»  skrif  »  Ólafur og Davíð í Mínus

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Ólafur og Davíð í Mínus
Mánudagur, 09. febrúar 2004

Davíð Oddsson, forsætisráðherra, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gerðu fréttavikuna að sinni með föstum skotum hvor á annann í fjölmiðlum. Deilan snerist um fundarboð og skíðaferðir og þótt aðalleikendurnir hafi tekið sér fastmótuð og gamalkunn hlutverk er almenningur hálf ráðvilltur eftir snerruna og veit ekki hvað snýr upp né niður í stóra heimastjórnarmálinu. Davíð lék eineltispúkann með bravúr og Ólafur Ragnar glansaði sem regnbogabarnið og klagaði Davíð til yfirmanna beggja, íslensku þjóðarinnar, sem brást við eins og kleyfhuga skólastjóri sem veit ekki hvernig hann á að greiða úr stympingum á skólalóðinni.

Ummæli um skítlegt eðli og aðrar gamlar væringjar þessarra fornu pólitísku fjandmanna voru rifjaðar upp og óneitanlega skemmtu sér margir yfir því að þessir sjóuðu vígamenn skyldu kasta brosgrímunum og sýna svo ekki verður um
villst að þrátt fyrir góða hegðun á síðustu önnum eru gamlar sakir óuppgerðar. Davíð hefur verið í miklum vígamóð frá því hann tilkynnti það að hann væri að hætta og sagan segir að nú fari hrollur um alla sem gert hafa á hlut hans frá því í æsku. Ef sjálfur forsetinn er ekki öruggur þá fá væntanlega fleiri að kynnast því hvar Davíð keypti ölið fyrir 15. september.
Deila forsetans og forsætisráðherrans er flókin og illskiljanleg en þar sem hún virðist í gruninn vera persónuleg væri ekki úr vegi að þeir leiddu hana til lykta með gamaldags burtreiðum, að hætti miðaldariddara í Lækjargötu. Davíð var einmitt teiknaður í fullum herklæðum vopnaður lensu í útskriftarbókinni Faunu í MR og Ólafi ætti ekki að muna um að ríða gegn ráðherranum vopnaður skíðastaf.
Þessa stælur Davíðs og Ólafs eru nefnilega álíka kjánalegar og deilan sem blossaði upp milli rokkundanna í Mínus og miðaldra æskulýðsfulltrúa í vikunni. Mínus menn hafa gaman að því að tala digurbarkalega um kynlíf og dóp svo lengi sem ömmur þeirra frétti ekki af því en æskulíðsfulltrúarnir vilja ekki bara hlífa ömmunum, heldur íslenskri æsku eins og hún leggur sig. Hljómsveitin og forræðishyggjufulltrúarnir virðast þó vera sammála um það að íslenskir unglingar séu viljalausir kjánar. Fulltrúarnir vilja vernda börnin fyrir Mínus og Mínus vill bjarga börnunum frá því að verða öll steypt í eitt SAMFÉS mót.
Deilur forseta og forsætisráðherra gera lítð úr almenningi og deilur rokkaranna og æskulýðspáfanna gera lítið úr unga fólkinu. Það versta við þessi innihaldslausu moldvirðri er svo að stærsta frétt vikunnar, um barnaklámssafnara sem bíður dóms en lætur það ekki aftra sér frá því að tæla unglinga á Netinu, týndist í látunum. Það er móðgun við heilbrigða skynsemi, almening og börn sem þarf að vernda fyrir einhverju miklu hættulegra en kjaftagleiðum þungarokkurum.


Smáa letrið í Fréttablaðinu.


| 22:01 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff