»  skrif  »  Borgvirkið

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Borgvirkið
Miðvikudagur, 16. febrúar 2005

Það er einn staður hér á landi sem er fallegri og betri en allir aðrir blettir á jarðkringlunni. Þetta er Vesturbærinn í Reykjavík. Landfræðileg lega þessa rokrassgats við sjávarsíðuna gerir það af verkum að loftið þar er hreinna en annars staðar og glæpir eru svo fátíðir að það er hending að þar sjáist lögreglubíll á ferli og þá sjaldan að afbrot eru framin í þessum bæjarhluta eru iðulega aðkomumenn að verki.

Þegar Vesturbæingar taka sig til sýna þeir jafnan yfirburði, hvort sem það er á andlegu eða líkamlegu sviði. Fótboltafélagið KR er gott dæmi um þetta en saga liðsins er svo glæsileg og umfang þess svo mikið að það er lífsstíll hjá þeim sem búa ekki í Vesturbænum að hatast við liðið.
Hin og þessi úthverfi eru dugleg við að hampa einhverjum skáldum og rithöfundum sem hafa sest þar að. Vesturbærinn á nóg af slíkum en þar nægir að nefna Þórberg Þórðarson sem taldi skrefin í göngutúrum sínum um Vesturbæinn. Annan eins stílista hefur landið enn ekki alið og hann gæti skrifað hvaða úthverfahöfund sundur og saman.
Melabúðin er ein skrautfjöður bæjarhlutans en hún er fyrir löngu orðin hin mesta sælkerabúð og er gott dæmi um hvernig kaupmaðurinn á horninu á að hegða sér til að lifa af í breyttu samkeppnisumhverfi. Í Vesturbænum eru líka besta sundlaug landsins, bókabúð, apótek ( í það minnsta þrjú) og skothelt innra menntakerfi (Melaskóli, Hagaskóli, MR, Háskólinn)
Það mætti því hæglega reisa borgarmúra umhverfis Vesturbæinn og innan þeirra gætu Vesturbæingar unað glaðir við sitt óáreittir af hræringunum fyrir utan. Innan borgarmúranna væri allt til alls og ekkert því til fyrirstöðu að þarna risi Aþena norðursins. Brottfluttir Vesturbæingar, eins og ég sjálfur, þyrftu svo ekki að hafa neinar áhyggjur þó við stæðum utan múranna. Það gildir nefnilega hið fornkveðna; einu sinni Vesturbæingur, ávallt Vesturbæingur og dætur og synir bæjarins eiga alltaf afturkvæmt.


| 15:27 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff