Miðvikudagur, 17. september 2003
Dorrit Moussaieff er fimmta konan sem gerist húsfreyja á Bessastöðum. Hún er veraldarvön heimskona sem hefur heillað Íslendinga með áhuga sínum á landinu og veruleika sem er býsna fjarlægur þeim heimi sem hún hefur lifað og hrærst í.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og heitkona hans Dorrit Moussaieff boðuðu til blaðamannafundar á Bessastöðum fimmtudaginn 25. maí árið 2000 og greindu frá því að þau hefðu ákveðið að heitbindast. Þau settu ekki upp hringa af þessu tilefni og forsetinn sagði þau ekki hafa ákveðið giftingardaginn en útilokaði ekki að þau myndu ganga í hnapphelduna síðar á árinu.
Ólafur Ragnar hafði áður upplýst þjóðina um samband sitt við Dorrit og bað landsmenn um að veita þeim "tilfinningalegt svigrúm" til þess að þróa sambandið. Þjóðin leyfði Ólafi og Dorrit að rækta ástina í friði og tók fréttunum af trúlofuninni almennt vel enda var Dorrit þegar byrjuð að taka þátt í opinberu starfi forsetans og því þótti eðlilegt að staða hennar á Bessastöðum yrði skilgreind betur. Bið Íslendinga eftir forsetabrúðkaupinu varð svo öllu lengri en vonir stóðu til og við og við gerði óþolinmæði vart við sig í opinberri umræðu. Hjónaleysin gerðu sér svo lítið fyrir og voru gefin saman af sýslumanninum í Hafnarfirði í Bessastaðastofu á sextugsafmælisdegi forsetans fyrr í þessum mánuði.
Heillandi heimskona
Brúðkaupsfréttin kom þjóðinni, og ekki síst fjölmiðlum, algerlega í opna skjöldu enda hafði forsetinn gert lítið úr meintum brúðkaupshugleiðingum þeirra í sjónvarpsviðtali nokkrum klukkustundum áður en þau Dorrit gengu frá ráðhagnum á Bessastöðum. Einhverjir höfðu bundið vonir við það að parið myndi blása til risabrúðkaups að viðstöddum erlendum þjóðhöfðingjum og fyrirfólki en ákvörðun þeirra um látlaust brúðkaup virðist þó almennt hafa mælst vel fyrir og Íslendingar hafa tekið forsetafrúni opnum örmum enda hefur hún heillað fólk með fágaðri og framkomu og einlægum áhuga á landi og þjóð.
Frammistaða hennar í sjónvarpsviðtali eftir giftinguna er gott dæmi um þetta en þá talaði hún til þjóðarinnar á íslensku sem var síður en svo ekki til þess að draga úr hrifningunni.
"Hún heillaði alla upp úr skónum með því að svara á íslensku", segir einn viðmælenda Fréttablaðsins sem hefur fylgst með sambandi Dorritar og forsetans allt frá því hann kynnti hana fyrst til sögunnar. "Hún hefur hrifist af Íslandi þrátt fyrir allt glysið og glauminn úti í heimi og er þroskuð kona sem bersýnilega elskar forsetann."
Elsa Þorkelsdóttir, lögfræðingur, ber Dorrit einnig afskaplega vel söguna: "Ég hef kynnst Dorrit ágætlega og hún er mjög aðlaðandi. Hún er kona með skoðanir og hún fylgist mjög vel með þannig að í mínum huga er hún fyrst og fremst afskaplega áhugaverð manneskja".
"Ég þekki hana lítillega", segir Svava Johansen, kaupmaður í Sautján, um Dorrit. "Það er voða bjart yfir henni og hún er hin skemmtilegasta kona, bæði glaðleg og alþýðleg. Hún er mjög áhugasöm um landið okkar og það er gaman að sjá hversu fljót hún var að læra málið."
Svava segir Dorrit fylgjast vel með straumum og stefnum í tískuheiminum og hún fylgist jafnframt vel með því sem íslenskir fatahönnuðir eru að gera. "Hún hefur sýnt hönnun hérna mikinn áhuga og við höfum farið einn rúnt niður Laugaveginn þar sem hún hafði mikinn áhuga á að sjá hvað íslenskir hönnuðir eru að gera. Ég er nú ekki endilega að segja að hún sé að fara að framkvæma neitt en hún hefur næmt auga fyrir því sem við gætum flutt út oghún hefur skoðað útflutningsmöguleika okkar enda er hún kona með bissnissvit. Hún er einfaldlega heillandi kona."
Ást við aðra sýn
Ólafur Ragnar er annar eiginmaður Dorritar en hún gifti sig fyrst þegar hún var tvítug en því hjónabandi lauk tíu árum síðar. Hún hitti Ólaf Ragnar fyrst í hádegisverðarboði hjá vinkonu sinni í London. Þar spjölluðu þau um Ísland og Ólafur hvatti hana, sem blaðamann, til þess að skrifa um landið og tókst með frásögnum sínum að kveikja áhuga hennar á landi og þjóð.
Dorrit sagði í Morgunblaðsviðtali við Kristínu Mörju Baldursdóttur í byrjun þessa árs að hún teldi að ekki hefði verið um ást við fyrstu sýn að ræða hjá henni og Ólafi og bætti því svo við að líklega mætti í þessu sambandi tala um ást við aðra sýn en þau hittust næst hálfu ári síðar á tónleikum og lögðu þá grunninn að góðum kunningsskap sem þróaðist út í ástarsamband og að lokum hjónaband.
Íslendingar eru þekktir fyrir margt annað en að hafa áhyggjur af því að fólk búi í óvígðri sambúð en þrátt fyrir heyrðust af og til hneykslunarraddir sem töldu óviðunnandi að forsetinn gengi ekki að eiga heitmey sína. Dorrit sló nokkuð á þessar kröfur í viðtali við breska dagblaðið Daily Mail þann 10. júlí 2001. Þar sagðist hún ekki ætla að giftast Ólafi Ragnari fyrr en hún hefði náð góðum tökum á íslensku og lét það fylgja sögunni að tungumálið væri það erfiðasta í heimi. Hún áréttaði þetta svo í fyrrnefndu Morgunblaðsviðtali og gat þess að það gæti þess vegna tekið sig 30 ár til viðbótar að læra íslensku. Tungumálið vafðist þó ekki meir en svo fyrir Dorrit að tæpum tveimur árum eftir að hún spjallaði við blaðamann Daily Mail er hún orðin forsetafrú.
Hlutverk sem hún getur mótað sjálf
Dorrit sinnir viðskiptum sínum frá skrifstofu sinni í London og er því töluvert á faraldsfæti en hefur þó engu að síður gefið sér tíma til þess að taka þátt í fjöldamörgum heimsóknum og móttökum á vegum forsetaembættisins. Stefán Lárus Stefánsson, forsetaritari, segir að hlutverk maka forsetans sé ekki í mjög föstum skorðum og það sé því í raun í höndum forsetans og maka hans að meta hvernig hlutverkið er útfært.
"Það hafa vissulega ákveðnar venjur skapast og starf forsetafrúarinnar mun væntanlega þróast innan þess ramma sem þær hefðir kveða á um, með mismunandi áherslum eftir því í hvaða embættiserindum hún fylgir forsetanum. Þetta hefur verið nokkuð misjafnt hjá forsetafrúm í gegnum tíðina og mun væntanlega þróast áfram með hliðsjón af vilja forsetahjónanna og vilja þjóðarinnar."
Unglingur í London
Dorrit Moussaieff fæddist árið 1950 og ólst upp í Jerúsalem. Faðir hennar Shlomo Moussaieff er einnig fæddur í Jerúsalem og þau geta rakið ættir sínar allt aftur til ársins 1260 en þá bjuggu forfeður þeirra í Cordoba á Spáni og tilheyrði fjölmennasta gyðingasamfélagi borgarinnar.
Ættingjar hennar hröktust síðar frá Spáni og komu víða við en fjölskyldan hafði sérhæft sig í því að versla með perlur og demanta. Faðir Dorritar er umsvifamikill demantakaupmaður og Daily Mail metur eignir fjölskyldunnar á um það bil 120 milljónir punda eða í kringum 18 milljarða íslenskra króna.
Móðir Dorritar er frá Vínarborg og á einnig ættir að rekja til Prag, þannig að foreldrar hennar koma úr ólíkum áttum rétt eins og Dorrit og Ólafur Ragnar.
Dorrit flutti til London ásamt fjölskyldu sinni þegar hún var unglingur og þar byrjaði hún að versla með demanta hjá fjölskyldufyrirtækinu. Skemmtanalíf borgarinnar heillaði Dorrit og þegar hún var 16 ára fór hún að heiman. Hún lýsti þeirri ákvörðun í fyrrnefndu Morgunblaðsviðtali: "Þegar ég var sextán ára samdi mér illa við móður mína. Hún vildi ekki að ég væri úti eftir klukkan tólf á kvöldin sem mér þótti afar óréttlátt því fjörið í "Lundúnarsveiflunni" byrjaði aldrei fyrr en eftir miðnætti. Svo ég fór að heiman." Dorrit vann meðal annars fyrir sér í fataverslun þegar hún þurfti að standa á eigin fótum en hellti sér svo út í nám og lagði meðal annars stund á listfræði og innanhússarkitektúr. Hún starfaði um árabil sem innanhússhönnuður og gat sér gott orð sem slíkur. Þá byrjaði hún einnig að skrifa í lausamennsku fyrir tímaritið Tatler og hóf aftur störf sem skartgripasali hjá fjölskyldufyrirtækinu og er vel þekktur skartgripasali og hönnuður.
Dorrit hefur talað opinskátt um glímu sína við lesblindu sem háði henni í námi framan af. Lesblindan hefur þó ekki aftrað henni í tungumálanámi en hún talar þýsku, ensku, hebresku og frönsku og kann einnig nokkuð fyrir sér í arabísku og eins og alþjóð veit hefur hún náð ágætis tökum á íslensku. Það er því óhætt að segja að forsetafrú íslensku þjóðarinnar sé veraldarvanur heimsborgari og að ekkert bendi til annars en að hún muni blómstra í þessu nýja hlutverki sem hún getur að einhverju leyti mótað eftir eigin höfði.
BIRT Í FRÉTTABLAÐINU
| 22:33 |