»  skrif  »  Pest

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Pest
Mánudagur, 22. nóvember 2004

Það er margt í lífinu sem fer í taugarnar á mér en fátt jafn mikið og umgangspest sú sem við flensu er kennd. Mér vitanlega eru til fáar varnir við þessum árlega vágesti að austan og fátt hægt að gera annað en leggjast niður og láta ósköpin yfir sig ganga.

Ég er hræddur við sprautur og nálar og þorði ekki í bólusetningu enda hef ég heyrt um fólk sem hefur farið í sprautu og samt orðið fárveikt. Gleypti bara mína lýsistvennu og vonaði það besta. Ég slapp samt ekki en þar sem fátt er vinnualkanum verra en svona pest ranglaði ég um í hálfgerðu móki með dúndrandi hausverk í nokkra daga áður en ég gafst ég upp og lagðist fyrir.
Það kórónar svo þessi ömurlegheit og vinnutap að það er ekki séns að nota tímann sem maður liggur í veikindunum á uppbyggilegan hátt. Maður er svo vankaður að maður getur ekki lesið neitt þyngra en Morgan Kane og heldur varla þræðinum í Leiðarljósi þegar maður reynir að gleyma þjáningunni fyrir framan sjónvarpið. Það er óþolandi klemma að vera of veikur til að geta tekið þátt í daglegu lífi en um leið ekki nógu veikur til að leggjast inn á spítala og láta dæla sig fullan af morfíni.
Flensan getur bugað sterka andans menn og þannig þekki ég góðan mann, andlegan risa sem kom einu sinni til meðvitundar, með sótthita, þar sem hann kraup fyrir fram sjónvarpið og leitaði eftir styrk á Ómega.
Það slær samt ekkert á þetta enda er flensa ekki hugarástand eins og timburmenn og almenn tilvistarkreppa sem hægt er að hugsa sig út úr. Fróðir menn segja mér að eina leiðin til að uppræta flensuna sé að bæta hreinlæti í Kína og kynna salernispappír til sögunnar en þá hyrfu regnskógarnir með öllu og þá yrðum við fyrst í djúpum skít. Ég reyni því að taka pestinni af karlmennsku í nafni umhverfisverndar.


| 17:15 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff