Mánudagur, 17. nóvember 2003
Söngkonan Leoncie segist hafa fundið illilega fyrir kynþáttafordómum á Íslandi sem hafa ekki síst kristallast undanfarið á spjallrásum á Internetinu en þannig sáu Víkurfréttir sig til dæmis tilneyddar til þess að loka spjallþræði um söngkonuna eftir að Tilveran og fleiri afþreyingarvefir vísuðu á hann og hótanir um ofbeldi og fleira miður skemmtilegt gusu upp í kjölfarið.
"Það hefur enginn hérna áhuga á því að bregðast við þessum ofsóknum en erlendis, til dæmis í Bretlandi og Bandaríkjunum, eru stórir hópar sem myndu gera eitthvað í svona málum", segir Leoncie og segir að það komi þó ekki til greina af sinni hálfu að flytja úr landi.
Ljónshjarta í Eurotrash
"Það verður sýndur þáttur um mig hjá Channel 4 í Bretlandi í næstu viku. Þátturinn var gerður hérna fyrir nákvæmlega einu ári og heitir Leoncie frá Sandgerdi in Iceland. Það er mikill húmor í þessum þætti en maður verður að vera með ljónshjarta til að taka svona gríni en ég er einmitt þannig. Ég talaði ekkert um rasismann í þessum þætti en nú er ég búinn að fá nóg. Hvað getur maður líka gert þegar lögreglan skemmtir sér yfir þessari kynþáttamismunun? Ég er bókuð í viðtöl við erlenda fjölmiðla á næstunni og þar ætla ég að segja frá þeirri lífsreynslu sem ég hef lent í hérna á Íslandi. Ég ætla að tala vel um Íslendinga en ekki um þetta rótgróna kynþáttahatur hérna."
Ofsótt af tónlistarfólki
"Síðan lagið Ást á barnum kom í útvarpinu hefur afbrýðisemin og brjálæðið verið með ólíkindum. Ég veit hverjir eru að ofsækja mig. Þetta er aðallega tónlistarfólk og ættingjar þess. Það eru ekki almennir Íslendingar sem hata mig. Þetta eru tónlistarmenn og ég vil koma því á framfæri að ég er ekki á móti Íslendingum en það er verið að breiða það út að ég hati 280.000 Íslendinga. Sérðu hvers konar geðveiki þetta er? Það er verið að leggja mig í einelti og gera árásir á mig."
Leoncie segist aðspurð ekki eiga gott með að svara því hversu almennir kynþáttafordómar séu á Íslandi. "Fordómarnir eiga sér í það minnsta djúpar rætur og allir þessir nýju kynþáttahatarar eru aldir upp af kynþáttahöturum. Þetta veit ég fyrir víst rétt eins og ég veit að það er litið á mig sem ógnun. Ég er ekki að ógna neinum og framleiði mína tónlist fyrir mína eigin peninga."
Diskarnir seljast
Leoncie segist ekki þurfa að kvarta yfir viðtökunum sem hún fær á Íslandi þó fordómarnir geri henni lífið leitt. "Allt sem ég hef gert hefur selst. Það eru bara örfáir geisladiskar eftir. Það er fullt af fólki sem kann að meta mig og kaupir diskana. Ég er líka fullbókuð langt fram í tímann. Þetta fólk á spjallrásunum heldur því fram að þeir sem bóki mig geri það bara til að gera grín, come on! Þetta er dæmi um þessa fordóma. Það er til fullt af frábærum grínistum sem eru bókaðir til þess að sjá um það.
Ég er ekki að biðja fólk um að meta tónlistina mína. Það nægir mér alveg að fólk erlendis kunni að meta mig. Það er bara hér á Íslandi mér mætir ekkert nema hatur, öfundsýki og fordómar. Tónlistarfólk hér á Íslandi þykist vera að gera spes tónlist og þykjast vera mestu tónlistarsnillingar í heimi og það eru þessir svokölluðu tónlistarsnillingar sem eru að ofsækja mig. En menn skulu bara bíða og sjá því að það er sprengja á leiðinni."
Eru gagnrýnnedur rasistar?
Leoncie hefur gefið það í skyn að þeir sem tali illa um tónlist sína geri það á rasískum forsendum en er það virkilega tilfellið? "Þeir dæma tónlistina mína út frá því að ég er ekki fædd á Íslandi en það er eitthvað sem ég þarf ekki að þola í Bretlandi, Bandaríkjunum og annars staðar. Þetta er tilfellið hérna og ég veit það. Ég hef verið að tala við erlend útgáfufyrirtæki og þar eru menn alveg gáttaðir á því að ég sé ekki með íslenskan útgefanda. Ég hef fengið fullt af samningum í hendurnar sem ég er að skoða og svo sjáum við bara hvað ég vil skrifa undir. Þessar morðhótanir og hótanir frá þessu tónlistahatarapakki munu ekki hafa neitt að segja og ég mun koma því á framfæri í viðtölum mínum við útlenda fjölmiðla hvernig tónlistarfólk hérna hefur ofsótt mig í 21 ár. Ég er hérna og látið mig í friði!"
Endurgreiðir með vöxtum
Leoncie segist alltaf gera sitt besta og gefur sig alla í tónlistina. "Ég einbeiti mér alltaf að sjálfri mér. En það er nánast ómögulegt að hugsa um sjálfan sig þegar fjöldi fólks er á hælunum á manni og lætur mann ekki í friði. Þessi geisladiskur minn er frábær og ég hef samið fullt af frábærum lögum og það er ekki mér að kenna þó þetta lið sé hæfileikalaust. Það ætti að hugsa meira um sjálft sig en mig og þá næði það kannski sama árangri og ég en ég hef svo sannarlega náð langt. En samt móðgar menntamálaráðuneytið mig með því að segjast ekki nenna að veita mér styrk af því þeir vilji ekki láta mig skyggja á Björk þeirra. Hvurslags móðagnir eru þetta? Ég er öskureið yfir þessu og sagði við þá að ég myndi greiða þeim þessa helvítis styrkpeninga þeirra til baka með vöxtum. Ég var svo örugg með mig og sjáiði bara til hversu margar milljónir eintaka ég á eftir að selja á næstunni. Ég er með stóra samninga í gangi en ætla ekki að segja frá þeim á Íslandi þar sem hér vill fólk bara vinna skemmdarverk.
En ég verð alltaf Icy Spicy og þessir lygarar eiga ekki að fá að komast upp með að segja þetta. Bresk sjónvarpsstöð sagði orðrétt að Björk væri kannski þekktari en ég en að Leoncie væri best."
Fréttablaðið.
| 23:19 |