»  skrif  »  Pöbbarölt þingmanna

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Pöbbarölt þingmanna
Þriðjudagur, 03. febrúar 2004

Alþingismenn sneru aftur úr löngu og vonandi góðu jólafríi í vikunni. Þingmenn vilja fæstir kannast við að löng jóla- og sumarfrí þeirra séu tímaskekkja þó spakir menn keppist við það á hverju ári að benda þeim á að þau séu arfur frá gamla bændasamfélaginu þar sem sauðburðir og sláturtíð réðu öllu um viðveru stórbænda sem riðu til þings.

Uppáhalds afsökun þingmannanna er sú að þeir séu ekki að slappa af með tærnar upp í loft í fríunum sínum þar sem þeir noti tímann til að lesa alls konar pappíra og brjóta heilann um það hvernig þeir geti sem best verndað kjósendur fyrir sjálfum sér með lagasetningum. Þá þurfa þeir að þvælast út um víðan völl til þess að ræða við almúgann um daginn, veginn og veðrið.
Þrátt fyrir nokkur kynslóðaskipti í síðustu kosningum er enn reytingur af gamlingjum á þingi og þeir halda sjálfsagt enn þessum forna takti í fríinu sínu. Þeir yngri eru meira í takt við samtímann og virðast margir hverjir eyða mestum frítíma sínum á öldurhúsum Reykjavíkurborgar. Þessi nýja frjálshyggja ungu kynslóðarinnar hefur vakið nokkra hneykslan enda ætlast almenningur enn til þess af kjörnum fulltrúum sínum að þeir séu öðrum mönnum vammlausari. Þetta hefur alltaf gilt um viðhorf til embættismanna almennt og þannig þykja það ekki góðir prestar sem stunda framhjáhald og geta illmögulega haldið helstu boðorð almættisins.
Það getur auðvitað enginn ætlast til þess að þingmenn, lögreglustjórar og prestar séu allir handan mannlegra veikleika en okkur virðist líða betur ef þeir stunda lesti sína innan veggja heimila sinna eða í lokuðum veislum, það er að segja svo lengi sem reikningarnir fyrir herlegheitunum leka ekki í fjölmiðla.
Nýju þingmennirnir sem hika ekki við að láta sjá til sín á almannafæri með öl í krús eru því óneitanlega brautryðjendur og nútímaleg hegðun þeirra hlýtur, fyrr eða síðar, að skila sér í nútímalegri starfsháttum hins háa Alþingis og styttri fríum. Það eina sem mælir gegn því er að timburmenn geta verið álíka tímafrekir og heyannir og haustslátrun.
Þegar vel er að gáð er þessi þróun þó jákvæð og ætti í raun að auka tiltrú kjósenda á fulltrúum sínum ef þeir neyta áfengis fyrir opnum tjöldum, svo lengi sem þeir deleri ekki alvarlega. Það er alþýðlegur og gamall íslenskur siður að kneyfa öl og með þessu móti færast þingmennirnir óhjákvæmilega nær umbjóðendum sínum og kjósendur í Reykjavíkurkjördæmunum og Kraganum geta andað rólega þar sem þeir vita að þeir þurfa ekki að fara lengra en á Ölstofuna til að hitta þingmanninn sinn að máli.
Það besta við þetta allt er svo að þetta grímulausa félagslyndi hins nýja þingheims raskar ekki gamla góða stöðugleikanum þar sem loforð gefin undir áhrifum áfengis eru jafn áreiðanleg og venjuleg kosningaloforð.

Smáa letrið í Fréttablaðinu


| 22:15 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff