Sunnudagur, 06. maí 2001
birt á www.strik.is/pressan
Krónan er í andarslitrunum, bensínverð er að rjúka upp úr öllu valdi og bráðum fylgir allt annað í kjölfarið. Mikið var segi ég, enda er þetta góðærisþvaður fyrir löngu komið út í algera vitleysu og ég kem ekki til með að sakna þessa góðæris, enda varð ég aldrei var við það. Þetta hefur trúlega, lengst af, bara verið í nösunum á forsætisráðherra og ég skil eiginlega ekkert í góða hirðinum að ljúga svona vitleysu að sauðunum sínum. Það fer nefnilega Íslendingum ekki vel að halda að þeir hafi eitthvað milli handanna, þar sem þeir auka bara umframeyðsluna og kóróna svo vitleysuna með því að versla sér alls konar hlutabréf í Díkódum og Thermóplúsum og skilja svo ekkert í því að í stað þess að eiga sand af seðlum eru þeir allt í einu að fara á hausinn.
Þetta er nú samt ekki versta hliðin á þessu góðærisbulli. Það
sem fer mest í taugarnar á mér í þessu öllu er að um leið og atvinnuástandið
rétt skánar hverfur gott og traust fólk úr vanmetnu láglaunastörfunum
og allar sjoppur, bensínstöðvar og stórmarkaðir fyllast af hysknum
unglingum og alls kyns vanvitum. Það er auðvitað óþolandi að fá
afgreidda dísilolíu á bensínbíl, smurolíu á vatnskassann, standa
við kassann í sjoppunni og bíða endalaust á meðan gelgjan í afgreiðslunni
blaðrar út í eitt um ævintýri næturinnar í gemsann sinn án þess
að virða mann viðlits.
Allt þetta mun nú heyra sögunnni til. Dabbi þarf bara að finna
einhvern hentugan blórabögul til að kenna um ófarirnar og eftir
slatta af gjaldþrotum og sjálfsmorðum fer lífið að ganga sinn
vanagang; "fagfólkið" fyllir aftur stórmarkaðina, sjoppurnar og
bensínstöðvarnar og við förum að láta enda ná saman mánaðarlega
með yfirdráttarheimildum, laus við allar grillur um að gull og
grænir skógar séu handan við hornið.