Þriðjudagur, 21. desember 2004
Það besta við jólabókaflóðin eru safaríku og opinskáu ævisögurnar sem gefa forvitnum lesendum innsýn í líf fólks (aðallega kvenna) sem hefur verið að meika'ða en þurft um leið að takast á við innri djöfla og ytri hrylling.
Það var offramboð á svona bókum í fyrra og það var því hægur vandi að fróa kjaftakerlingunni innra með sér og slúðra um til dæmis líf fegurðardrottningar og barnastjörnu. Það er hins vegar kreppa í þessum bransa í ár þar sem mest fer fyrir ævisögum roskinna góðborgara. Gott og blessað auðvitað en höfðar ekki mikið til lágkúrulegustu gægjuþarfar minnar. Ég varð því að leita út fyrir landið og miðin eftir jólabókinni minni í ár sem er ævisaga Jennu Jameson, frægustu klámmyndastjörnu allra tíma.
Bókin How to Make Love Like a Porn Star er dúndurlesning enda dregur stúlkan ekkert undan frekar en í kvikmyndum sínum. Og maður hefur ekki komist í gegnum marga kafla áður en það kemur að morði, nauðgun, dópneyslu og skepnuskap.
Engin íslensk ævisaga stenst samanburð við geggjað lífshlaup klámdrottningarinnar, en þessi bók sýnir svart á hvítu hversu fábreytilegt líf frægu Íslendinganna er í raun. Ævisögur okkar fólks eru bara venjulegar hvunndagssögur kryddaðar með smá dramatík.
Það sem er þó merkilegast við ævisögu klámdrottningarinnar er að með þessari naflaskoðun sinni grefur hún undan þeirri glansmynd sem klámbransinn hefur búið til af sjálfum sér. Jennu hefur verið teflt fram sem sjálfstæðri og frjálsri konu sem nýtur vinnunnar sinnar í botn vegna þess að kynlíf er svo skemmtilegt. Þessi galna goðsögn kolfellur þegar drottningin opnar sig, enda fer hún ekki leynt með það að tilveran í klámbransanum er viðbjóður. Meira að segja á toppum - að maður tali ekki um leiðina þangað.
| 12:36 |