»  skrif  »  Skammdegisþunglyndi

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Skammdegisþunglyndi
Miðvikudagur, 29. september 2004

Þegar það fer að skyggja og kólna á þessu guðsvolaða landi hugsa ég alltaf þessum norsku hálfbjánum sem settust hér að í landnáminu þegjandi þörfina. Hverjum öðrum en þunglyndum Norðmönnum á flótta undan húmorsleysinu heima fyrir hefði dottið í hug að hefja búskap á ísmola á mörkum hins byggilega heims?

Skammdegisþunglyndið mitt er þeim að kenna en ekki mér en það er ekki ofsögum sagt þetta með syndir feðranna og þess vegna fellur það mér í skaut að greiða úr sálarflækjunni sem hinn rangnefndi Leifur heppni (Ingólfur Arnarson, obviously) af mér.
Hefði manngarmurinn haft rænu á því að láta öndvegissúlurnar eiga sig og sigla áfram lægi ég sjálfsagt núna á sólarströnd að lepja margarítur í stað þess að horfa út um gluggann með kvíðahnút í maganum.
Áratugalagt andlegt skammdegi hefur þó kennt mér ýmislegt og ég er næstum hættur að vera hræddur við kuldann, myrkrið og depurðina. Ég er til dæmis hættur að spila "Aldrei fór ég suður" með Bubba á "repeat" frá september til maí. "Langa dimma vetur vindurinn smaug í gegn um allt./ Kannski var öllum öðrum hlýtt en mér var allavegana kalt./ Þar biðu allir eftir sumrinu en biðin var löng og ströng./"
Ég er líka hættur að sjá feita loftbita og hengingarólar í hillingum í desember þegar fjöldinn reynir að gleyma vetrarhryllingnum í yfirkeyrðu jólaljósasjói. Lausnin er einföld; tvöfaldur skammtur. Tvöfaldur skammtur af geðlyfjum (fyrir þá sem þau taka), brennivíni (fyrir það sem það nota), kynlífi (fyrir þá sem það stunda), sjónvarpi (fyrir þá sem á það glápa), eróbikk (fyrir þá sem það stunda) og svona mætti lengi telja. Í stað þess að bíða eftir sumrinu er best að tapa sér í neyslu og með 40 mg af prósakki, kanaúlpuna mína og grænlensku selskinnshúfuna getur ekkert stöðvað mig.
Maður verður að tækla íslenska veturinn (sem er að vísu orðinn að löngu, leiðinlegu hausti) að hætti víkinga og þeirra vitleysinga sem komu okkur hingað.


| 22:21 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff