Mánudagur, 12. janúar 2004
Ídol stjörnuleitin á Stöð 2 hefur heltekið þjóðina og þeir sem hafa náð þetta langt í keppninni hafa öll uppskorið sínar eftirsóttu 15 mínútur af frægð en eftir því sem fallistunum fjölgar fá stjörnuefnin að kynnast því að þó það sé hátt að klífa er fallið lágt og gleymskunnar dá tekur endalaust við. Það er þó huggun harmi gegn að sagan malbikar yfir okkur öll hversu hátt sem frægðarsólin rís.
Spaugstofan kann þó að vera yfir þetta hafin. Vinsældir hennar eru óþrjótandi og endingin með ólíkindum. Samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun Gallup horfa 46,6% á Ídolin á föstudagskvöldum. Þetta er auðvitað býsna gott en það horfa nákvæmlega jafn margir á Laugardagskvöld með Gísla Marteini í Sjónvarpinu sólarhring síðar. Gísli Marteinn, einn og sér, hefur því togkraft á við Kalla Bjarna, Önnu Kristínu, Jón Sigurðsson, sem er að vísu álíka glaðlegur og Gísli, Tinnu Marínu og Ardísi Ólöfu.
Það er þó ekki útilokað að Gísli Marteinn sé að græða áhorf á því að Spaugstofan kemur í kjölfar hans en það er engum blöðum um það að fletta að þeir Karl Ágúst, Siggi Sigurjóns, Örn Árnason, Randver og Pálmi Gests eru hin einu sönnu ídol íslensku þjóðarinnar en á þá horfa 68,8% Íslendinga í hverri viku. Geri aðrir betur.
Pálmi mætti býsna drjúgur í útvarpsþáttinn King Kong í gærmorgun og blés á allar gagnrýnisraddir um að Spaugstofan sé orðin gömul og lúin. Hann hafði líka alveg efni á því enda með yfir 60% áhorf hjá íslendingum 12-19 ára, 30-39 ára og 40-49 ára. Áhorfið eykst svo eftir því sem fólk eldist, er 84,2% hjá fólki 50-59 ára og að sögn Pálma horfa hvorki meira né minna en 100% fólks á aldrinum 60-80 ára á Spaugstofuna.
Pálmi benti þó á að það væri vissulega eðlilegt að ungir menn reyndu að gera lítið úr þeim sem eldri eru en beindi síðan spjótum sínum að Dr. Gunna sem sér um Popppunktinn á Skjá Einum. Doktorinn hefur sent Spaugstofunni tóninn en Pálmi svarar gagnrýni hans með því að benda á að það sé hjákátlegt þegar miðaldra menn séu með sama kjaft og unglingar.
Dr. Gunni er líka alger minnipokamaður í samanburði við Spaugstofuna en samkvæmt Gallup horfa 16,1% á Popppunktinn. Þátturinn er þó á góðri siglingu og því er alls ekki útilokað að hann verði orðinn jafn vinsæll og Spaugstofan er nú þegar Dr. Gunni er kominn á aldur Pálma og krakkarnir sem nú bítast um ídolsætið mæta sjóuð í Popppunktinn og leysa Rúna Júl og Sigurjón Kjartansson af sem keppendur.
Pálmi getur þá hlegið að því á elliheimilinu að það hafi þurft að sameina Popppunkt og Ídol til að ná Spaugstofunni.
Smáa letrið í Fréttablaðinu.
| 23:05 |