Mánudagur, 16. febrúar 2004
Sverrir Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi á PoppTíví, var valinn besti sjónvarpsmaður ársins á Edduverðlaunahátíðinni á sunnudaginn. Sverrir er einn þriggja umsjónarmanna þáttarins 70 mínútur sem er sendur út daglega.
Þátturinn gerir út á kjánalegar fréttir, falda myndavél og fleira í léttum dúr og höfðar aðallega til ungs fólks. "Það hefur sjálfsagt komið einhverjum á óvart þegar nafnið mitt var lesið upp. Þarna voru þekkt nöfn á lofti allt kvöldið og Sverrir Sverrisson er kannski ekkert sérstaklega þekktur, enda er ég oftast bara kallaður Sveppi."
Sveppi fann ekkert fyrir því að kvikmynda- og sjónvarpselítan liti sig hornauga fyrir það að skjóta þekktara fólki ref fyrir rass. "Þetta er bara skemmtilegt og gaman að hrista svolítið upp í þessu. Ég vona að enginn hafi verið óhress enda er það bara hundleiðinlegt."
Sveppi er 25 ára gamall og er í barnlausri sambúð. "Ég ólst upp í Breiðholtinu en þar hef ég búið nánast allt mitt líf. Ég gekk í Breiðholtsskola og hélt svo áfram í Fjölbraut í Breiðholti og þar byrjaði fíflagangurinn. Félagslífið yfirtók námið að mestu og mig vantar enn svolítið upp á að klára stúdentinn."
Sveppi hafði lítið komið nálægt fjölmiðlum áður en hann mætti til leiks á PoppTíví. "Ég var bara hálfgerður pappakassi, vann meðal annars í Hagkaupum, á smíðaverkstæði og á grænmetislager. Tómt rugl."
Sveppi er bíófíkill og segist nánast sjá allt sem kemur í bíó. Þá kann hann afskaplega vel við að setjast niður á kaffihúsum með félögum sínum. "Svo finnst mér fínt að fara í sund. Það er rosalega gott að sitja í heitu pottunum. Ég er nú alltaf að reyna að drífa mig í að synda eitthvað en það er svo leiðinlegt," segir Sveppi sem, þrátt fyrir galsann, er heimakær og finnst gott að hanga heima "í góðum fílíng."
| 22:51 |