»  skrif  »  Æðri máttur?

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Æðri máttur?
Þriðjudagur, 05. október 2004

Einhverra hluta vegna er ég mikið að pæla í honum Jesú þessa dagana. Þar sem ég er heiðingi hef ég ekki séð ástæðu til að vera mikið að spá í hann og var fastur í þeirri hugsanavillu að Kristur og kirkjan væru eitt.
Ég hef svo sem ekkert efast um að Jesús hafi verið góður gæi þótt Biblían sé full af bulli og hefði í upphafi átt að vera markaðssett sem skáldskapur en ekki leiðbeiningarrit um hvernig lifa eigi lífinu.

Fyrst leit ég á Jesú sem hippa sem kom með nýja strauma inn í brenglað samfélag og síðar taldi ég hann til töffara þar sem hann var óumdeilanlega uppreisnarmaður og slíkir hafa alltaf verið mér að skapi. Nú er mikið í tísku að tala um Krist sem femínista og ég kaupi það alveg enda fer það ekkert á milli mála að Jesús var jafnréttissinni þó karlrembur fyrri tíma hafi lagt sig fram um að skrifa konur út úr sögu hans. Það segir hins vegar allt sem segja þarf að það voru konur sem aldrei brugðust honum og voru hjá honum við krossinn á meðan karlarnir kepptust við að afneita honum í kappi við hanann.
Það er sem sagt ekkert að Kristi, sem var femínisti, uppreisnarmaður og hippi, en það er eitthvað mikið að kirkjunni sem hefur tútnað út í gegnum aldirnar á rembu og fordæmingu á flestu því sem gerir lífið skemmtilegt. Þetta hefur aðallega verið að velkjast fyrir mér þar sem mér hefur verið uppálagt að finna einhvern mátt mér æðri. Þann mátt hef ég ekki fundið og geri sjálfsagt aldrei og vil kenna skipulögðum trúarbrögðum um.
Það er ekki fallega gert að taka boðskap góðra manna, spinna út frá honum blekkingarvefi og breyta í kúgunartæki. Bitur reynslan hefur kennt okkur að kristin kirkja hefur ekki bætt heiminn svo heitið geti þannig að það hlýtur að vera tímabært að hrista rembuhlekkina af boðskap Jesú og vinna út frá grasrótarhugmyndum hans um náungakærleik og jafnrétti. Takist okkur það fer maður kannski að gefa því séns að það sé einhver æðri máttur þarna úti.


| 10:54 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff