»  skrif  »  Síungur en geđstirđur andarsteggur

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Síungur en geđstirđur andarsteggur
Sunnudagur, 13. júní 2004

Ţađ er sjálfsagt ekki á neitt fiđurfé hallađ ţó fullyrt sé ađ Andrés Önd sé frćgasta önd allra tíma en ţetta magnađa hugarfóstur Walt Disney fagnar 70 ára afmćli sínu í dag.
Andrés, eđa Donald Duck eins og hann heitir á frummálinu, kom fyrst fram á sjónarsviđiđ ţann 9. júní 1934 í teiknimyndinni The Wise Little Hen, eđa Skynsama hćnan. Ţessi titill er auđvitađ alveg galinn í ljósi ţess hvernig persóna Andrésar ţróađist en öll heilbrigđ skynsemi er iđulega víđs fjarri ţegar Andrés er annars vegar.

Illskiljanlegt kvak verđur ađ visku

Andrés er sjálfsagt flóknasta og dýpsta persónan í Disneygalleríinu og gćddur miklu fleiri mannlegum eiginleikum en hinn leiđinlega klári Mikki Mús sem hefur skyggt á Drésa frá fyrsta degi. Andrésinn í teiknimyndunum var latur og uppstökkur slćpingi og nánast óskiljanlegt kvakiđ í honum ţótti einna fyndnast í fari hans.
Ţađ féll síđan í hlut Carl Barks ađ útfćra persónu Andrésar á pappír í Andrésblöđunum sem hafa stytt fólki á öllum aldri stundir áratugum saman. Barks dýpkađi persónu andarinnar geđvondu og lét hann tala mannamál. Ţá bjó Barks til Andabć ţar sem söguhetjan gat vitaskuld ekki lifađ í lausu lofti. Bćinn fyllti hann síđan af litskrúđugum íbúum sem hafa fylgt Andrési síđan, bćđi til ánćgju en oftar til ama og óţćginda.
Fremstir í ţessum flokki eru vitaskuld litlu frćndurnir hans, ţeir Rip, Rap og Rup, forríki frćndinn Jóakim Ađalönd, kćrastan Andrésína, Hábeinn, hinn óţolandi heppni samkeppnisađili Andrésar um hylli Andrésínu, og uppfinningamađurinn Georg gírlausi.
Barks hélt ţví statt og stöđugt fram ađ enga dýpri merkingu vćri ađ finna í sögum hans um Andrés en ţađ er ţó ekki hćgt ađ líta fram hjá ţví ađ oftast er Andrés ađ takast á viđ vandamál og ađstćđur sem eru dćmigerđar fyrir hiđ daglega stređ hins alţjóđlega međaljóns.

Önd glímir viđ mannlegan breyskleika

"Mér hefur alltaf fundist ég vera óheppinn eins og Andrés sem er fórnarlamb svo margra ađstćđna," sagđi Barks einhverju sinni um sig og afmćlisbarn dagsins. "En ţađ fyrirfinnst ekki sú manneskja í Bandaríkjunum sem getur ekki samsamađ sig Andrési. Hann er allt og allir; hann gerir sömu mistök og viđ öll. Stundum er hann vondur en oftast er hann góđur náungi og gaur sem á ţađ til ađ klúđra sínum málum eins og hver annar međalmađur og ţađ held ég sé ein af ástćđunum fyrir ţví ađ fólki líkar viđ öndina."
Ţađ er varla miklu viđ ţessa greiningu ađ bćta. Andrés er viđ öll í hnotskurn, hégómagjarn, uppstökkur, gramur, afbrýđisamur, leggur sig allan fram í uppeldinu og verđur fyrir stöđugum áföllum í brauđstritinu og missir sig í ađstćđum sem hann rćđur ekki viđ. Hann nýtur ţví samúđar lesandans um leiđ og hann gerir fólki kleift ađ hlćja ađ sjálfu sér og gráglettni eigin örlaga. Andrés er ţví ekki einungis flöt teiknimyndafígúra heldur ein af nafntoguđustu persónum heimsbókmenntanna í öllum sínum endalausa fjölbreytileika.


| 15:28 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff