»  skrif  »  Sirkuskötturinn Hrappur

nýleg skrif

nýleg komment

a long time ago...
Sirkuskötturinn Hrappur
Þriðjudagur, 08. febrúar 2005

Ég hef ítrekað lent í því á síðari árum að þurfa að endurmeta ýmsar hugmyndir og fastmótuð gildi sem ég taldi vera staðfastari og traustari en gangstéttina meðfram Bankastræti.
Þannig stóð ég lengi klár á því að áfengi veitti fólki innblástur, skerpti hugsunina og gerði fólk almennt skemmtilegra. Það reyndist rangt.

Ég hélt líka að það væri ferlega töff að reykja og eftir að ég ánetjaðist tóbakinu var ég fljótur að gangast við því að það væri ekki hætt að hætta að reykja. Ég komst nýlega að því að það er ekkert mál. Ef maður vill hætta þá hættir maður bara. Tóbaksframleiðendurnir sjálfir hljóta að hafa búið til goðsögnina um að það sé erfitt að hætta.
Þessar mögnuðu uppgötvanir mínar fölna samt í samanburði við kynni mín af sirkuskettinum Hrappi. Ég hafði lengi staðið í þeirri meiningu að kettir væru leiðinda skepnur; sjálfselskir, undirförlir og ekki líklegir til þess að gefa mikið af sér. Ég hef talið mig meiri hundamann þó að ég hafi aldrei átt hund eða kött og vissi því ekkert í minn haus.
Hundar eru eyrnamerktir bestu vinir mannsins og þykja tryggir og húsbóndahollir. Þessir traustu eðlisþættir gera það auðvitað að verkum að þeir eru ekkert sérstaklega skemmtilegir og varla með frjálsari vilja en meðal framsóknarmaður.
Kettir eru allt annað mál og þessi nýi vinur minn er fullur af lífi, fjöri og hlýju. Það er enginn hundur í Hrappi sem ég reyndi að nálgast með opnum hug þegar ég féll fyrir eiganda hans. Kisi byrjaði á að klóra mig, bíta og míga á fótinn á mér. Hefði verið um hund að ræða hefði ég sjálfsagt þurft að berja hann til að taka mig í sátt. Kötturinn lætur hins vegar ekki kúga sig og því urðum við að mætast á miðri leið á jafningja grundvelli og á hálfu ári höfum við myndað traust vináttubönd og erum ófeimnir við að vera góðir hvor við annan. Ég hef sem sagt lært það að það er kúl að eiga kött.


| 16:19 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff