Laugardagur, 28. febrúar 2004
Kolla Bergþórs verður með eithvað Óskarstverðlaunatrums í Fréttablaðinu á morgun og bað mig um að spá. Blaðið er á leiðinni í prentun og því væntanlega meinlaust að demba þessu á vefinn.
Besti leikarinn
Ég er í miklum vanda staddur hérna. Ef ég léti tilfinningarnar ráða segði ég Johnny Depp vegna þess að hann er æði. Ef ég á að vera heiðarlegur finnst mér samt að Sean Penn eigi að fá þetta. Ef það væri eitthvert réttlæti í Hollywood fengi Penn styttuna en ætli Bill Murray taki þetta ekki, enda Depp og Penn báðir utangarðsmenn í Hollywood.
Besti leikari í aukahlutverki
Það er einhver Óskarsára yfir Mystic River og ég geri ráð fyrir að Tim Robbins, ólíkt Sean Penn, njóti þess og vinni verðlaunin. Ken Watanabe væri þó vel að þeim kominn þar sem hann lyfti The Last Samurai á hærra plan.
Leikkona í aðahlutverki
Charlize Theron tekur þetta. Engin spurning. Fyrir það fyrsta er hún mjög góð leikkona en með því að láta breyta sér í skrímsli sannar hún að á bak við fríða snoppuna leynist þrusu talent. Það hefur líka alltaf verið líklegt til árangurs að bæta á sig aukakílóum að afskræma sig fyrir hlutverk. Fólk fær umbun fyrir slíkt í formi styttu.
Leikkona í aukahlutverki
Renée Zellweger er að hirða flest verðlaun fyrir þetta og því væri kannski eðlilegt að ákveða að hún fái Óskarinn líka. Ég held hins vegar að kaldhæðni örlagana mun leika hana grátt og hún fari tómhent heim. Hennar tími gæti þó vissulega verið komin. Annars má Marcia Gay Harden gjarnan fá verðlaunin og ég er ekki frá því að Óskarsára Mystic River gagnist henni vel og ríði baggamuninn.
Leikstjórn
Peter Jackson á að vera búinn að fá þessi verðlaun bæði fyrir The Felllowship of the Ring og The Two Towers og ef þetta lið sniðgengur hann eina ferðina enn má það allt brenna í helvíti. Ég er samt smeykur við þjóðrembinginn í Bandaríkjamönnum sem hefur stigmagnast eftir að brjálæðingurinn tók við völdum í Hvíta húsinu. Svo er kosningaár. Ætli Nýsjálendingur eigi nokkurn séns?
Besta myndin
Það sama má segja um bestu myndina og besta leikstjórann. Fái Hringurinn þessi verðlaun ekki núna þá er eitthvað mikið að. Það er auðvitað eitthvað mikið að þarna úti og Óskarinn verður aldrei raunhæfur mælikvarði á gæði eða hæfileika en The Return of the King trompar allar hinar myndirnar þó þær séu góðar. Það er dæmigert fyrir þetta lið að verðlauna þríleikinn í heild sinni núna en gerist það ekki verður gerð bylting.
| 21:28 |