»  skrif  »  Enn og aftur svindlað á Íslendingum

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Enn og aftur svindlað á Íslendingum
Laugardagur, 12. maí 2001
birt á www.strik.is/pressan

Eina ferðina enn var svindlað á okkur Íslendingum í Eurovision og við deildum neðsta sætinu með Norðmönnum, þrátt fyrir að hafa aldrei sent jafn gottt lag og glæsilega flytjendur til að leggja álfuna að fótum okkar. Hvað klikkaði eiginlega? Hvernig getur frábært popplag, samið af markaðsmanni og Skítamóralstextahöfundi, sem lagði sjálfan Mörð Árnason í málverndarglímu, hafnað á botninum?

Svarið liggur í augum uppi og þó enginn hafi boðið mér í Evróvisjónpartý og ég hafi því ekki heyrt neinar nýjar samsæriskenningar um það hvernig þessi og hin þjóðin sniðgekk okkur út af þessu og hinu, þá held ég að það sé ekki hægt að túlka þessa ömurlegu niðurstöðu (að deila botnsætinu með Norðmönnum sem eru heimsmeistarar í Eurovisiontapi) öðruvísi en á þann veg að verið sé að refsa okkur fyrir að vilja ekki vera aðilar að ESB. "Ef þið viljið ekki spila eftir okkar reglum, skulið þið drulla ykkur út af vellinum". Þetta er ábyggilega mórallinn á bak við þetta undarlega tap okkar snilldarlega samansetta TwoTricky dúetts. Mesta furða að sá snaggaralegi stjórnmálaskýrandi Gísli Marteinn Baldursson hafi ekki komið auga á þetta á meðan hann býsnaðist yfir heimsku og tónblindu dómnefnda nágrannalanda okkar.

Það þarf greinilega miklu meira en digurvaxinn markaðsmógúl til að gera Ísland að stórveldi í Evrópu tónlistarinnar, það þarf nefnilega digurvaxinn stjórnmálamann til að gera drauminn um fyrsta sætið að veruleika. Þrýstingur þjóðarinnar á Davíð Oddsson um að koma okkur inn í ESB hlýtur að stóraukast við þessi válegu tíðindi frá Danmörku. Hann hefur eitt ár til stefnu. Napurt og dapurt ár sem við hin notum til að sleikja sárin og pizzusalar og BT leita leiða til að græða geðveikt á einu kvöldi í maí árið 2002. Eurovision markaðsbrellan er nefnilega ónýt í bili.

Annars endist sorgin varla lengur en fram yfir helgi, þar sem lagahöfundurinn frækni verður ekki í vandræðum með að fegra þessa sneypuför. Markaðsmönnum er það nefnilega eðlislægt að hagræða staðreyndum, þannig að þegar upp er staðið "var þetta rosalega tæpt hjá okkur, en við rétt héldum neðsta sætinu".


| 23:20 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff