»  skrif  »  Minningargrein um fjandvin

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Minningargrein um fjandvin
Þriðjudagur, 04. janúar 2005

Gerræðisleg tóbakslög sem sjálfsagt standast ekki stjórnarskrána í núverandi mynd meina mér að skrifa fallega um tóbak. Ég ætla samt að taka sénsinn og kveðja þennan óþverra hér enda er ekki beinlínis hægt að tala um að hér á eftir fari lofrulla þó um hálfgerða minningargrein sé að ræða.

Mér fannst of plebbalegt að hætta að reykja þann fyrsta janúar og hef því ákveðið að hætta ekki á morgun, heldur hinn og þá lýkur 15 ára erótísku sambandi mínu við sígaretturnar sem ég taldi mig löngum vera að sjúga úr kosmíska krafta. Ávinningurinn af öllu stubbatottinu hefur hins vegar aðallega verið fólginn í æðaþrengslum, síþreytu og slímstífluðum öndunarvegi.
Það er samt ekki laust við að mér finnist það frekar aumingjalegt að hætta að drepa mig hægt og rólega á miðri leið enda hefur reykingafasisminn í þjóðfélaginu nánast gert það að þegnskyldu að sýna heilbrigt andóf og standa vörð um persónufrelsi með reykingum.
Ástæðan fyrir því að ég hætti getur samt aldrei orðið aulalegri en ástæðan fyrir því að ég byrjaði. Humphrey Bogart reykti og mér fannst og finnst hann töff. Það þurfti ekki meira til. Hann tærðist upp af lungnakrabba og dó 57 ára. Ég reyndi einu sinni að telja mér trú um að það væri líka töff.
Það er samt ekkert smámál að hemja tóbaksfíknina og ég er núna í miðju sorgarferli. Þetta er eins og að missa náin vin sem hefur fylgt manni í gegnum súrt og sætt. Ég upplifði þetta einnig þegar ég gerði mér grein fyrir því að ég yrði að segja skilið við áfengi það sem ég ætti eftir ólifað. Tómleikatilfinning heltók mig og ég var tvær vikur að sigrast á sorginni en þá tóku við miklu betri tímar.
Þetta varður eins með retturnar; djúp sorg en síðan ærslafull og súrefnisrík gleði.


| 9:35 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff