Laugardagur, 27. september 2003
Bloggæði virðist vera runnið á Íslendinga og allt útlit er fyrir að þjóðin hafi slegið enn eitt heimsmetið miðað við höfðatölu en samkvæmt talningu www.blogcensus.net eru 3895 íslenskar bloggsíður á veraldarvefnum. Blogcensus leitar að dagbókarsíðum eftir lénum og tungumálum og samkvæmt þessu er tæplega 4000 íslenskum vefdagbókum haldið úti á netinu, ýmist undir landsléninu .is eða öðrum lénum.
Bjarni Rúnar Einarsson og Már Örlygsson hafa fylgst með bloggþróuninni hér heima og annars staðar en þeir halda úti síðunni rss.molar.is sem fylgist með uppfærslum íslenskra bloggsíðna en yfirlit yfir þær síður sem rss fylgist með er til að mynda birt á síðunni www.nagportal.net.
Bjarni Rúnar segir rss fyrst og fremst hafa verið hugsað til þess að auðvelda aðgengi að upplýsingum og fjöldasprengingin í blogginu hafi orðið til þess að hann byrjaði að safna bloggsíðunum saman.
"Þetta var orðið svo mikið og þar sem ég er latur að eðlisfari vissi ég fyrirfram að ég myndi ekki nenna að fylgjast með öllum þessum síðum og bjó til þessa græju sem lætur mig vita þegar fólk uppfærir síðurnar sínar og þá þarf ég ekkert að kíkja á þær nema ég viti af einhverju skemmtilegu. Svo er maður bara þannig að þegar ég geri eitthvað fyrir sjálfan mig langar mig að leyfa öðrum að njóta þess."
Bjarni Rúnar segir rss molana vera um tveggja ára gamla og þeim félögum telst til að græjan fylgist með um 280 íslenskum síðum um þessar mundir en Bjarni segir að það sé stöðugur straumur af fólki sem vilji láta bæta sér álistann.
Ísland í tólfta sæti
Már segist telja tölu Blogcensus um fjölda íslenskra bloggsíðna nokkuð marktæka þó hann gjörþekki ekki aðferðafræðina á bak við talninguna.
"Síðan fylgist með tæplega 700.000 bloggsíðum og við erum nú í 12. sæti. Við vorum í 10. sæti fyrir mánuði og mig grunar að við munum færast neðar á næstunni," segir Már. "Ég geri ráð fyrir að leitarvélin hjá þeim hafi byrjað smátt en sé smám saman að víkka sjóndeildarhringinn. Hún var svolítið ameríkaniseruð og evrópsk í upphafi og hefur væntanlega dottið fljótt inn á Ísland og þar sem þetta samfélag hér er svo lítið og þétt hefur hún líklega náð að telja vel flestar íslenskar síður á skömmum tíma."
Ný bókmenntatengund í örri þróun
Það er enginn hægðarleikur að skilgreina bloggið enda margslungið og stjórnlaust fyrirbæri. Flestir geta þó fallist á það að sé einhvers konar bókmenntagrein og í Kennsluskrá Háskóla Íslands er því lýst sem nýrri bókmenntategund í örri þróun. "Það mætti segja að það sé nútímalegur bræðingur af hinni hefðbundnu dagbók, sendibréfinu, tölvupósti og persónulegum heimasíðum."
Bloggið er viðfangsefni sérstaks námskeiðs, Blogg, blogg, blogg, sem ráðgert er að kenna á vormisseri íslenskuskorar HÍ en þar verður gefið "yfirlit um ritun sjálfslýsinga og sjálfsævisagna frá öndverðu til "netbloggs" samtímans. Sögur karla og kvenna, einkenni og form persónulegrar tjáningar á ólíkum tímum."
Már segist hafa velt ástæðum þess hversu bloggið sé orðið almennt á Íslandi fyrir sér. "Þetta eru nú bara vangaveltur hjá mér en ég held að eins og venjulega sé það nýungagirnin sem ráði miklu svo má að vissu leyti segja að bloggið falli vel að íslensku þjóðarsálinni og klisjunni um bókmenntaþjóðina. Íslendingar eru líka nátengdur hópur þannig að þetta er fljótt að smitast. Þjóðin er líka tæknivædd og netnotkun er almenn svo hefur líka eðlislæg forvitni um náungann og ákveðið feimnisleysi líklega sitt að segja."
BIRT Í FRÉTTABLAÐINU
| 21:20 |