»  skrif  »  Ljónahlátur með lafandi tungu

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Ljónahlátur með lafandi tungu
Mánudagur, 15. október 2001

birt á www.strik.is/pressan

Það er vont að vera þunglyndur um þessar mundir. Hryðjuverk, stríðsbrölt, kreppa og skammdegi geta haft vond áhrif á stakasta geðprýðisfólk, þannig að það er ekki von á góðu hjá okkur hinum sem göngum á geðlyfjum og gömlum vana og sjáum dauða og djöful í hverju horni. Það er ekki bara að regluleg leiðindi íslenska vetrarins séu að læðast aftan að okkur. Nú er líka allur góðærispjéníngurinn búinn þannig að maður getur ekki ornað sér í á súlustöðum og lætt eldrauðum Jóni Sigurðssyni ofan í g-buxnastrengi föngulegra meyja sem vilja vera vinir manns og hlusta á vandamál manns gegn því að maður kaupi handa þeim ómerkilegt freyðivín dýrum dómum. Nei. Lífið var ljúft í fyrra. Nú verður maður bara að hanga heima yfir Ríkissjónvarpinu og drekka heimalagað rauðvínssull og gambra.

Og til að gera heimsmyndina enn ömurlegri er svo alþjóðasamfélagið á vonarvöl eftir fáránleg, heimskuleg og frek hryðjuverk, haldlitlar refsiaðgerðir sem bitna á Pétri og Pálínu í Afganistan og óþverra póstsendingum með einhverjum viðbjóði sem heitir miltisbrandur og ég vil sem minnst vita um. Heimskulegt algleymi síðasta áratugar og sýndarveruleikaheimsmynd Hollíwúddsins er skyndilega gufuð upp og eftir stendur kaldur, hrár og miskunarlaus raunveruleikinn. Útlitið er svo dapurt að blessað kalda stríðið er í minningunnni að verða tímabil sem er baðað í ljóma nostalgíunnar.

Þá vorum við a.m.k. svo meðvituð um að við værum öll að deyja (þið munið stikna, þið munið brenna....) að lífið varð svo dásamlega dýrmætt og léttleikandi andspænis einfaldleika feigðarinnar. Við slógum þessu bara öllu upp í kæruleysi. Strákarnir notuðu augnskugga og voru með sítt að aftan. Fötin sprengdu hugtakið "hallærislegt" út í nýjar víddir og tónlistin, sem kennd var við nýrómantík, lifir enn í yndislegum fáránelika sínum, angurvær og kærulaus; tímana tákn (dancing with tears in my eyes. trallallala..). Tíma sem voru svo út í hött að menn á borð við Boy George og Herbert Guðmundsson urðu stjörnur. Þá var gaman að vera til (enda vissu allir sæmilega skynsamir menn að vondu kallarnir Reagan, Chernenkó, Grómíkó, Andrópov og Brjésnjéff myndu aldrei fara í stríð sem þeir gætu ekki unnið. Það var jafnvægi í ógninni og þetta var eiginlega allt í stakasta lagi þó maður svæfi alltaf í skugga sprengjunnar.

Nútíminn er trunta...

Í dag er þetta allt morkið. Það er ekkert jafnvægi og vondu kallarnir, hverjir sem við viljum að þeir séu, eru til alls líklegir og hafa ekkert sérstakan áhuga á því að fara í stríð til að vinna það. Enda er tilgangurinn með stríði ekki að vinna, heldur vera með og drepa sem flesta. Ég missti málið í kjölfar hryðjuverkanna og dró mig í hlé, þunglyndi og flensu og eftirlét öllum hinum að skrifa um þetta frá öllum hliðum. Ég nenni hreinlega ekki að velta mér upp úr þessu og því síður reyna að skilja þetta og ber fyrir mig ákvæði stjórnarskrárinnar um að "sælir séu fattlausir, því þeir fatta ekki hvað þeir eru vitlausir" og svo mun þetta hvort eð er aldrei meika sens.

Ég varð auðvitað samt aðeins að pæla í þessu. Vega það og meta hvort ég ætti að fara í Smáralind um helgina eða stóla á að hún verði þarna enn um t.d. jólin, hvort ég ætti að selja deCODE bréfin núna og fá a.m.k. fimmkall fyrir þau, af því þau verða auðvitað með öllu verðlaus þegar allir í gagnagrunninum eru dauðir úr stríði, hryðjuverkum, miltisbrandi og hor. Eftir að hafa stækkað prósakk skammtinn minn, hámað í mig ómengað ginseng og reynt eftir fremsta megni að sinna hlutverki mínu sem eitt ryðgað tannhjólið í þessu morkna gangverki sem tilveran er komu Gísli Marteinn og Eva, þessar elskur, með lausnina í Kastljósi. Snillingurinn John Cleese var að vísu búinn að viðra þetta í þætti um mannsandlitið í Sjónvarpinu, en ég gat auðvitað ekki tekið fyrrum meðlim Monty Python gengisins alvarlega. En þegar brosmildu englarnir drógu indæla konu sem kennir fólki að hlæja upp úr engu, fram í Kastljósið, opnuðust augu mín. Kona þessi vinnur út frá kenningum einhvers hlátursbrjálaðs Indverja sem Cleese er líka voða hrifinn af og ég held að grunnurinn í pælingum hans sé sá að við höfum öll gott af því að hlæja.

Það getur auðvitað verið andskotanum erfiðara að hlæja. Sérstaklega þegar tilefnin eru fá og tilveran grá. En þá er nú gott að töfra fram hláturinn t.d. með ljónahlátrinum sem þessi ágæta kona sýndi þeim Gísla og Evu. Þetta er svo magnað að þetta virkar meira að segja á mig og hefur snarbætt líðan mína og viðhorf til lífsins sem styttist með hverjum degi sem líður. Maður setur sig í ljónastellingar, lyftir loppunum upp, galopnar ginið, lætur tunguna lafa út og gargar. Gargið verður svo skyndilega að hlátri. Svona tilgangslausum hlátri geðsjúklingsins sem sprettur upp úr engu. Það gerst eitthvað í skrokknum og manni fer að líða einkennilega vel.

Þetta er svarið og mér líður næstum eins og stórskáldinu Ísak Harðarsyni þegar hann sá ljósið, eini plúsinn er að ég er ekki frelsaður. Mér líður bara betur. Látum ekki Bush, bin Laden og góðærismissi Mr. Oddssonar skemma fyrir okkur lífið. Höldum áfram að maula prósakkið okkar og fæðubótarefnin. Látum ekki deigan síga í megruninni og ræktinni. Notum áfengi hóflega í hófi og umfram allt tökum eitt ljónsöskur fyrir framan spegilinn á morgnanna.


| 21:50 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff