Laugardagur, 03. janúar 2004
"Það eru 69 örmyndasögur í þessari bók, alveg eins og í þeirri fyrri. 69 er nefnilega svo fyndin tala," segir Hugleikur Dagsson um bók sína Drepið okkur sem er sjálfstætt framhald Elskið okkur sem kom út fyrir síðustu jól. Hugleikur hefur safnað saman kaldhæðnum örmyndasögum sínum í þessar bækur sem hafa vakið nokkra athygli. Elskið okkur var til að mynda mest selda myndasagan í versluninni Nexus fyrir jólin í fyrra og hefur nú selst í 300 eintökum. "Það seldust um 200 bækur fyrir jólin í fyrra og svo hafa hundrað til viðbótar selst á árinu."
Elskið okkur hefur því ekki selst í minna magni en ljóðabók sem nýtur velgegni og Hugleikur segir tenginguna við ljóð heldur ekki vera alveg út í hött þar sem segja megi að sögur bóka sinna séu lítil myndljóð."
Situr og heftar
Hugleikur heftar bókina sjálfur saman og situr því sveittur við að koma fyrsta upplagi Drepið okkur saman. "Ég er á fullu í þessu núna en rafvirkinn sem skrifar innganginn aðstoðar mig stundum en ég stæri mig af því að þessi bók inniheldur mitt eigið, blóð, svita, tár, bros og takkaskó."
Hugleikur þótti beinskeyttur í Elskið okkur í fyrra en titill þeirrar bókar er þó öllu mildari en á nýju bókinni, þannig að það er kannski ekki von á góðu? "Fólk hefur sagt mér að því finnist þessi bók eiginlega svartari og grimmari og jafnvel grófari en sú fyrri. Ég er samt ekki að ögra neinum og er eins einlægur og ég get verið. Ég er ekkert að reyna að vera pólitískur og er ekki að deila viljandi á neitt. Það er ekki þar með sagt að ég verði fúll ef fólk sér einhverja þjóðfélagsgagnrýni í þessu. Ef bækurnar eru lesnar með því hugarfari að þær séu ein hvers konar ádeila þá eru þær örugglega gífurlega sterk samfélagsádeila."
Selur fólki persónulega
Hugleikur segist byggja á teikniaðferð sem hann datt inn á þegar hann var staddur á Seyðisfirði í fyrra. "Ég átti fullt af litlum blöðum og byrjaði á því að teikna tvo kalla á eitt þeirra. Hugmyndirnar fæddust síðan á færibandi og mér fannst þetta djöfulli skemmtilegt."
Þeir sem vilja kynnast gráglettni Hugleiks betur ættu að geta gengið að Drepið okkur vísri í myndasögubúðinni Nexus. "Þeir eru duglegastir að selja hana og panta mest. Bókin fæst líka í Búðinni á Laugavegi og í 12 Tónum sem er frábær búð. Elskið okkur fékkst líka í Máli og menningu á Laugavegi í fyrra og ég reikna með að koma Drepið okkur þar inn líka. Svo er ég líka alltaf með hana á mér og sel hana á förnum vegi. Það er alltaf skemmtilegast að selja fólki hana persónulega."
Fréttablaðið.
| 20:42 |