Miðvikudagur, 12. febrúar 2003
Sviðið: Norninar eru þagnaðar og við erum nú stödd ásamt Fólki hjá Sirrý. Þar er fólk að tala um klám.
Tóti (við tölvuna með sjónvarpið í bakgrunni): "Ég missti af strætó um daginn og hafði því 20 mínútur til þess að gera fræðilega úttekt á klámblöðunum í efstu hillunni í bókabúðini á Hlemmi.
Vá! hvað þau eru orðin gróf maður. Þegar ég var bensínkall seldi ég rosa mikið af klámblöðum á bensínstöðinni (stærsti kúnnahópurinn var tveir kokkar á frystitogurum sem komu á nokkurra mánaða fresti og keyptu slatta af "runkritum" fyrir áhöfnina áður en lagt var í leiðangur). Veit ekki alveg hvað þessi blöð eru að gera í augnhæð smábarna á bensínstöðvum.
Það kemur þó ekki að sök þar sem markaðskarlarnir voru fljótir að finna lausn á þessu vandamáli; sérstaka plastpoka sem eru að mestu leyti skyggðir, þannig að það sést ekkert nema frygðarglampinn í augum forsíðustúlkunnar. Það þarf að borga við kassann til að sjá meira.
Það var að vísu ekki mikið meira að sjá á forsíðunni, þá það er að segja, þar sem útgefendurnir gættu þess alltaf að ekki sæist í geirvörtur eða sköp. Um það leyti sem ég var að hætta í bensíninu var Jenna Jameson samt farin að flagga sílíkoninu á forsíðum Cheri og Club en litlir punktar voru settir beint á geirvörturnar. Hvað myndirnar inni í blöðunum varðaði var gengið eins langt og leyfilegt var, geri ég ráð fyrir, þar sem limir gengu aldrei alla leið inn í eitt né neitt. Það var helst að subbublaðið hans Larry Flint reyndi að gefa slíkt til kynna en þá voru settir svartir punktar yfir varir og barma."
Bakgrunnshljóð: Fólkið hjá Sirrý talar um klámbylgju síðustu áratuga og vísað er á umfjöllun á Doktor púnktur is.
Tóti (við sjónvarpið, djúpt hugsi): "Ég hélt nú alltaf að þessi klámbylgja væri öll orðum aukin og teprukórinn gólaði almennt hærra en tilefni væri til (held það enn að vísu). En mikið helvíti eru blöðin í bókabúðunum orðin gróf. Gamla bensínperranum brá eiginlega bara í brún þegar hann áttaði sig á að á forsíðum sumra blaða sést nú bæði í píkuhár og geirvörtur og þegar lengra er skoðað blasa við actual penetrations, brundslettur og læti. Hólý mólý. Ég held að þetta sé orðið sama tegund af klámi og er alltaf verið að kæra og sekta einhverja erótíska kaupmenn fyrir að selja? Heldur dómsmálaráðherra líka verndarhendi yfir bókabúðum en ekki bara bensínstöðvum?
Það er allt vaðandi í svona klámi á Netinu. Þetta er auðvitað ekkert hræðilegt, bara standard, mainstream, hardcore klám, en ég hélt einmitt að fólk legði það á sig hlaða niður klámi af netinu á lélegri módemtengingu og berðist gegn hafsjó af pop-up gluggum af því að það væri ekki hægt að nálgast actual penetrations með góðu móti á prenti. Þatta hefur nú heldur betur breyst og þeir sem eru að perrast á thehun.com á síðkvöldum ættu frekar að drífa sig í Mál og menningu og kaupa slatta af Fox, Cheri og Hustler. Minna vesen og meiri ánægja. Engir pop-up gluggar, engin bið og miklu betri upplausn og myndgæði.
Nú er ég kominn á þann aldur að ég nenni ekki að rannsaka allt og skil þess vegna ekkert í því af hverju blöðin eru allt í einu orðin svona gróf? Þetta hlýtur samkvæmt markaðslögmálunum að vera viðbragð við greiðari aðgangi að grófu klámi á Netinu, en hvernig komast blöðin upp með þetta? Þau eru flest amerísk og ég hef ekki heyrt neinar fréttir þaðan um tilslakanir í klámbirtingamálum og hefði nú gefið mér að Brjálaði Bush ,sem þjáist ag krónískir brundillsku, hefði frekar aukið ritskoðun heldur en hitt. En nú eru sem sagt klámblöðin orðin grófari en þau voru þegar Clinton og blái kjólinn voru við völd.
Sjónvarpið: Fólkið hjá Sirrý greinir samhengi á milli kláms og aukinnar tíðini hópnauðgana og annars ofbeldis sem grassar á meðal ungs fólks.
Tóti (við stofugluggann): "Ég er flabergasted. Ekki síst á því að þessi þögla klámbylting hefur orðið á þessum síðustu og verstu tímum og ekki síst vegna þess að hún hefur farið fram hjá mér...." (hristir höfuðið).
Sjónvarpið: Búið að skipta um stöð. Breskir meinafræðingar stumra yfir líki unglingsstúlku. Stöðvar 2 merkið er gult þannig að þetta verður ekki nærri því jafn krassandi og að missa af Fjarkanum.
Tjaldið.
| 22:19 |