur, 22. júlí 2011
Sjónvarpsstöðin ÍNN er kynlegur kvistur í íslenskri fjölmiðlaflóru. Þar ræður ríkjum sjálfur Ingvi Hrafn Jónsson, meistari ljósvakans, sem kynnti stöðina til leiks á sínum tíma sem Íslands nýjasta nýtt en til þess vísar skammstöfunin (ÍNN). Samkvæmt heimildum Fréttatímans úr innsta hring verður allt að gulli í höndum Ingva Hrafns og sjálfum sér samkvæmur bruðlar Ingvi Hrafn ekki í íburð.
» meira
|
|
 |
 |
Stoltir kverúlantar og grjóthart baráttufólk
Föstudagur, 24. júní 2011
Óhætt er að segja að með bloggi, spjallþráðum og athugasemdakerfum vefmiðla hafi orðið bylting í samfélagsumræðunni þar sem allir sem vilja leggja orð í belg hafa í raun fengið rödd. Um þessar mundir skapast helst fjörugar umræður á stórum vefsvæðum eins og DV.is, Moggablogginu og Eyjunni.
» meira
|
|
 |
 |
Syngur sitt síðasta vers saddur lífdaga
Mánudagur, 30. maí 2011
Rithöfundurinn Sigurður A. Magnússon hefur komið víða við á 83 ára ævi. Hann er einn atkvæðamesti bókmenntaþýðandi þjóðarinnar. Hann var löngum á faraldsfæti og eyddi drjúgum tíma lífs síns í að efla tengsl Íslands og Grikklands. Heilsan leyfir honum ekki lengur ferðalög en hann segist dvelja sáttur á Íslandi þar sem hann sé kominn á fremsta hlunn með að „syngja sitt síðasta vers“, vongóður um að „eitthvað af framlagi mínu til íslenskrar menningar hafi átt erindi við samtímann og eigi sér kannski einhverja lífsvon“.
» meira
|
|
 |
 |
Vaknað hjá Angelinu
Þriðjudagur, 15. desember 2009
Það fyrsta sem ég geri þegar konur fara frá mér, en það gerist með mjög reglulegu millibili, er að ég rýk til og sæki tvö veggspjöld og hengi upp yfir rúminu mínu. Annað er með Angelinu Jolie í þröngum og fáum herklæðum í hlutverki hins margrómaða og munúðarfulla grafarræningja Löru Croft. Hitt skartar Jessicu Alba í gervi súlustúlkunnar Nancy Callahan úr Sin City.
» meira
|
|
 |
 |
Hættiði þessu væli
Sunnudagur, 07. desember 2008
Skrifaði þessa grein fyrir Nýtt líf fyrir einhverjum vikum. Nú eru allir farnir að tala um uppbyggingu og nýtt og betra Ísland sem er laust við spillingu og allan þann viðbjóð sem hefur grasserað hér áratugum saman. Sýnist vera alveg meinlaust að dusta rykið af þessu. Ég er auðvitað ekki jafn djúpur og pældur og liðið í Silfri Egils en mín kenning er einfaldlega sú að til þess að byggja upp þurfum við eiginlega ekki að gera neitt annað en hætta að væla.
» meira
Óður í dökkhærðu konurnar
Laugardagur, 27. september 2008
Þetta er ekki bloggfærsla heldur heillangur textahlemmur úr Nýju Lífi tileinkaður dökkhærðum konum sem gæða tilveruna lífi með því einu að vera til. Misnota allar leiðir til þess að bera út þennan boðskap sem felur vitaskuld í sér heilagan sannleik.
» meira
Orðræða vitleysinganna
Mánudagur, 30. júlí 2007
Áhrifamáttur vitleysinga sem keyrðir eru áfram af yfirþyrmandi athyglissýki er orðinn slíkur að öll vitræn umræða um menn og málefni er orðin að botnlausum kjaftavaðli og rakalausu bulli sem aldrei skilar óbrjálaðri niðurstöðu.
» meira
Bourne þá og nú
Mánudagur, 30. júlí 2007
Árið 1980 rak minnislausan mann á land í Miðjarðarhafsfjöru í spennusögunni The Bourne Identity eftir Robert Ludlum. Minnisleysi mannsins var rakið til skotsárs á höfði hans en vopnfimi og snerpa í slagsmálum, auk óljósra minningarbrota, sannfærðu hann hægt og rólega um að hann væri í raun Jason Bourne, stórhættulegur leigumorðingi.
» meira