»  skrif  »  Vondir PR-menn

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Vondir PR-menn
Þriðjudagur, 12. október 2004

Það var munur að alast upp á síðari hluta 20. aldarinnar þegar Rússar voru vondir, Kanar góðir og eina afstaðan sem maður þurfti að taka til kapítalismans var hvort maður ætlaði að drekka Kók eða Pepsí. Kaffið var bara frá Braga eða Kaaber og tannkremið frá Colgate. Menn voru annað hvort vondir eða góðir, kommar eða íhald og þeir ístöðulausu hringsnerust á miðjunni undir merkjum Framsóknarflokksins. Lífið var einfalt.

Endalaust áreiti og upplýsingaflæði samtímans hefur gert það að verkum að athyglisgáfa nútímamannsins er mæld í sekúndubrotum. Sérstök starfstétt, svokallaðir PR-menn eða spunameistarar, hafa sprottið upp úr þessu andlega tómarúmi en þeir hjálpa okkur að hugsa og mynda skoðanir. Rétt og rangt eru því hugtök sem eru gufuð upp og sannfæring einsaklingsins er fyrirbæri í útrýmingarhættu í þessum nýja heimi handan góðs og ills.
Það er helst að gömlu gildin þrífist í dásamlegri óreiðu undirheimanna en glæpamenn eru með sanni utangarðsmenn og því oft seinir að tileinka sér tískustrauma borgarasamfélagsins. Þar eru verkin látin tala, oftast án þess að gefa afleiðingum nokkurn gaum. Það undarlega uppátæki meints handrukkara að hafa í hótunum við blaðamenn vegna umfjöllunar DV um skrautlegan feril hans er gott dæmi um það sem kallað er vont PR. Hvaða miðlungs PR-maður hefði getað útskýrt það fyrir handrukkaranum að það að ætla sér að berja blaðamenn fyrir fréttaflutning væri fyrst og fremst til þess fallið að vekja enn frekari athygli á meintum myrkraverkum. Það eina rétta í stöðunni hefði verið að halda sig til hlés og leyfa athyglisbresti almenings að kæfa málið.
Það er því greinilega kominn tími til þess að íslenskir krimmar fái sér PR-menn. Allir helstu hryðjuverkahópar eru komnir á kaf í almannatengslin. Ribbaldarnir sem réðust á barnaskólann í Beslan voru með sinn eigin fjölmiðlafulltrúa og nú er röðin komin að íslenskum skúrkum.


| 14:08 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff