»  skrif  »  Hvar er þjónustan?

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Hvar er þjónustan?
Þriðjudagur, 25. janúar 2005

Ég hef ekki enn öðlast fulla trú á mannkyninu eftir að hafa unnið fyrir mér sem bensínafgreiðslumaður á síðari hluta nýliðinnar aldar. Meintir "viðskiptavinir" (annað orð yfir manneskjur) hafa einkennilega ríka tilhneigingu til þess að sýna sínar verstu hliðar þegar þeir standa andspænis fólki í þjónustustörfum, fólki sem er uppálagt, af vinnuveitendum sínum, að láta allt yfir sig ganga og þar með hefur hinn almenni, vansæli og illa fullnægði fýlupúki fengið skotleyfi á það.

Á bensínstöðinni fékk maður yfir sig gusurnar frá stjórnmálafólki, sjónvarpsstjörnum og alls konar öðru liði sem grundvallar tilveru sína á því að smjaðra fyrir almenningi þegar því hentar og brosa þess á milli til þeirra sauðsvörtu af forsíðum Séð og heyrt þar sem allir eru svo svakalega ánægðir með sig og glaðir yfir því að vera til.
Meðaljóninn var svo sem litlu skárri en fræga fólkið en einhvern veginn fannst manni honum frekar stætt á því að kasta grímu siðmenntaðrar manneskju á almannafæri og breytast í óargadýr sem er að kafna úr frekju og sérgæsku.
Það eru markaðsöflin sem hafa grafið svona heiftarlega undan mennsku okkar með því að skapa fólki svigrúm til að níðast á sjálfsvirðingu náungans í skjóli svokallaðrar "þjónustu" en síðan þjónustan varð að markaðstæki hefur mannkynið færst stöðugt nær því að verða hjörð ofdekraðra og sérhlífinna aumingja.
Halli gamli sem vann með mér hafði lagt vegi og brýr yfir landið þvert og endilangt og byrjað að draga afla að landi á barnsaldri til þess eins að sitja, á efri árum, undir fúkyrðaflaumi flottræfla á Glitnisbílum sem fengu ekki nógu góða þjónustu. Það er eitthvað sorglegt við þetta en Halli brást við yfirganginum með því að bjóðast til að koma heim með fólki og vaska upp og ryksuga fyrir það en tautaði svo í hálfum hljóðum að lífið hefði verið betra í den þegar þjónustan var bara veitt í kirkjum og hjá vændiskonum.


| 10:33 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff