»  skrif  »  Undir áhrifum

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Undir áhrifum
Miðvikudagur, 01. september 2004

Skemmtilegt hvað fólk getur orðið vitlaust með víni. Einu sinni drakk ég til þess að skerpa á hugsuninni og auðga andann. Það virkaði ekkert sérstaklega þegar upp var staðið og ég hef ekki enn hitt þann mann sem verður gáfaðri við það að drekka. Leitaði samt að þessum manni í miðborg Reykjavíkur um helgina. Hann lét ekki sjá sig en það var aftur á móti offramboð á fólki sem verður vitlaust með víni.

Ég skemmti mér því konunglega þar sem það gleður mig fátt jafn mikið og að fá að fylgjast með öðrum verða sér til skammar. Þar fyrir utan er ágætt að láta minna sig á það með grafískum hætti hvað varð til þess að maður hætti að drekka.
Góður kunningi minn hefur þróað sérstakt 12 spora kerfi til að halda mönnum þurrum en það gengur út á að ganga í gegnum Kaffi Austurstræti í 12 sporum og virða fyrir sér eymdina hjá hirð Bakkusar.
"Þú mátt alls ekki stoppa því þá er stutt í að þú byrjir að drekka með þeim," segir þessi sjálfskipaði áfengisráðgjafi. Ég tek þó sénsinn af og til og sit tímunum saman á ölkrám. Finn mér gott stúkusæti og fæ mér kaffi. Um helgina fékk ég að sjá tvo alíslenska fituhlunka upplifa sig sem kyntröll með þeim afleiðingum að þeir tættu sig úr að ofan og leyfðu viðstöddum að skoða mörina sem þeir hafa safnað utan á sig. Hjón rifust og menn hótuðu slagsmálum á báða bóga og undir þessu sjónarspili var leikin angurvær sinfónía hinna brotnandi glasa.
Nóttin náði hápunkti þegar dagfarsprúður komplexabolti hvolfdi borði með leikrænum tilþrifum þannig að nokkrir lítrar af bjór fóru til spillis. Sem gömul fyllibytta gat ég ekki varist þeirri hugsun að þarna hefði verið farið illa með góðan bjór. Sá samt ekki eftir miðinum í gólfið.

Þetta er yndislegt líf, sérstaklega þegar aðrir eiga bömmerana.


| 9:32 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff