»  skrif  »  Tímalaus eymd

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Tímalaus eymd
Miðvikudagur, 18. ágúst 2004

Alveg frá ţví ađ ég var barn hefur mig dreymt um stađ ţar sem engin dagatöl, klukkur og stundatöflur stjórna lífinu. Í ţessari útópíu minni gćti ég vaknađ ţegar mér sýndist, fariđ ađ sofa ţegar mér sýndist og dólađ mér í gegnum lífiđ án ţess ađ ţurfa nokkurn tíma ađ standast tímamörk, axla ábyrgđ eđa hafa yfirleitt nokkra skođun á nokkrum sköpuđum hlut.

Ég fann ţennan stađ á Grćnlandi fyrir skömmu og komst eina ferđina enn harkalega ađ ţví ađ mađur skyldi fara varlega međ ađ óska sér ţar sem óskin gćti rćst međ tilheyrandi skelfingu.
Í Tasiilaq á austurströnd Grćnlands skiptir tíminn engu máli. Ţau fáu ţjónustufyrirtćki sem starfa í bćnum hafa ađ vísu auglýsta opnunartíma en ţeir eru stađlausir stafir ţar sem hending ein virtist ráđa ţví hvort kaffihúsiđ og sjoppan vćru opin á uppgefnum tímum.
Eymdin er allsráđandi í ţessu klukkulausa ţorpi sem ég hefđi taliđ ađ ćtti ađ vera paradís á jörđ. Moldarvegirnir eru á kafi í rusli, sígarettustubbum og bjórdósum og íbúarnir mćla ţá fram og til baka og reyna ađ drepa tímann sem er samt ekki til. Láta daginn líđa á rölti í subbuskapnum og bíđa eftir ađ nćsti dagur, sem verđur nákvćmlega eins, rísi upp.
Verđmćtasköpun á stađnum er engin og allt framtak hefur veriđ drepiđ niđur. Ţađ vantar tímann, klukkuna, dagataliđ. Ţessa miskunnarlausu herra sem keyra mannskepnuna áfram og virkja bćđi til góđra verka og slćmra.
Kaupfélagiđ á stađnum sýnir ţessa heimsmynd í hnotskurn en ţar má kaupa brennivín, haglabyssur og útfararkransa. Ţađ er nefnilega ekkert hćgt ađ gera í tímaleysi annađ en drekka sig fullan og skjóta sig í hausinn.


| 19:14 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff