»  skrif  »  Afmæliskaffi á kosningaskrifstofu

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Afmæliskaffi á kosningaskrifstofu
Laugardagur, 17. apríl 2004

Björn Bjarnason er 58 ára í dag. Hann verður á þönum á afmælisdaginn enda í mörg horn að líta hjá þingmanninum og borgarfulltrúanum. Hann er byrjaður í prófkjörsbaráttu og vonast til að hitta einhverja vini og kunningja á kosningaskrifstofu sinni í Sætúni 8 og fagna tímamótunum með kaffibolla. Annars verður afmælisdagurinn ekki ýkja frábrugðin öðrum dögum. "Maður gerir sér auðvitað alltaf einhvern dagamun en ég er ekki mikið fyrir stórveislur. Yfirleitt hefur fjölskyldan gert eitthvað saman en börnin okkar eru bæði stödd erlendis. Sigríður Sól býr í New York og Bjarni Benedikt er í Barcelona, þannig að við Rut höldum upp á daginn saman."

Björn er fæddur árið 1944, sonur Bjarna Benediktssonar, alþingismanns og ráðherra, og Sigríðar Björnsdóttur. Hann ólst upp í austurbæ Reykjavíkur, lengst af í Hlíðunum, og hefur nánast alltaf haldið sig í þeim hluta borgarinnar. "Hlíðaskóli var ekki kominn til sögunnar og ég gekk því drjúgan spöl í Austurbæjarskóla." Björn lauk stúdentsprófi frá MR og tók lögfræðipróf við HÍ árið 1971.
Björn segist hafa verið rólegur drengur og svolítill sveitamaður í sér. "Ég dvaldi öll sumur frá sex ára aldri og fram yfir fermingu í Skagafirði, en faðir minn bað samþingmann sinn, Jón Sigurðsson, að hafa mig á Reynisstað. Sveitalífið veitti mér mikla ánægju og var stór þáttur í uppvexti mínum. Ég var einnig til sjós á varðskipi og vann í síld, þannig að ég held að ég hafi ekki eytt heilu sumri í Reykjavík fyrr en um tvítugt."
Björn segist hafa fengið að finna nokkuð fyrir því í æsku að hann væri sonur föður síns. "Það varð varla hjá því komist. Pólitískar deilur voru miklu hatrammari og fóru fram á öðrum forsendum en nú. Þannig að ég fékk eitthvað að finna fyrir þessu, bæði í skóla og annars staðar, en þetta skaðaði mig ekki neitt."


| 15:51 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff