Laugardagur, 27. september 2003
Bloggarinn Óli Gneisti (sem er að eigin sögn alls ekki bloggari) tók upp á því hjá sjálfum sér að verðlauna það sem vel er gert á Internetinu í fyrra og hefur nú afhent Vefverðlaun Gneistans annað árið í röð. Hann segir verðalun sín viðbragð við ládeyðu og öðrum verðlaunum sem hann botnaði ekkert í. Sjálfur er hann vinstrimaður og skammast sín ekki fyrir að hygla skoðanabræðrum sínum.
"Það voru veitt einhver vefverðlaun í fyrra en mér fannst ég nú ekki þekkja það net sem þar birtist neitt sérstaklega", segir Óli Gneisti Sóleyjarson sem veitti vefverðlaun sín annað árið í röð í vikunni. "Þetta virtust vera einhverjir karlar í jakkafötum sem voru að útdeila þessu en ég beini sjónum mínum frekar að því sem minna hefur farið fyrir í umræðunni", bætir Óli við en bloggsíður eru fyrirferðarmiklar á verðlaunalista hans.
Rauða hættan
Óli er sjálfur æðsta yfirvald og leggur smekk sinn til grundvallar verðlaununum en hann segist þó taka við tillögum. "Ég byrjaði að fylgjast með hugsanlegum kandídötum strax og ég hafði afhent verðlaunin í fyrra."
Óli valdi vinstra vefritið Múrinn.is besta vefritið annað árið í röð og þar fyrir utan hlutu tveir ritstjórnarmeðlimir Múrsins, þeir Stefán Pálsson, sagnfræðingur, og Ármann Jakobsson, bókmenntafræðingur, bloggverðlaun annað árið í röð. Stefán varði titillinn "besti og frægasti bloggari landsins" og Ármann er enn skemmtilegasti bloggarinn að mati Óla. Vinstri slagsíðan á verðlaununum er því nokkur en lætur Óli stjórnmálaskoðanir sínar og kunningsskap við ákveðna bloggara hafa áhrif á sig?
Hégóminn kitlaður
"Múrinn er bara ósnertanlegur og ég held að flestir séu sammála því og lesi Múrinn óháð stjórnmálaskoðunum sínum. Stefán byrjaði sjálfur að kalla sig besta og frægasta bloggarann og mér þótti það bara of freistandi og fyndið að halda því til streitu. Þegar ég veitti verðlaunin í fyrra hafði ég bara hitt Ármann einu sinni en Stefán nokkuð oftar og þótti Múrinn mjög áhugaverður. Ég kynntist þeim í gegnum bloggheima, þannig að fyrst kom aðdáunin og vináttan á eftir."
Óli segist aðspurður ekki gera sér fulla grein fyrir því hvaða þýðingu verðlaunin hafi fyrir bloggara en telur þó víst að einhverjir fái meiri umferð um vefi sína í kjölfarið. "Nú veit ég að Ármann Jakobsson hugsar ekki um traffík en hann var mjög fljótur að benda á það á síðunni sinni að hann hefði fengið verðlaun. Ég held hann hafi verið búinn að setja merki verðlaunanna upp hjá sér fimmtán mínútur eftir að ég kynnti úrslitin." Þá telur Óli víst að verðlaunin kitli hégómann hjá sumum og bendir á að "Stefán Pálsson vilji vissulega verða frægasti bloggari á Íslandi. Þeir sem færri lesa græða sjálfsagt einhverja traffík en ég veit ekkert endilega hvort þeir vilji það. Einhverjir verða kannski fúlir yfir að ég sé að vekja athygli á blogginu þeirra."
Skemmtilegasti bloggarinn tvö ár í röð fellur væntanlega í þennan hóp hinna hógværu en hann vill ekki ræða þessa upphefð og telur bloggið sitt síður eiga erindi í opinbera umræðu.
Íslendingabók besti vefurinn
Íslendingabók er besti vefurinn að mati Óla og tekur við þeim titli af Baggalút sem vann í fyrra. Íslendingabók er "hiklaust vefur ársins, sá eini sinnar tegundar í heiminum. Fræðandi og ótrúlega skemmtilegur".
Fréttavefur Morgunblaðsins, mbl.is, var besti fréttavefurinn í fyrra en fréttavefur Steingríms Ólafssonar, Fréttir.com, hlýtur heiðurinn í ár.
Fréttavefurinn Pressan, sem Hrafn Jökulsson ritstýrði þegar hróður hennar var sem mestur fær hins vegar hinn vafasama titil "mesta hrapið" í ár.
"Val mitt á mbl.is dró aðeins úr þessari meintu vinstri slagsíðu í fyrra en með Fréttum.com er loksins eitthvað frumlegt og skemmtilegt að gerast á fréttavef og aftur og aftur hefur komið skúbb frá Fréttum.com sem skilur hina hefðbundu fréttamiðla eftir í rykinu. Steingrímur er þó greinilega framsóknarmaður eins og kom skýrt fram í kringum kosningarnar en honum fyrirgefst það."
Óli segist telja Steingrím hafa náð að fylla upp í það skarð sem varð til þegar Pressan fór að dala. "Ég fór nú ekki að hugsa út í þetta fyrr en ég var að ganga frá tilnefningunum en Pressan nýtti sér netið til að vera öðruvísi og það hafa Fréttir.com líka gert. Pressan er orðin einhvers konar bloggsíða Andrésar Magnússonar þannig að það er ekki mikið þangað að sækja lengur nema maður vilji láta Andrés pirra sig. Pressan er því góð fyrir þá sem vilja kvarta og kveina undan bloggi en Andrés bloggar afskaplega sjaldan og er eiginlega hálfgerður aumingjabloggari."
Fréttir toppa í kreppu vefmiðlanna
Steingrímur Ólafsson, ritstjóri Frétta.com, tekur undir það að hann hafi nýtt sér það tómarúm sem myndaðist þegar Pressan missti dampinn og er að vonum ánægður með það að hafa rutt mbl.is úr sæti besta fréttavefjarins.
"Það er ljóst að Fréttir hafa toppað og leiðin hlýtur að liggja niður á við héðan í frá og því er kannski mál að linni. Hafa Fréttir sagt sitt síðasta? Er október upphaf endalokanna?", spyr ritstjóri Frétta, dularfullur mjög en gefur ekkert frekar upp um framtíðaráform sín.
Það var mikil gróska í pólitísku vefmiðlunum í kringum árið 2000 þegar netbólan var þaninn í botn en Óla finnst frekar lítið standa eftir þar sem Múrinn drottnar á vinstri vængnum og Vefþjóðviljinn er eina raunverulega andsvarið hægra megin. "Kreml.is var valin fúlasti vefurinn í fyrra og það er lágt á þeim risið núna og vefurinn virðist vera dottinn út úr öllu." Óli rekur kreppu vefmiðlanna til þagnar Egils Helgasonar sem hélt úti vef Silfurs Egils á Strikinu á sínum tíma. "Hjá Agli var hægt að fá yfirlit yfir allt sem var að gerast á pólitísku netmiðlunum og vefur hans var miðstöð sem allir voru að tala um en eftir að Egill datt út er enginn miðpunktur."
BIRT Í FRÉTTABLAÐINU
| 21:33 |