Sunnudagur, 08. ágúst 2004
Ásgeir Davíðsson, sem er best þekktur sem Geiri í Maxims, hefur opnað verslun með hjálpartæki ástarlífsins á undir merkjum Maxim´s Frakkastíg þar sem súlustaðurinn Vegas var áður til húsa. Þar býður Geiri upp á flest það sem hugurinn girnist þegar kemur að kynlífi, hvort sem fólk kýs að stunda það eitt með sjálfu sér eða með öðrum.
Gervilimir og -sköp fást í öllum stærðum og litum og þeir sem hafa efni á geta splæst sér í uppblásinn bólfélaga í fullri stærð. Helsta nýungin á nýja staðnum er þó svokallað "pepshow" eða gæjusýning þar sem hægt er að fylgjast með föngulegum stúlkum eða flottum körlum fletta sig klæðum. Áhorfendur eru þá einir útaf fyrir sig í litlum, myrkum klefa og svo lengi sem þeir dæla seðlum í sjálfsala helst útsýni þeirra óskert. Geiri hrökklaðist á sínum tíma frá Reykjavík með súlustaðinn sinn Maxim´s þegar borgaryfirvöld gerðu honum erfitt um vik með 4 metra nálgunarbanni gesta á nektardansmeyjarnar.
En nú er Geiri sem sagt kominn aftur til borgarinnar og segir engan hafa amast við sér enda sé gæjusýningin í litlu frábrugðin því að sitja og horfa á "ljósbláa mynd í sjónvarpinu." Geiri mun einnig opna kynlífssímalínu á næstunni og grét það þurrum tárum þegar mínútan á nýju línunni var auglýst, fyrir mistök, á 299.000 krónur í DV í gær. Síminn þagnaði ekki á Maxim´s þar sem menn vildu ólmir fá að vita hvaða ósköp þeir fengju að heyra fyrir þessa upphæð. Geiri opnar Maxim´s klukkan 12 á hádegi og lokar á miðnætti. Gæjusýningarnar byrja strax í dagsbirtu en fyrst um sinn býður Geiri aðeins upp á dömur í klefanum en bætir úr karlmannsleysinu þegar karlkynsdansarinn á staðnum kemur heim en hann keppir nú á heimsmeistaramóti strippara. Geiri leggur mikla áherslu á að hægt verði að skoða fáklæddan karl hjá sér þar sem vöruúrvalið í nýju búðinni miðist fyrst og fremst við þarfir kvenna.
| 17:47 |