»  skrif  »  Sögur úr borg syndanna

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Sögur úr borg syndanna
Miðvikudagur, 10. nóvember 2004

Teiknimyndasögur Franks Miller um líf og dauða ógæfufólks í lastabælinu Sin City eru með því betra sem borið hefur verið á borð fyrir unnendur góðra myndasagna síðasta áratuginn eða svo.
Sin City bækurnar eru sjö talsins og hver annarri magnaðri þegar kemur að ofbeldi, svikum, ruddaskap og stílfærðum teikningum. Bækurnar tengjast innbyrðis og þannig skjóta lykilpersónur einnar bókar upp kollinum sem aukapersónur í öðrum.

Allt er þetta gert af stakri snilld og mögnuð film noir stemning grúfir sig yfir svart/hvítar sögurnar en Miller hefur sjálfur greint frá því í viðtölum að hann sé undir miklum áhrifum meistara harðsoðnu reyfaranna, Raymonds Chandler og Dashiell Hamett.


Myndasögur lifna við

Leikstjórinn Robert Rodriguez sem á að baki myndir eins og El Mariachi, Desperado, From Dusk Till Dawn og Once Upon a Time in Mexico hefur ráðist í það vandasama verkefni að kvikmynda sögurnar um Sin City og það litla sem hefur sést úr bíómyndinni sem er væntanleg á næsta ári lofar gríðarlega góðu.
Miller sjálfur er líka hafður með í ráðum en Rodriguez þurfti að beita höfundinn nokkrum fortölum til að fá að kvikmynda sögurnar og það varð úr að Miller fékk að hafa auga með öllu og er titlaður meðleikstjóri. Þeir félagar virðast hafa náð fullkomlega saman en það er engu líkara en teikningarnar í bókunum lifni við á filmunni. Þá eru allir leikarar í lykilhlutverkum ákaflega vel valdir og líkjast fyrirmyndum sínum svo vel að það er lyginni líkast.
Þó að hver og ein Sin City-bók gæti ein og sér hæglega staðið undir heilli bíómynd hefur Rodriguez valið þann kost að segja nokkrar meginsögur í einni mynd og tvinna þær saman líkt og Miller gerir í bókunum. Í fyrstu bókinni segir frá brjálæðingnum Marv sem gengur berserksgang þegar hann leitar hefnda á þeim sem drápu vændiskonuna Goldie og klíndu morðinu á hann. Hann á þó við ofurefli að etja þar sem hann lendir upp á kant við Roark-fjölskylduna sem ræður lögum og lofum í Sin City og er með gerspillta stjórnmálamen og lögreglu á sínum snærum.

Guli bastarðurinn og tálkvendið

Í bókinni That Yellow Bastard, sem er að margra mati besta Sin City-bókin, leggur löggan Hartigan allt í sölurnar til að bjarga ungri stúlku úr klóm barnaníðings sem illu heilli er af ættum Roarks.
Hann endar sjálfur í fangelsi grunaður um misnotkun á börnum þótt honum takist að bjarga Nancy litlu. Hann fær að dúsa bak við lás og slá árum saman en þegar hann losnar skyndilega úr haldi finnur hann Nancy sína aftur. Hún er þá orðin heitasta súlustelpan í Sin City og er enn í bráðri hættu þar sem guli bastarðurinn hyggur á hefndir.
Bókin A Dame to Kill For er klassísk tálkvendissaga um óvirka alkóhólistann Dwight sem lætur hin ómótsæðilegu Övu glepja sig til illverka og halla sér aftur að flöskunni. Hún býr svo þannig um hnútanna að hann er nær dauða en lífi þegar vændiskonur í Sin City taka hann á löpp og tjasla honum saman. Dwight snýr svo aftur með nýtt andlit með það eitt fyrir augum að koma þessari fyrrverandi ástkonu sinni fyrir kattarnef.
Leikaraliðið í Sin City er ekki af verri endanum en gamli töffarinn Mickey Rourke fær að spreyta sig á Marv og tryggir aðdáendur hans binda vonir við að hann fái nú loks uppreisn æru en hann virðist vera í banastuði í hlutverki þessa geðbilaða morðingja með barnshjartað en Marv býr hjá mömmu sinni og heldur verndarhendi yfir Nancy sem er örlagavaldur í lífi margra í Sin City.
Bruce Willis leikur Hartigan og ætti eki að vera í vandræðum með að túlka harðsoðna löggu sem er nokkrum klukkustundum frá eftirlaunum þegar hann þarf að fórna lífi sínu fyrir 11 ára stúlku.
Nancy sjálf er leikin af hinni gullfallegu Jessica Alba sem gerði garðinn frægastan í þáttunum Dark Angel sem erfðabreytta ofurgellan Max og sást síðast í bíó í dansmyndini Honey.
Clive Owen, sem sýndi fantaleik í Croupier og fór mikinn í King Arthur, leikur hinn ólánssama Dwight sem lendir í klónum á Övu með hörmulegum afleiðingum.
Þessi listi ætti að nægja til að selja nokkrar milljónir af bíómiðum en þó eru enn ónefnd Rosario Dawson, Benicio Del Toro, Elijah Wood, Maria Bello, Michael Clarke Duncan, Carla Gugino, Josh Hartnett, Michael Madsen, Jaime King, Brittany Murphy og Nick Stahl.


| 14:12 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff