»  skrif  »  Skákdrottning skemmtir sér á Íslandi

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Skákdrottning skemmtir sér á Íslandi
Sunnudagur, 07. desember 2003

Regina.gif"Mér finnst miklu skemmtilegra að vinna með börnum en fullorðnum," segir Regína Pokorna stórmeistari í skák. "Ég elska að vinna með börnum. Ég þjálfaði nokkur börn heima í Slóvakíu og hafði mjög gaman að því." Regína kemur frá Slóvakíu og er í hópi öflugustu skákkvenna heims þrátt fyrir ungan aldur en hún er aðeins 21 árs. Regína er einn af ötulustu liðsmönnum Hróksins og hefur látið hressilega til sín taka í barnastarfi félagsins á síðustu mánuðum. Hún hefur meðal annars heimsótt fjölda grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi og hefur gert stormandi lukku hjá skólabörnum sem hafa notið leiðsagnar hennar og fengið tækifæri til að tefla við hana fjöltefli.

Lengi býr að fyrstu gerð
Sjálf var Regína ung að árum þegar hún settist fyrst að tafli. "Pabbi byrjaði að kenna mér að tefla þegar ég var á fimmta ári. Ég gekk í skákklúbb fljótlega eftir það og byrjaði að keppa á mótum þegar ég var sex ára. Þegar ég var 9 ára sigraði ég á móti í Tékkóslóvakíu og eftir það var ég send í heimsmeistarakeppni og varð í öðru sæti þar. Síðan þá hef ég keppt á fjölmörgum Evrópu- og heimsmeistaramótum og tel mig geta verið mjög sátta við árangurinn. Ég hef oftast verið í einhverjum af efstu sætunum og hef þrisvar orðið Evrópumeistari kvenna."
Regína segir að það sé engin spurning að það sé best fyrir börn að byrja að æfa sig í skákinni sem fyrst. "Þegar krakkar eru fimm til sex ára eru þau á mjög góðum aldri og taka framförum mjög hratt. Þau þurfa bara að mæta í skólann og sinna áhugamálum sínum og hafa því mikinn tíma aflögu og geta einbeitt sér að taflinu. Þegar þau eldast fjölgar áhugamálunum og það eru fleiri hlutir sem toga í þau og þá fer það oft þannig að þau nenna ekki að eyða miklum tíma í skákina. Áhyggjunum fer líka fjölgandi með aldrinum og þá minnkar einbeitingin."

Efnilegar stelpur á Íslandi
Regína segist hafa rekist á mjög efnilega krakka í Íslandsheimsóknum sínum en bendir á að það sé ekki nóg að vera efnilegur þegar maður er ungur og þeir sem vilji ná virkilega langt verði að taka skákina alvarlega og stunda æfingar og þjálfun eins og í hverri annari íþrótt. "Það er til dæmis mjög ánægjulegt að segja frá því að ég hef hitt nokkrar stelpur sem gætu náð langt en það er gaman að sjá hversu áhugasamar stelpurnar eru. Heima í Slóvakíu eru frekar fáar stelpur í skákinni og það er algengt að þegar ég keppi á stórum mótum þar þá eru yfirleitt um 50 stelpur að keppa innan um 500 stráka. Það er mjög gaman að sjá hversu mikill skákáhuginn er hérna. Hann er þokkalegur heima en aðalíþróttirnar eru fótbolti og íshokkí og annað fellur í skuggann."

Skákin gengur fyrir
Regína hefur komið til Íslands fjórum sinnum síðastliðið ár og heldur heimleiðis í dag eftir að hafa dvalið hér í tvo mánuði. "Þetta er búið að vera alveg frábært. Ég er bæði búin að vera að tefla fyrir Hrókinn á ýmsum mótum, til dæmis á Selfossi, og svo fór ég með Hróknum til Grænlands í sumar. Það var alveg æðislegt. Maður steig inn í einhvern allt annan heim á Grænlandi sem er engu líkt. Annars er ég mest búin að vera í skóla- og kynningastarfi Hróksins og hef haft gaman af."
Regína fer beint heim til Slóvakíu frá Íslandi en gerir ráð fyrir að koma aftur fljótlega á næsta ári. "Nú fer ég heim til að æfa mig. Ég tók mér árs frí frá skóla til að æfa mig og taka þátt í skákstarfinu hérna á Íslandi.
Nú hefst þjálfunin aftur á fullu en maður teflir svolítið öðruvísi eftir að hafa eytt svona miklum tíma með óreyndu skákfólki. Ég þarf því að herða mig þar sem ég er alls ekki sátt við hvernig ég hef verið að tefla undanfarið."

Dansar í Reykjavík
Regína sér þó síður en svo eftir þeim tíma sem hún hefur eytt á Íslandi. "Ég er búin skemmta mér alveg rosalega vel. Vinir mínir hafa komið hingað og verið með mér og þetta er búið að vera æðislegt." Regína gerði vitaskuld úttekt á hinu margrómaða næturlífi Reykjavíkur og lætur vel að.
"Það er mjög gaman að dansa og skemmta sér hér. Staðirnir eru fínir og tónlistin er mjög góð. Slóvakar þykja drekka mjög mikið en jafnast samt ekkert á við Íslendinga. Ég held að það sé ekki hægt að segja annað en Íslendingar drekki allt of mikið," segir skákdrottningin sem ætlar að skerpa sóknarleiki sína milli jóla og nýárs og mun svo mæta tvíefld til Íslands árið 2004.


Fréttablaðið


| 21:46 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff