Sunnudagur, 28. september 2003
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Eli Roth fékk hugmyndina að hryllingsmyndinni Cabin Fever á Íslandi fyrir áratug. Þá fékk hann undarlegan húðsjúkdóm sem var hægur vandi að lækna með smyrslum en í myndinni er hann að sjálfsögðu banvænn.
"Hann fékk smá útbrot og fékk bara krem á þau og þar með var það búið", segir Björg Ólafsdóttir um dularfullan húðsjúkdóm sem leikstjórinn Eli Roth fékk þegar hann var au-pair hjá henni á bænum Ingólfshvoli fyrir rúmum áratug.
Roth dvaldi, ásamt bróður sínum, á Ingólfshvoli í einn mánuð þegar hann var 19 ára og komst þá í snertingu við skemmt hey sem virðist hafa valdið útbrotunum. Hann lýsir sjúkdómnum sjálfur þannig að ef hann klóraði sér rifnuðu heilu húðflyksurnar af honum og þótt Björg kannist ekki við það að sjúkdómurinn hafi verið svona alvarlegur þá orkaði hann svo sterkt á Roth að hann byggir hryllingsmyndina fyrirmyndar Cabin Fever á þessari lífsreynslu sinni.
Fyrirmyndarunglingur í sveitinni
Björg ber Eli og bróður hans vel söguna. "Þeir voru alveg til fyrirmyndar og það var mjög gott að hafa þá." Faðir Elis er virtur geðlæknir í heimalandi sínu og fjölskyldan dvaldi hér um skeið á meðan hann kenndi við Háskólann. "Pabbi hans hefur alltaf verið mjög hrifinn af Íslandi. Hann kom hingað fyrst í reiðtúr og heillaðist af sveitinni og vildi endilega koma drengjunum hingað. Hann talar íslensku og hefur skrifað okkur bréf. Þá heldur hann alltaf sambandi við móðursystur mína sem er líka geðlæknir."
Björg segir Eli enn geta "krafsað" sig í gegnum íslenskan texta "og hann kann að segja "takk fyrir", "skyr" og eitthvað fleira." Björg segist hafa heyrt lítillega af velgengni Cabin Fever en segist ekki hafa ákveðið hvort hún muni sjá myndina þegar hún kemur til landsins. "Það getur vel verið, annars fer ég voðalega lítið í bíó."
Björg er dásamleg manneskja
Eli segist enn halda sambandi við alla vini sína á Íslandi. "Björg Ólafsdóttir er ein af uppáhaldsmanneskjunum mínum í öllum heiminum. Hún er dásamleg og svo stjórnar hún einum stærsta reiðskóla á Íslandi." Eli bætir því við að hann hafi tekið svolítið upp á 8mm kvikmyndatökuvélina sína þegar hann var á Íslandi og hann bindur vonir við það að geta komið hingað í náinni framtíð, með 35mm vél, og taka upp mynd í fullri lengd. Þá er hann staðráðinn í því að koma til Íslands í tilefni af frumsýningu Cabin Fever en stefnt er að því að frumsýna hana samtímis á Íslandi og í Bandaríkjunum í sumar.
Roth þykir afskaplega þægilegur maður og er sagður leiftrandi skemmtilegur þannig að blaðamannafundir með honum minni einna helst á uppistand þar sem hann fer á kostum. Hann hefur meðal annars rekið ævintýri sín á Íslandi í heimspressunni og hefur þannig komið til dæmis komi Selfossi á kortið í kvikmyndabransanum.
| 1:00 |