Fimmtudagur, 04. júlí 2002
Áramótaprósakkið 2002 varð síðasti pistillinn minn sem birtist á hinni heillum horfnu Pressu. Fann hins vegar tvö sumarprósökk sem ég birti á Reykjavík.com fyrir nákvæmlega 0,00 krónur. Hafði þá komist upp á lagið með að fá ekki greitt á Strikinu, vandist því svo enn betur hjá Fréttablaði þeirra FF feðga og sá því ekki ástæðu til að eltast frekar við peninga. Enda fullkomin tímasóun að því er virðist.