Þriðjudagur, 25. janúar 2005
Kvikmyndin One Point O, eða Ein gráða, eftir þá félaga Martein Þórsson og Jeff Renfroe var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni á síðasta ári. Hún hefur farið víða í kjölfarið og yfirleitt fengið fína dóma. "Er maður ekki alltaf taugaveiklaðastur heima hjá sér?" spyr Marteinn, sem frumsýndi myndina á Íslandi á fimmtudag og lagði myndina í dóm landa sinna.
Ofsóknaræði og taugaveiklun eru meginstef Einnar gráðu en Marteinn þvertekur þó fyrir að hann og Jeff séu tæpir á taugum. "Við erum alls ekki nojaðir. Það eru frekar allir í kringum okkur í Ameríku sem eru ofsóknarbrjálaðir og við vildum hafa svona paranoid Polanski-fílíng í þessu."
Það má skoða Eina gráðu sem gagnrýni á auglýsingaskrum og Marteinn segir að sagan sé að einhverju leyti sprottin upp úr kynnum sínum og Jeffs af auglýsingabransanum. "Við höfum unnið við auglýsingagerð en þar er allt dauðhreinsað og lítill sköpunarkraftur. Það er alltaf verið að reyna að skilyrða fólk. Við vildum skrifa eitthvað um þetta og útkoman varð svona."
Þeir félagar eru um þessar mundir að vinna að handriti myndar sem byggir á myndasögunni Stray Toasters. Marteinn segir að það verkefni sé tímafrekt og hann vilji því hrinda einu til tveimur öðrum verkefnum af stað á Íslandi í millitíðinni. "Mig langar að gera hryllingsmynd hérna," segir Marteinn og bætir því við að Ísland sé kjörinn tökustaður fyrir hrylling. "Svo er ég að undirbúa verkefni með Snorra Þórissyni. Það er rómantísk kómedía sem stendur til að gera hérna."
Marteinn hefur búið í Toronto í Kanada frá árinu 1997 og hefur sínar höfuðstöðvar þar. "Ég er líka öðru hvoru í Los Angeles en Jeff býr þar."
Þeir félagar tefla fram virkilega sterkum leikurum í Einni gráðu og líklega hefur jafn glæsilegur hópur alþjóðlegra stjarna ekki unnið áður undir stjórn Íslendings. Jeremy Sisto fer með aðalhlutverkið en einnig ber mikið á gamla jaxlinum Udo Kier, Lance Henriksen úr Aliens, Deborah Unger úr The Game og Bruce Payne.
"Nokkrir höfðu áhuga á aðalhlutverkinu, þar á meðal Adrien Brody (The Pianist), sem datt út þegar fjármagnið datt út."
Marteinn segir að fjármögnun myndarinnar hafi komist í uppnám í tvígang en þeir félagar hafi aldrei gefist upp. "Þetta hafðist í lokin með smá tilslökunum sem fólu meðal annars í sér að við urðum að taka myndina í Búkarest í Rúmeníu. Við hefðum helst viljað gera það í Bandaríkjunum en þetta var ódýrast í Rúmeníu."
| 9:45 |