Fimmtudagur, 26. febrúar 2004
Menn sem telja sig vita fyrir víst hvaða leyninafn meintur barnaníðingur, sem komst í fréttir fyrr á árinu þegar hann var handtekinn með gríðarlegt magn barnaklámefnis undir höndum, notar á www.einkamal.is fullyrða að hann hafi snúið aftur á gamlar veiðilendur. Auglýsingin hans er býsna sakleysisleg en hann sækist eftir kynnum við stúlkur undir 35 ára aldri. Hann segist vera ígóðri stöðu, heiðarlegur og barngóður. Hann flokkar einnig börn sem áhugamál og finnst gott að kúra fyrir framan sjónvarpið. Þeir sem telja sig vita betur fullyrða þó að þarna fari úlfur í sauðagæru með raunverulegan áhuga á börnum fremur en kvenkyns jafnöldrum sínum.
Viðmælandi Fréttablaðsins hefur rökstuddan grun um að maður sem handtekinn var vegna umfangsmikils barnakláms fyrir ári, sé aftur kominn á kreik. Viðmælandinn gerði tilraun og setti póst á Netið þar sem hann þóttist vera unglingur, í leit að nánum kynnum. Svörin stóðu ekki á sér, og voru flest frá mun eldri karlmönnum.
"Ég hef rökstuddan grun um að maður sem var handtekinn í tengslum við umfangsmikil barnaklámsmál fyrr á árinu sé farinn að leita fyrir sér á ný á Einkamálum.is", segir maður sem fylgst hefur með umferð á stefnumótaþjónustunni Einkamál.is á Internetinu.
"Ég veit að hann leitaði að krökkum þarna á sínum tíma og hef mínar heimildir fyrir því að hann sé kominn aftur. Ég gerði sjálfur tilraun, til þess að kanna umfang og eftirspurn eftir svona efni, og setti inn auglýsingu á vefinn þar sem ég sagðist vera 16 ára gamall og langaði að kynnast "stelpum á mínum aldri og strákum sem eru svolítið eldri," eins og ég orðaði það. Svörin létu ekki á sér standa og fyrsta sólarhringinn fékk ég yfir sextíu svör. Þau voru flest frá karlmönnum á aldrinum 30 til 40 ára sem sögðust vera tilbúnir til að leiðbeina mér. Einn segist til að mynda eiga mikið úrval af hjálpartækjum sem hann vilji nota með mér. Hann segist ekki telja mig tilbúinn í endaþarmsmök að svo stöddu og vill byrja á munnmökum.
Ég svaraði sumum og viðurkenndi þá að ég væri ekki alveg orðinn 16 ára og einum sagði ég að ég vari bara 14. Þetta dró þó síður en svo úr áhuga þessara manna og mér finnst það með hreinum ólíkindum að það sé til mýgrútur af mönnum í kringum fertugt sem séu tilbúnir til að leggjast með 15 ára dreng undir því yfirskyni að þeir ætli að kenna honum á kynlífið.
Það er svo auðvitað fyrir neðan allar hellur ef þessi tiltekni maður er í þessum hópi. Að það skulið líðast að menn fái smá tiltal uppi á Hverfisgötu og geti svo haldið áfram þessari iðju og lagt snörur sínar fyrir ungmenni á Netinu."
| 23:39 |