Þriðjudagur, 02. nóvember 2004
Franski leikstjórinn Jean-Jaques Annaud fer sínar eigin leiðir og hikar ekki við að taka áhættu í verkefnavali. Hann vakti mikla athygli fyrir kvikmyndina Björninn árið 1988. Þar fór risavaxinn skógarbjörn með aðalhlutverkið. Annaud fékk annað tækifæri til að vinna með dýrum við gerð Two Brothers og teflir nú fram tígrisdýrum í lykilhlutverkum.
Jean-Jaques Annaud hefur komið víða við á ferli sínum og á að baki jafn ólíkar myndir og The Quest for Fire, The Lover, Seven Years in Tibet, Enemy at the Gates, The Name of the Rose og The Bear.
Sjálfur telur hann þó allar myndir sínar eiga ákveðin sameiginleg meginstef. "Ég held að í hverri mynd sé ég að kanna mismunandi þætti í fari mínu með því að horfa á heiminn með augum einhvers annars. Ég held að stærstu mistök okkar séu að vilja ekki setja okkur í spor annarra.
Þá finnst mér fátt jafn spennandi og árekstrar ólíkra menningarheima. Í Two Brothers skoða ég átök mannheima og heims tígrisdýrsins sem eru í sjálfu sér ekkert ólík átökum Þjóðverja og Rússa í Enemy at the Gates og deilum munkareglna í Nafni Rósarinnar. Ég held að átök menningarheima séu þungamiðja allra verka minna en við höfum þetta hjá Brad Pitt í Tíbet, á milli frönsku stúlkunnar og kínverska mannsins í Elskuganum og björninn gegn mönnunum í The Bear.
Ég er líka alltaf jafn spenntur fyrir því að finna dýrið í manninum en þar er skepnuskapur í stríðinu í Enemy at the Gates og kynlífinu í Elskhuganum.
Speglar sig í dýrunum
The Bear vakti mikla athygli á sínum tíma en þar var risavaxið bjarndýr miðpunktur frásagnarinnar þannig að lítið sem ekkert var talað í myndinni enda mennskir leikarar í algerum aukahlutverkum. Gerð Bjarnarins var bæði flókin og hættuleg en Annaud skemmti sér þó svo vel á meðan á tökum stóð að fimmtán árum seinna gerði hann myndina Two Brothers sem var frumsýnd í Reykjavík í vikunni.
"Það sem var erfiðast við gerð Bjarnarins var að björninn drap mig næstum því. Ég er enn með ör á bakinu eftir hann," segir leikstjórinn og bætir því við að þrátt fyrir þetta hafi gerð myndarinnar verið lærdómsrík og ánægjuleg reynsla.
"Ég lærði svo margt um mannlegt eðli af því að gera þessa mynd. Þegar ég horfði á björninn fann ég dýrið í sjálfum mér og kynntist um leið framandi þáttum í eðli mínu. Þetta gerði mig auðmjúkan á einhvern hátt og það er líklega þess vegna sem ég fann mig knúinn, 15 árum seinna, til að gera aðra mynd sem gæfi mér kost á að kanna bæði mannlega þáttinn í dýrunum og dýrið í sjálfum mér. Þegar ég var að gera Björninn hvarflaði þó ekki að mér að ég myndi nokkurn tíma gera svona mynd aftur. Aldrei, en öll þessi ár hef ég lifað á áhrifunum sem ég varð fyrir við gerð myndarinnar og gleðinni sem ég upplifði á meðan."
Mannlegt eðli villidýrsins
Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að það tekur á að gera kvikmynd með dýrum í aðalhutverki en Annaud segist hins vegar ekki vera mikið fyrir að auðvelda sér lífið.
"Auðvitað er þetta erfitt en það er líka svo gefandi þegar það gengur upp. Ef þú vilt gera þessa vinnu auðvelda ættirðu að taka kvikmyndina upp í íbúð nágranna þíns, með leikurum sem eru vinir þínir. Þetta gæti alveg orðið frábær mynd en ég hef allt aðra sýn á það hvernig á að gera bíómyndir og hugsa aldrei um það hversu erfitt verkefnið er heldur um ánægjuna sem fylgir því að sjá lokaniðurstöðuna."
Annaud talar hiklaust um tígrisdýrin sem leikara og ber þau saman við manneskjur. "Tígrisungarnir eru ekkert erfiðari viðureignar en smábörn. Ég hafði kynnt mér dýrin mjög vel og var með lista frá sérfræðingum um það hvernig tígrisdýr leika sér og skrifaði atriðin út frá því. Þetta gekk allt upp og dýrin gerðu nákvæmlega það sem ég bjóst við að þau myndu gera fyrir framan myndavélina."
Þegar það kom að vinnu með fulloðrnu dýrunum segir Annaud að hann hafi nálgast þau eins og ófaglærða leikara en þar segir hann mikilvægast að setja fólk ekki í framandi aðstæður og nefnir sem dæmi að best sé að láta sjómann leika sjómann. "Hann hefur ánægju af því að gera eitthvað sem hann þekkir og leikurinn verður honum því eðlilegur. Þannig leikstýrði ég tígrisdýrunum og setti þau í aðstæður sem þau skildu og síðan þurfti ég ekki að gera mikið. Þau spunnu bara atriðin eins og hvaða tígrisdýr hefði gert í þessum aðstæðum."
Horft með augum tígursins
"Starf leikstjórans er svo spennandi þar sem það krefst þess að maður fari inn í persónurnar og leikarana. Þannig hefur það verið vinnan mín að samsama mig munkum fyrir Nafn Rósarinnar, fyrrverandi nasista í Seven Years in Tibet og 15 ára stúlku fyrir Elskugann. Ég þurfti því að spyrja mig að því hvað ég myndi gera ef ég væri tígrisdýr? Þetta var stórkostlegt viðfangsefni ekki síst þegar það rann upp fyrir mér að tígrisdýrin eru mjög mannleg og ég mjög dýrslegur.
Mér finnst það frábært að við skulum vera svona lík dýrunum og held að það sé þess vegna sem ég fæ svona mikið út úr því að gera myndir eins og Björninn og Bræðurna tvo. Hér áður fyrr leit ég, eins og svo margir aðrir, á dýr sem skynlausar skepnur og taldi mig svo sérstakan af því að ég var manneskja. Ég komst svo að því að með þessum viðhorfum myndi ég aldrei skilja hvatir mínar og tilfinningar. Nú skil ég þetta allt fullkomlega, sé tenginguna og líkindin á milli manna og dýra og finnst þetta miklu meira spennandi en ógnvekjandi."
Daðrað við hið dýrslega
Annaud gat þess í upphafi að bjarndýr hefði nærri banað honum á sínum tíma og hann dregur ekki úr því að hann og starfsfólk hans var einnig í stórhættu við gerð Two Brothers.
"Við vorum í hættu á hverjum degi. Ég hafði ekki áhyggjur af sjálfum mér enda tek ég mína sénsa en hafði meiri áhyggjur af vinnufélögum mínum. Ég var með 500 manna lið með mér og mín versta martröð var að einhver yrði fyrir meiðslum. Við vorum svo hrædd að við gættum alltaf ítrustu varúðar og það gerðist því ekki neitt. Við tókum engar áhættur einmitt vegna þess hversu dýrin eru hættuleg. Fólk og dýr eru eins að þvi leyti að hættulegustu manneskjurnar eru aðlaðandi, tálkvendin og flagararnir. Tígrisdýrin eru daðrarar og koma til þín voða kelin og þú hugsar með þær "æ, hvað dýrið elskar mig mikið" og svo étur það þig. Þau eru mjög mannleg að þessu leyti.," segir Annaud og hlær. "Þetta er til dæmis tilfellið með hvaða stjórnmálamann sem er."
| 12:55 |