Miðvikudagur, 15. ágúst 2001
birt á www.strik.is/pressan
Ég er blaðamaður og þekki það af eigin raun hversu ömurleg
gúrkutíðin
á sumrin getur verið. Ég hef oft leitað í örvæntingu að
einhverju
sem gæti talist fréttnæmt, þó það sé ekki nema bara til að
réttlæta
það að ég sé yfirleitt í vinnunni frá 1. maí til 1. september.
Klám er sígilt stöff í hallæri og ég hef nokkrum sinnum gripið
til þess en hef þó aldrei séð aumari uppsláttarfréttir um
þetta
umdeilda efni en þær sem skutu upp kollinum a.m.k. á Stöð 2 og
í fréttum RÚV nýlega um að það sé hægt að nálgast klám í sinni
viðbjóðslegustu mynd á Netinu. Fréttamenn, Snorri í
Betel
og fleiri óþolandi vandlætarar ná ekki upp í nefið á sér þessa
dagana af því að það er klám á Netinu og tenglar á slíkt hafi
fundist á tveimur nafntoguðum íslenskum vefsvæðum. Þetta
innantóma
upphlaup og sú tilraun að reyna að gera Fróða og Strikið ábyrg
fyrir því að almenningur á Íslandi geti skoðað klám á Netinu
lýsir
algeru skilningsleysi á eðli Internetsins, mannskepnunnar og
eiginlega
bara lífinu öllu.
Það er klám á Netinu, sei sei jú mikil ósköp
Ég hvorki nenni né treysti mér til að greina Netið, sem slíkt
hérna, en reynum samt aðeins að átta okkur á því hvað við erum
að tala um. Ég ætla að biðja ykkur að fyrirgefa mér, en mér
finnst
alltaf best að nota einfaldanir þegar ég pæli í flóknum hlutum
og ætla þess vegna að ganga út frá nokkrum vel þekktum klisjum
um Internetið: "Internetið er mikilvægasta fyrirbærið í
fjölmiðlun
og mannlegum samskiptum síðan prentvélin kom til sögunnar". "Á
Internetinu má finna allt sem viðkemur mannlegu eðli frá því
háleitasta
til hins lágkúrulegasta". "70% alls þess efnis sem er á
Internetinu
er klám". "Netið er óháð lögum og landamærum". "Í Netheimum er
allt leyfilegt". Bla bla bla...
Þetta vitum við öll enda er búið að hamra á þessu í öllum
fjölmiðlum,
fermingarveislum og heitum pottum síðustu árin. Allt er þetta
satt og rétt en þó um leið helvítis kjaftæði, enda er Netið
margarma
skrímsli sem nær vonlaust er að festa hendur á. Það er
misjafnt
eftir löndum hversu langt menn eru komnir í að setja sér
reglur
um þetta fyrirbæri og yfirvöld út um allan heim standa, þar
fyrir
utan, ráðþrota gagnvart því hvernig skuli framfylgja slíkum
lögum
í Netheimum. Hér heima hefur löggjafinn sýnt þessu lítinn sem
engan áhuga og á meðan stendur lögreglan ráðþrota og hefur
hingað
til ekki séð mikla ástæðu til að aðhafast nokkuð þegar
kverúlantar
og kerlingar úti í bæ rekast á eitthvað sem misbýður þeim á
veraldarvefnum.
Ekki er klám klám ef það er .is
Þetta veit ég af eigin raun þar sem ég hef, eins og fyrr
segir,
nokkrum sinnum gert mér fréttamat úr klámi og Netinu. Þegar ég
var blaðamaður á Visi.is
komst
"Íslenska kynlífssíðan" í fréttirnar þar sem á síðunni var
spjall
þar sem perrar virtust vera að legja snörur sínar fyrir
ólögráða
unglinga í þeim tilgangi að kaupa af þeim kynlífsþjónustu.
Síðan
var skráð undir .com léninu alræmda og því töldu yfirvöld sig
lítið geta aðhafst í málinu. Stígamótakonur vissu harla lítið
um málið og kunnu engin úrræði en urðu voða glaðar að
fjölmiðlar
skyldu sýna málinu áhuga. Eigandi síðunnar sá svo sjálfur sóma
sinn í að loka henni áður en málið gekk lengra. Það eru
sjálfsagt
u.þ.b. tvö ár síðan þetta mál kom upp og síðan þá hafa opnað
a.m.k.
tvær síður undir .is léninu sem opna öfuguggum sama færi og
"Íslenska
kynlífssíðan" gerði. Þetta eru vefirnir Einkamál.is og
Klám.is.
Klám.is hefur þann yfirlýsta tilgang að beina fólki á "góðar"
erlendar klámsíður. Þegar vefurinn opnaði varð svipað upphlaup
í fjölmiðlum og nú þegar það varð uppvíst að Davíð Þór
Jónsson
(áður hinn íslenski Larry Flint en talar nú fyrir
persónur
í barnaþáttunum um Pókemon) hafi slysast til að setja tengil á
grófa klámsíðu frá heimasíðu íslenska klámblaðsins
"Bleikt&Blátt".
Ég tók þátt í fyrra upphlaupinu, sem blaðamaður á Vísi.is, og
hringdi í hina ýmsu aðila; Stígamótakonur vissu enn ekki í
hvorn
fótinn þær áttu að stíga, löggan hummaði og vísaði á
lögfræðinga
embættisins og dómsmálaráðuneytisins, lögfræðingarnir hummuðu
enn meira og vísuðu á grein í hegningarlögum frá 1946, eða þar
um bil. Eigandi Klám.is hló bara og sagðist bara bíða rólegur
eftir löggunni. Hann ætlaði að hringja í mig þegar drægi til
tíðinda.
Síðan er liðið rúmt ár og ekkert hefur heyrst.
Eiginlega hefur bara ekkert heyrst af klámi á Netinu í
fjölmiðlum
fyrr en eitthvert helvítis skítapakk í Ameríku var handtekið
og
stærsti barnaklámhringur sem sögur fara af á Netinu var
upprættur.
Þá litu íslensku gúrkubændurnir upp úr kaffibollunum og fundu
klámtengill hjá "Bleiku&Bláu" og Strik.is. Fjandinn varð laus
og bæði tilfellin verða rannsökuð. Enginn hefur hins vegar
áhuga
á Klám.is. Þetta gengur ekki alveg upp fyrir mér.
"Bleikt&Blátt"
er klámblað og hefur því þann yfirlýsta tilgang að dreifa
klámi,
líkt og Klám.is, en Klám.is virðist mega auðvelda gestum sínum
að nálgast klám á erlendum síðum, en "B&B" ekki? (Það skal þó
tekið fram að Pókémonþjálfarinn Davíð Þór aulaðist til að
tengja
yfir á vef sem seinna tengdist barnaklámi, sem er ferlega
slæmt,
óheppilegt og neyðarlegt en gerir þennan þriggja barna faðir
varla
að barnaníðingi?).
Varasamur rithöfundur vafrar um vefinn
Pressan hér á Strikinu heldur úti dálknum "Vafrað um vefinn",
þar sem fók segir frá eftirlætis heimasíðum sínum. Þetta er
allt
gott og blessað og getur komið lesendum á áhugaverða
afleggjara
á upplýsingahraðbrautinni (önnur klisja). Nú er Strikið ekki
klámvefur
þó það sé sjálfsagt sú deigla sem sýður saman líflegasta
Netgrautinn
ofan í Íslendinga. Mikael Torfason, rithöfundur, kom í
heimsókn til okkar og sagði frá því sem hann skoðar á Netinu
og
að sjálfsögðu var klám með í þeirri upptalningu (hafiði ekki
lesið
bækurnar hans?).
Mikki sagði frá "Húninum", eða "The Hun", sem býður upp á
ókeypis
klám og má sjálfsagt finna í bókamerkjum starfsmanna flestra
íslenskra
fyrirtækja, banka, spítala, olíufélaga og auðvitað fjölmiðla.
Ég hef hraðskoðað þennan vef og fann nú lítið spennandi, helst
óvenju ljótt fólk í ringulreið. Sem sagt lélegt og lítt
spennandi
klám. Mér skilst hins vegar að ef vel sé að gáð megi finna enn
leiðinlegri subbuskap, þar sem t.d. dýrum er blandað í málið.
Ekkert barnaklám er þó (að því er ég hef frétt) á Húninum,
þannig
að hann er ekki verri en allur sá hafsjór af útlendum
klámsíðum
sem Klám.is vísar á.
Á ég að gæta bróður míns?
Það vita allir að það er allt vaðandi í klámi á Netinu.
Margir
skoða það sér til ánægju og, væntanlega, yndisauka og misnota
svo tölvupóst vinnustaða sinna til að senda skemmtilegustu
myndirnar
til vina og kunningja. Það er því ekkert óeðlilegt við það að
það sé haft eftir nafntoguðum einstaklingi, á vef eins og
Strikinu,
að hann skoði klám á Netinu. Ef tengillinn hefði verið dauður,
þ.e.a.s. það hefði ekki verið hægt að smella á hann, og það
hefði
bara staðið "Mikael skoðar klám á www.húnninn.com" hefði
ekkert
verið hægt að segja, þó hvaða fífl sem er geti auðvitað
afritað
slóðina límt hana í vafra, ýtt á "enter" og komist beint í
klámið.
Þetta upphlaup er bjánalegt og fáviskan lekur af því.
Það er hægt að finna allt á Netinu og allir finna það sem
þeir
leita að hvort sem það er klám eða bölmóður Vinstri grænna.
Það
er og verður allt vaðandi í klámi á Internetinu og börn,
gamalmenni
og blaðamenn munu geta gengið að því vísu án þess að
"Bleikt&Blátt"
og Strikið komi þar nærri. En bara svo það sé á hreinu og komi
skýrt fram að ég vil ekki auðvelda ykkur neitt í þessum efnum
þá hef ég bara lifandi tengill á hinn virðulega netmiðil
Vísi.is
en læt klámtenglana vera dauða. Þið getið bara slegið þá inn
sjálf
(ef þið hafið áhuga) eða opnað einhverja leitarvél og slegið
t.d.
inn leiðarorðið "Jenna" og klámið hrúgast yfir ykkur.
Hættiði að rugla í ömmu og öllum hinum
Góða skemmtun og fariði nú varlega á Netinu og á útihátíðum
og
í umferðinni og guðanna bænum beriði ábyrgð á sjálfum ykkur
svo
fréttamenn með meltingartruflanir eftir Árna Johnsen
hætti
þessum fáránlegu "nornaveiðum" (enn ein klisjan) á íslenskum
vefsíðum.
Ég styð nornaveiðikenninguna einfaldlega með því að pistill
Mikaels
á Pressunni var kominn í eldra efni og fjórir nýrri pistlar
voru
lagstir ofan á hann, þannig að (frétta)menn eru virkilega
farnir
að grafa og mér skylst að gröfturinn sé enn í fullum gangi og
"Undirtónar" séu næstir. Nú er auðvitað ekkert við það að
athuga
að afleysingafólk á fjölmiðlum noti gúrkutíðina til að læra og
grafa, en ég er hundfúll yfir því að Strikinu, vinnustað
mínum,
sé spyrt saman við "B&B" í fréttum og að blessuð amma mín (sem
veit ekkert um Netið og hélt að ég væri að feta í fótspor afa
míns með því að stunda blaðamennsku ) hafi fengið sjokk þegar
hún heyrði það í fréttum Ríksútvarpsins að ég stæði í ströngu
við að dreifa klámi og spilla hinni siðprúðu íslensku þjóð.