Föstudagur, 07. nóvember 2003
Waris Dirie er komin til landsins í annað sinn að kynna nýja bók og tala gegn misþyrmingum á konum. Hún á góða vini hérna og Bláa lónið heillar hana. Hún vonar að í næstu heimsókn sinni geti hún notið þess að vera á Íslandi án þess að þurfa að tala um sorgir og ofbeldi.
"Ef ég gæti breytt heiminum með göldrum þá myndi ég stöðva allar þjáningar," segir Waris Dirie, ljósmyndafyrirsæta og sendifulltrúi hjá Sameinuðu Þjóðunum. Waris er einörð í baráttu sinni fyrir bættum kjörum kvenna en vill þó ekki misbjóða neinum. "Ég tala samt um slæma hluti. Ég segi frá því sem ég sé og mér mislíkar í heiminum. Alveg óháð því hvort það er á Vesturlöndum eða í Afríku. Ég vildi bara óska þess að allir gætu notið lífsins, það þarf ekki að gera meira til að bæta heiminn."
Eyðimerkurblóminu líður vel á Íslandi. "Þegar ég kem næst ætla ég ekkert að tala um sorg og ofbeldi gegn konum, eða það vona ég að minnsta kosti. Heimsókn mín hingað fyrir ári var mjög árangursrík og helsti munurinn núna er sá að fólk þekkir bækur mínar og störf. Næst þegar ég kem vil ég njóta þess að vera hér og hitta vini mína." Waris nefnir Amal Rún Qase sérstaklega til sögunnar og talar um hana sem systur sína, en þær kynntust í London eftir að Waris yfirgaf Sómalíu. "Þegar ég hugsa um Ísland ber hugurinn mig langleiðina í Bláa lónið. Það er töfrastaðurinn minn og ég get ekki beðið eftir því að komast þangað."
| 0:11 |