»  skrif  »  Fíklajól

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Fíklajól
Mánudagur, 13. desember 2004

Ţađ er erfitt ađ vera fíkill í desember. Fíklum finnst fátt betra en ađ fá utanađkomandi samţykki fyrir neyslu sinni og hegđun og í jólageđveiki ţessa mánađar sendir samfélagiđ okkur skýr skilabođ um ađ allt sé leyfilegt.
Áfengisneysla er aldrei jafn sjálfsögđ og glöggiđ flćđir út um allt ţannig ađ jafnvel afturkreistar og löghlýđnar skrifstofublćkur telja sér allt í einu heimilt ađ aka undir áhrifum. Um ofátiđ ţarf ekki ađ hafa mörg orđ en mánuđurinn gengur út á ađ rađa í sig gumsi af hlađborđum og byrgja sig upp af sćlgćti.

Allri geggjuninni fylgir svo innkaupaćđi ársins ţar sem verslunarfíklar geta grímulaust tapađ sér í fíkn sinni og ţurfa ekki ađ skammast sín fyrir neitt enda innkaupin öll framin í anda náungakćrleikans sem réttlćtir einnig ofátiđ og ölvunaraksturinn. Fíklar hugsa ekki um neitt nema sjálfa sig í ellefu mánuđi á ári en fá svo ađ tapa sér gjörsamlega í neyslunni í desember ţegar draumaréttlćtingin verđur ađ lögmáli og allir eru ađ gera allt fyrir ađra. Eđa ţannig sko.
Ég er ekkert efnađari en í síđasta mánuđi en nú finnst mér alveg sjálfsagt ađ ég fjárfesti í nýrri ţvottavél, tölvu, bókastöflum, DVD-diskum og alls konar drasli. Ţađ sem bjargar mér í ţessu ati er hliđarfíkn sem ég kom mér upp ţegar ég hćtti ađ drekka. Piparkökur eru mitt dóp í desember. Mig langar ekkert í piparkökur í júlí en um leiđ og ţćr fylla hillur stórmarkađanna í nóvember byrja ég ađ éta, og ég ét og ét og ét. Ég fylli jólatómarúmiđ innra međ mér međ piparkökum og losna ţví viđ ađ ausa dóti, mat og brennivíni ofan í ginnungagapiđ.
Jamm, fíklar góđir, svona eru jólin og ţar sem ţađ er í anda jólanna ađ miđla af reynslu sinni minni ég á ađ ţađ ţarf ekki nema eina rauđvín međ matnum á ađfangadag til ađ eyđileggja jólin. Piparkökur gera hins vegar engum illt.


| 15:52 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff