»  skrif  »  Hátt hreykir...

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Hátt hreykir...
Föstudagur, 17. nóvember 2000
birt á www.strik.is/pressan

Miðvikudaginn 15. nóvember sl. stóð leitin að Einari Erni Birgissyni sem hæst og ótti um að glæpsamlegt athæfi lægi að baki hvarfi hans stigmagnaðist. Ótrúlegur fjöldi fólks hafði komið að leitinni að Einari og almenningur fylgdist með málinu af athygli og krafan um öran og traustan fréttafluttning af framvindu mála var sterk. Það var þó síður en svo auðvelt að fylgjast með atburðarásinni, ekki síst fyrir tilstilli Internetsins, en það hefur sjálfsagt aldrei leikið jafn dramatískt hlutverk í fréttamáli á Íslandi áður. Rakalaus kjaftagangur og slúður gekk manna í millum með tölvupósti frá morgni til kvölds og útgáfurnar af málinu voru á köflum orðnar ansi margar og mis reyfarakenndar og uppruni sumra sagnanna eru öllum hulin ráðgáta þ.á.m. lögregu og leitarfólki, en engin þarf að efast um það að þessi ótrúlegi kjaftagangur á Netinu hefur síst verið til þess að bæta líðan aðstandenda og vina Einars sem biðu milli vonar og ótta, en ein kjaftasagan af líkfundi í Grindavík komst í loftið á einhverri útvarpsstöðinni á miðvikudagseftirmiðdegi, mörgum klukkustundum áður en Einar fannst.

Fréttahaukar voru út um allt að reyna að greina staðreyndir frá bulli, enda skylda fréttamiðla að reyna að birta jafnóðum staðreyndir í slíkum hvirfilbyl kjaftasagna sem geysaði á miðvikudaginn. Fréttaþyrstir og forvitnir Íslendingar sátu við tölvur sínar heima og að heiman, fengu hrúgur af kenningum í tölvupósti og skutust þá jafnharðann inn á netmiðlana til að reyna að fá sannleiksgildi skáldskaparins staðfest.

Þegar atburðir gerast jafn hratt og þarna eiga prentmiðlar og sjónvörp lítinn séns, útvarp og Netið eiga völlinn og staða netmiðlanna er óneitanlega sterk. Vísir.is og Mbl.is gera út á það að vera fyrstir með fréttirnar og flutningur þeirra af tíðindum var ör á miðvikudaginn, en samt var það Pressan á Strikinu sem tók afgerandi forystu og tókst með fáum og markvissum fréttum að leiða daginn.

Aðsókn að öllum þessum miðlum var vitaskuld með mesta móti á miðvikudaginn og fréttaþyrstir lesendur fundu fyrir því að aðgangur að netmiðlunum var tregari en gengur og gerist. Sérstaklega þótti Narfa Vísir.is erfiður viðureignar og þegar lesa átti lengra kom yfirleitt auð síða. Þar fyrir utan vörpuðu fréttirnar yfirleitt engu sérstöku ljósi á málið og þegar dró til tíðinda var Vísir.is ekki að sýna neina sérstaka tilburði umfram aðra, auk þess sem undarleg ritskoðun skaut upp kollinum þar og þessi heimasíða DV kaus að nafngreina ekki Atla Helgason, eins og móðurskipið DV gerði og Pressa Hrafns Jökulssonar hafði gert kvöldið áður. Þessi tepruskapur kom mönnum spánskt fyrir sjónir, þar sem nafn hins grunaða var á allra vitorði og hafði verið í umræðunni hjá þeim gífurlega fjölda fólks sem þátt tók í leitinni að Einari Erni nánast frá upphafi. Þar fyrir utan hafa miðlar undir merkjum FF ekki hikað við það, hingað til, að birta nöfn manna með réttarstöðu grunaðs manns og er þá skemmst að minnast mynd- og nafnbirtingar hins alræmda tannlæknis í stóra dópmálinu. Þá birtingu varði Óli Björn Kárason með kjafti og klóm, enda ekkert athugavert við hana, og DV hélt sínu striki og birti nafn Atla og mynd af honum á baksíðu á miðvikudeginum.

Vísir.is var með sömu frétt á forsíðu sinni, að vísu aðeins breytta, þar á bæ virtust menn hafa fengið ráðrúm til að þurrka út delluna í EIR og rt um að Atli hefði farið með lögreglu um nóttina í árangurslausa leit að líki Einars. Þetta slapp hins vegar í prentsmiðjuna. Gott og vel, leiðréttingar á rugli hljóta alltaf að vera af hinu góða. Hitt var undarlegra að nafn Atla birtist í frétt Vísis.is um stund en hvarf skyndilega og Atli varð "meðeigandinn", eins og margir kæmu til greina, það sem eftir lifði dags.

Þeir sem vildu fá traustar upplýsingar sem snertu málið, leituðu á náðir Pressunnar og gengu afrit af fréttum Pressunnar og tenglar sem vísuðu á fréttirnar í tölvupósti út um allar trissur. Til Moggans sneru menn sér svo þegar sækja átti heilagan og dauðhreinsaðan sannleikan og einhvers staðar á milli var Vísir.is með sinn "öfluga fréttaflutning" og tregan netaðgang. Það er undarlegt að menn þar á bæ berji sér svo á brjóst og telji brennandi áhuga almennings á fréttum, sem eru efst á baugi, hverju sinni, vera einhvern sérstakan gæðastimpil á störf sín eða raunhæfan mælikvarða á vinsældir.

Þennan dag leitaði almenningur upplýsinga á öllum miðlum og fáir telja Vísi.is hafa riðið sérstaklega feitum hesti á miðvikudaginn. Það breytir því þó sem betur fer ekki að reglulega gerist eitthvað sem allir verða að fylgjast með. Jörð skelfur, eldur gýs og ógæfumenn bana kunningjum sínum, og þá er auðvitað best að vera sporgöngumaður annarra og belgja sig svo út af eigin ágæti eftirá.


| 14:34 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff