»  skrif  »  maí 2001

skrif
maí 2001

a long time ago...
Enn og aftur svindlað á Íslendingum
Laugardagur, 12. maí 2001
birt á www.strik.is/pressan

Eina ferðina enn var svindlað á okkur Íslendingum í Eurovision og við deildum neðsta sætinu með Norðmönnum, þrátt fyrir að hafa aldrei sent jafn gottt lag og glæsilega flytjendur til að leggja álfuna að fótum okkar. Hvað klikkaði eiginlega? Hvernig getur frábært popplag, samið af markaðsmanni og Skítamóralstextahöfundi, sem lagði sjálfan Mörð Árnason í málverndarglímu, hafnað á botninum?

Svarið liggur í augum uppi og þó enginn hafi boðið mér í Evróvisjónpartý og ég hafi því ekki heyrt neinar nýjar samsæriskenningar um það hvernig þessi og hin þjóðin sniðgekk okkur út af þessu og hinu, þá held ég að það sé ekki hægt að túlka þessa ömurlegu niðurstöðu (að deila botnsætinu með Norðmönnum sem eru heimsmeistarar í Eurovisiontapi) öðruvísi en á þann veg að verið sé að refsa okkur fyrir að vilja ekki vera aðilar að ESB. "Ef þið viljið ekki spila eftir okkar reglum, skulið þið drulla ykkur út af vellinum". Þetta er ábyggilega mórallinn á bak við þetta undarlega tap okkar snilldarlega samansetta TwoTricky dúetts. Mesta furða að sá snaggaralegi stjórnmálaskýrandi Gísli Marteinn Baldursson hafi ekki komið auga á þetta á meðan hann býsnaðist yfir heimsku og tónblindu dómnefnda nágrannalanda okkar.

Það þarf greinilega miklu meira en digurvaxinn markaðsmógúl til að gera Ísland að stórveldi í Evrópu tónlistarinnar, það þarf nefnilega digurvaxinn stjórnmálamann til að gera drauminn um fyrsta sætið að veruleika. Þrýstingur þjóðarinnar á Davíð Oddsson um að koma okkur inn í ESB hlýtur að stóraukast við þessi válegu tíðindi frá Danmörku. Hann hefur eitt ár til stefnu. Napurt og dapurt ár sem við hin notum til að sleikja sárin og pizzusalar og BT leita leiða til að græða geðveikt á einu kvöldi í maí árið 2002. Eurovision markaðsbrellan er nefnilega ónýt í bili.

Annars endist sorgin varla lengur en fram yfir helgi, þar sem lagahöfundurinn frækni verður ekki í vandræðum með að fegra þessa sneypuför. Markaðsmönnum er það nefnilega eðlislægt að hagræða staðreyndum, þannig að þegar upp er staðið "var þetta rosalega tæpt hjá okkur, en við rétt héldum neðsta sætinu".


| 23:20 | föst tilvísun |
Góðæristálsýnin gufar upp
Sunnudagur, 06. maí 2001
birt á www.strik.is/pressan

Krónan er í andarslitrunum, bensínverð er að rjúka upp úr öllu valdi og bráðum fylgir allt annað í kjölfarið. Mikið var segi ég, enda er þetta góðærisþvaður fyrir löngu komið út í algera vitleysu og ég kem ekki til með að sakna þessa góðæris, enda varð ég aldrei var við það. Þetta hefur trúlega, lengst af, bara verið í nösunum á forsætisráðherra og ég skil eiginlega ekkert í góða hirðinum að ljúga svona vitleysu að sauðunum sínum. Það fer nefnilega Íslendingum ekki vel að halda að þeir hafi eitthvað milli handanna, þar sem þeir auka bara umframeyðsluna og kóróna svo vitleysuna með því að versla sér alls konar hlutabréf í Díkódum og Thermóplúsum og skilja svo ekkert í því að í stað þess að eiga sand af seðlum eru þeir allt í einu að fara á hausinn.

Þetta er nú samt ekki versta hliðin á þessu góðærisbulli. Það sem fer mest í taugarnar á mér í þessu öllu er að um leið og atvinnuástandið rétt skánar hverfur gott og traust fólk úr vanmetnu láglaunastörfunum og allar sjoppur, bensínstöðvar og stórmarkaðir fyllast af hysknum unglingum og alls kyns vanvitum. Það er auðvitað óþolandi að fá afgreidda dísilolíu á bensínbíl, smurolíu á vatnskassann, standa við kassann í sjoppunni og bíða endalaust á meðan gelgjan í afgreiðslunni blaðrar út í eitt um ævintýri næturinnar í gemsann sinn án þess að virða mann viðlits.

Allt þetta mun nú heyra sögunnni til. Dabbi þarf bara að finna einhvern hentugan blórabögul til að kenna um ófarirnar og eftir slatta af gjaldþrotum og sjálfsmorðum fer lífið að ganga sinn vanagang; "fagfólkið" fyllir aftur stórmarkaðina, sjoppurnar og bensínstöðvarnar og við förum að láta enda ná saman mánaðarlega með yfirdráttarheimildum, laus við allar grillur um að gull og grænir skógar séu handan við hornið.


| 13:46 | föst tilvísun |
Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff