»  skrif  »  Tíund

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Tíund
Laugardagur, 21. febrúar 2004

Hagnaðatrölur banka og annarra stórfyrirtækja hafa verið að detta inn og út úr umræðunni undanfarið. Það má sjálfsagt lengi velta þeim tölum fyrir sér en þær eru hins vegar orðnar svo fáránlega háar í augum hins almenna launamanns að hann veit varla hvað hann á að halda um þær.
Helstu áhrif þessara talna á daglaunaþrællinn sem hangir á horriminni eru þau að þær fylla hann tortryggni; það hlýtur að vera maðkur í þessari gróðamysu? Eru þessi fyrirtæki kannski að hluta þessara peninga af mér?, spyr hann sig á meðan hann dælir bensíni sjálfur á bílinn sinn og kaupir Prins Póló fyrir hagnaðinn.

Ímyndarsmiðir þeirra sem liggja á gróðanum hafa komist að því að það borgar sig að henda nokkrum molum af gnægtarborðinu og kjósa oftast að láta einhverja aðila sem aldrei geta skilað gróða en vinna þjóðþrifaverk njóta gjafanna. Milljón í þetta íþróttafélag, hundraðþúsund kall í hitt og reytingur handa langveikum börnum og einstæðum mæðrum.
Þeir sem vildu elja stofnfé SPRON ætluðu til dæmis að réttlæta viðskiptin með sjóði sem myndi úthluta um 300 til 400 milljónum króna árlega í hitt og þetta í menningunni.
Gott og vel. Engin ástæða til að amast við göfugri viðleitni til að láta gott af sér leiða en afhverju ekki að ganga skrefið til fulls og gera hlutina með stæl svo um munar? Landsbanki, Íslandsbanki og KB banki högnuðust samanlagt um 16,3 milljarðar á síðasta ári. Væri ekki ráð að setja tíund af þessum peningum í menningu, íþróttir og eitthvað sem fær fólk til að hugsa og hreyfa sig?
Þetta væri vitaskuld viðsnúningur á viðskiptahugmynd kirkjunnar sem gengur út á að smælingjarnir greiða hinum stóra tíund launa sinna en er samt ekki svo galið. Meirihluti tekna hins almenna borgara fer hvort sem er í það að smyrja tannhjól peningamaskínunnar á einn eða annan hátt þannig að þetta yrði bara falleg og skemmtileg hringrás. Það yrði að vísu meira líf og fjör í tilverunni en líklega hentar það hagsmunum þeirra sem ráða og græða best ef fólk situr hugsunarlaust fyrir framan sjónvarpið alla daga.

Smáa letrið í Fréttablaðinu


| 22:27 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff