»  skrif  »  Listin að gera ekki neitt

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Listin að gera ekki neitt
Þriðjudagur, 02. nóvember 2004

Mér leiðist daglegt amstur og finnst þess vegna allir dagar í dagatalinu jafn leiðinlegir. Laugardagar eru mér til jafn mikillar mæðu og mánudagar. Það gildir nefnilega einu hvað dagurinn heitir, hann rúmar jafn margar leiðinlegar klukkustundir og allir hinir. Kannski er lífið svona eintóna af því að ég er hættur að drekka brennivín, kannski vegna þess að þvottavélin mín er biluð. Veit það ekki.

Síðasta vika var jafnvel leiðinlegri en allar hinar vikurnar á undan og ég lofaði mér því á miðvikudegi að ef ég lifði föstudaginn af skyldi ég slæpast alla helgina, gera ekki neitt.
Það er mikil kúnst að gera ekki neitt án þess að láta sér leiðast og það er sérstaklega erfitt ef maður þarf ekki að gera neitt. Það er nefnilega ekkert varið í það að slæpast nema maður sé að koma sér undan einhverju öðru. Stolnar stundir eru bestar.
Ég var sem sagt búinn að búa þannig um hnútana að ég þyrfti ekkert að gera um helgina en í stað þess að sofa til tvö var ég sprotttinn upp fyrir klukkan 10 að morgni laugardagsins og fann enga eirð í mér til að slæpast.
Ákvað því að það væri best að fara út í bakarí, rölta svo niður Laugaveginn og sá í hendi mér að það væri mjög mikilvægt að ég færi í Kolaportið að kaupa gamlar og illa lyktandi bækur. Það var svo eins og við manninn mælt að um leið og ég var búinn að þaulskipuleggja daginn féllust mér hendur og ró færðist yfir mig.
Ákvað að leggja mig í 5 mínútur áður ég legði upp í leiðangurinn og svaf til sex. Góndi út í loftið um kvöldið og ákvað að vinna allt þetta tímatap upp á sunnudeginum. Verkkvíðinn helltist yfir mig áður en ég komst fram úr þannig að ég svaf þann daginn líka.
Þegar upp var staðið, síðdegis á sunnudegi, var ég sannfærður um að þetta væri besta helgi sem ég hefði upplifað í háa herrans tíð. Samt er ég með smá samviskubit og finnst eins og ég hafi verið að stela tíma frá sjálfum mér.


| 13:43 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff