Laugardagur, 15. desember 2001
birt á www.strik.is/pressan
ÞARNA SÁ ÉG MIG TILNEYDDANN TIL AÐ SKRIFA EDRÚ
UM NAFNAVÍXL, GEÐSHRÆRINGU OG MÚRINN
Múrinn.is er með skemmtilegustu vefsvæðum sem sögur fara
af.
Hann toppar eiginlega vefsíðu
Björns
Bjarnasonar og fréttavefinn
Baggalút.is.
Múrverjarnir eru nefnilega, þrátt fyrir geðvonskuna og
fyrirtíðarspennuna
sem er að verða eitt helsta einkenni vinstrisinnaðra
vinstrimanna
á þessum síðustu og verstu tímum, allra manna skemmtilegastir
þegar þeir taka sig til. Bestir eru þeir í menningarrýninni
sem
er oftast snaggaraleg og á stundum töff, þó engan eigi þeir
leðurjakkann
og oft kasta þeir ágætis hnullungum úr glerhúsinu sínu. Þetta
er sem sagt góður vefur sem á það til að taka svo góða spretti
að skemmtigildið nær slíkum hæðum að ætla mætti að
kapítalískir
markaðsdjöflar stæðu að baki ritstjórninni.
Nema auðvitað geðvonskan. Þeir eru alltaf svo reiðir og oftar
en ekki verðum við á Pressunni fyrir barðinu á
réttlátri
reiðinni. Stundum er það vegna þess að við erum "leðurjakkaklæddar
atvinnukarlembur" sem fíla klám, en oftast eiga reiðiköst
þeirra rætur að rekja til meints daðurs Pressunnar við
Samfylkinguna,
en við þykjum hafa dregið taum hennar nokkuð í fréttum af
R-listabröltinu
í Reykjavík. Ekki held ég nú að það hafi verið meiningin og
það
hefur reynst frekar erfitt að viðra skoðanir þeirrar hjarðar,
a.m.k. undanfarið, eftir að Samfylkingarfólk hætti að vilja
tala
um R-listasamstarfið "on record".
Hvað um það stundum láta nafnlausir heimildarmenn svo
skemmtilegar
kenningar flakka að maður getur ekki stillt sig um að greina
frá
þeim og þá hafa Múrverjar oft orðið býsna reiðir - eiginlega
froðufellandi
- og látið okkur fá það óþvegið. Oftast hefur þetta verið í
tilfellum
þar sem greint hefur verið frá því að samningaviðræður um
R-listasamstarfið
gangi vel. Slík ótíðindi hafa aldrei fallið Múrverjum í geð,
þannig
að málflutningur "hlutlausu heimildarmannanna" minna og
Sigurjóns
á Fréttablaðinu um að Sverri Jakobssyni hugnist lítt að
starfa með Samfylkingunni og Framsókn í borgarstjórn
Reykjavíkur,
virðist síður en svo byggður á sandi.
Nóg um það. Leiðréttingar Sverris og co. hafa ætíð verið vel
þegnar og ég hef komið á ágætis sambandi við Sigríði
Stefánsdóttur,
formann kjördæmafélags VG í Reykjavík, til að fylgjast með
R-listahræringunum
og það hefur reynst býsna vel. Þess vegna hringdi ég
umsvifalsut
í Sigríði þegar ég sá furðufrétt
Fréttablaðsins, þar sem hún hafði tjáð mér tveimur dögum áður
að lítil hreyfing hefði verið á málinu undanfarið. Og þar sem
Sverri hefur verið svo umhugað um grimman Samfylkingaráróður
Pressunnar
bjó ég til Pressumola
um að hin árvökula Pressa hefði leiðrétt Fréttablaðið
snarlega,
bara svona til að árétta hversu vel við höfum "plöggað" okkur
inn í málið (ekki vegna þess að ég standi í þeirri meiningu að
Pressan ein og sér hafi bolmagn til að leiðrétta Fréttablaðið
þó hún nái vafalaust athygli fleiri lesenda en Múrinn).
Klikkaði
að vísu (ófullur samt) á að éta upp nafnarugling
Fréttablaðsins
og sjá ekki í gegn um gráglettni (fimmaurabrandara) Sverris
þar
sem hann hreinsaði hendur sínar af því að þekkja Sigrúnu
Stefánsdóttur.
Ekki veit ég hvort þetta sé til komið vegna einhverra
Freudískra
tenginga við fjölmiðlaspekinginn uppi í Háskóla, eða af
dulinni
þrá minni til að verða forseti Alþingis?
Hvað um það í kjölfarið er friðarsinninn Stefán
Pálsson líka orðinn reiður og þá aðallega út í ritstjórann
minn, Ásgeir Friðgeirsson, og þó það sé fátt
skemmtilegra
en að hafa Stefán reiðan á bakinu, eins og nafni hans Hrafn
Hagalín gettur vottað, þá vil ég nota þetta tækifæri til
að
fría Ásgeir af mistökum mínum. Ég hef að vísu áður verið
hvattur
til að svara Múrverjum, síðast þegar mönnum þótti rétt að ég
gengist
við því, undir nafni, að vera leðurjakkaklædda karlremban
ógurlega,
en mér eldri og vitari menn bentu mér á að sumir væru
einfaldlega
ekki svaraverðir og ég bar því karlrembu mína í hljóði. En
Ásgeir
er, eftir því sem ég kemst næst, alveg pollrólegur og þarf
held
ég ekkert að fara með koníak í bað, hvorki af áhyggjum af
R-listanum,
andlegri heilsu Sverris eða af því að bókavefurinn á Strikinu
rann saman við Pressuna. Það er bara allt í gúddí og ég held
áfram
að fylgjast með R-listabröltinu og slá á þráðinn til
Sigríðar
(vona að hún fyrirgefi mér ruglinginn) og þigg baðið og
koníakið
með þökkum og hvet Múrverja um leið til að prufa prósakk.
Pæli svo í því í baðinu hvort það sé þá eftir allt saman
eitthvað
til í hinum tvítyngdu heimildarmönnum mínum og sme, á
Fréttablaðinu,
sem vilja meina að Sverrir vilji klífa til metorða í borginni
án hjálpar Samfylkingarinnar, en Stefán sér enga ástæðu til að
hafna þeim orðrómi í pirraðri varnarræðu sinni sem gengur öll
út á nafnavíxl og meintar geðshræringar - og auðvitað
gjörsamlega
misheppnaðan fimmaurabrandara þar sem mér dytti aldrei til
hugar
um að væna Sverri um að tala tungum tveim enda er Múrinn allur
í mónó.
p.s. Sverrir hefur hrakið
þessa gerræðislegu samsæriskenningu "heilmildarmanna"
Pressunnar
og Fréttablaðsins þannig að það má verja það að við sme höfum
hér gerst handbendi pólitískra skákmeistara í ljótum
hráskinnaleik,
en hvað sem síðar verður veit nú enginn og vandi um slíkt að
spá...
Þess ber að geta að Þórarinn Þórarinsson er
þunglyndissjúkur
leðurjakkablaðamaður sem missti trúna á vinstrimenn þegar þeir
stilltu sér upp í Samfylkinguna og Vinstri-græna.