»  skrif  »  Kaffihúsaheimspeki ástarinnar

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Kaffihúsaheimspeki ástarinnar
Fimmtudagur, 05. ágúst 2004

Ég er búinn að vera kaffihúsaheimspekingur í afleysingum í sumarfríinu. Sit á kaffihúsum og ölkrám meira og minna allan sólarhringinn, drekk kaffi, hugsa og ræði við fólk sem nennir að hlusta á nýjustu niðurstöður mannlífsrannsókna minna.

Helstu niðurstöður helgarinnar eru að á Langa bar heldur til fólk sem hefur dýpri skilning á lífinu en slektið sem troðfyllir Ölstofuna.
Á Langa bar kemur saman skipbrotsfólk úr ólgusjó lífsins, djúpviturt, ofurölvi og svolítið þreytt. Þetta fólk hefur samt pláss í hjarta sínu fyrir náungann, hefur raunverulegar áhyggjur af líðan Bobby Fischers í fangabúðunum í Japan og hefur enn meiri áhyggjur af andlegri líðan félaga sinna sem dvelja í fásinninu á Litla-Hrauni.
Á hinum staðnum er fólk öllu uppteknara af sjálfu sér og talar helst ekki um annað. Allir eru auðvitað á uppleið og ætla að verða eitthvað æðislegt. Einhverjir munu þó auðvitað detta í lukkupottinn og enda á Langa bar. Reynslunni ríkari og bæði betri og skemmtilegri manneskjur en þeir eru þessa stundina.
Annars tala ég og hugsa mest um ástina þegar ég er ekki að ræða hinstu rök tilverunnar við atvinnufyllibyttur eða bjarta framtíð atvinnuupa sem sjá fram á bjartari tíma og haug af gervipeningum. Það er meira að segja búið að opna Rex aftur!
Rannsóknir mínar á ástinni hafa leitt mig að þeirri niðurstöðu að hún er blekking, ekki til. Þeta hef ég reynt á eigin skinni og fæ nú mikið út úr því að rífa niður ungt og ástfangið fólk. Þeir sem eru um tvítugt liggja best við höggi og bölspámaðurinn fullyrðir glottandi að lífið þurfi ekki nema nokkur ár til viðbótar til að mola þau niður og drepa ástina.
Var um daginn spurður hvort það væri hægt að finna ástina á nektardansstað. Svarið er "já". Þar sem ástin er blekking er hægt að finna hana alls staðar og það er auðvitað hægt að kaupa hana eins og allt annað um þessar mundir. Ástin endist þó ef til vill skemur á Goldfinger en í kjallaríbúð í Grafarvoginum. Hún blómstar á meðan fjármagnið er fyrir hendi en þegar synjunin kemur á greipslukortið gufar hún upp. Þetta getur gerst á nokkrum klukkustundum við súluna en tekur stundum ár og jafnvel áratugi annars staðar.
Lokaniðurstaðan verður þó hin sama: "Ekki reyndist innistæða fyrir ástinni".


| 16:15 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff